Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Blaðsíða 50
Fréttir — Fréttir — Fréttir — Fréttir
Fundir um
launamál kvenna
Fundir Framkvæmdanefndar um
launamál kvenna laugardaginn 18.
febrúar sl., á átta stöðum á landinu,
voru fjölsóttir. Skipst var á skoðun-
um og mikill hugur í konum að
halda áfram á sömu braut. Fram-
undan hjá nefndinni er að dreifa
bæklingi á vinnustöðum, en nefndin
gaf þennan bækling út. Þar koma
fram helstu niðurstöður úr nýjustu
könnunum um stöðu kvenna á
vinnumarkaðinum.
Framkvæmdanefndinni hafa borist
beiðnir um að senda fulltrúa á fundi
hjá stéttarfélögum og á starfs-
mannafundi. Nefndarmenn hafa
þegar sótt nokkra slíka fundi og all-
margir eru framundan.
Fundaherferð sú sem framkvæmda-
nefndin efndi til 18. febrúar var til-
raun til að kanna, hvort grundvöll-
ur væri fyrir fundum af þessu tagi
með konum víðs vegar um landið. í
framhaldi af þeirri jákvæðu reynslu
sem fékkst verður á næstunni
skipulögð önnur fundaferð um
landið. Framkvæmdanefndinni
hafa þegar borist óskir frá fólki á
stöðum, sem taldi sig afskipt að
þessu sinni.
Leiðrétting
í 3.-4. tölubl. 1983, með frétt á bls.
47, frá afhendingu málverks af Þor-
björgu Jónsdóttur skólastjóra, mis-
ritaðist nafn Jónínu Guðmunds-
dóttur.
Blaðið biður velvirðingar á þessu.
Ógreidd félagsgjöid frá 1983
Enn eiga nokkrir þeirra hjúkrunar-
fræðinga, sem ekki voru starfandi á
árinu 1983, eftir að greiða félags-
gjald sitt til HFÍ.
I nóvember sl. voru sendir út gíró-
seðlar, og eru þeir sem ekki hafa
greitt ennþá, vinsamlegast beðnir að
senda greiðsluna sem fyrst.
Félagsgjaldið hækkaði um 10% 1.
jan. 1984 í kr. 550.00 fyrir árið
1983.
EVERYDAY EEALÍTY'
Xi T Ri-
NURSE
A STUDY OF CÖMMUNICATjQNPATTERNS
BETWE6N 'THE SCHIZOPHRENIC ANO THE'
Pövj.'HiA' ru' i "<J"< "'r
Boken er et forskningsarbeid -
doktorgrad i sykepleievitenskap
avlagt ved University of California.
Forfatteren behandler særlig
hvordan avvikende schizofren
kommunikasjon virker inn pá
sykepleier - pasientforholdet i
en lukket psykiatrisk avdeling.
Forskningsmetoden er en kvalitativ
komparativ analyse og deltakende
observasjon (Grounded Theory).
Mange av de omráder boken tar
opp vil ogsá kunne anvendes av
sykepleiere som arbeider med
andre pasientkategorier.
Boken er utgitt pá engelsk.
ISBN 82-05-14419-2 kr. 120,-
/GYLDENDAL NORSK FORLAG^ u 092 .
Undervisningsavd. Tlf. 02/20 07 10 * ^
44 HJÚKRUN V« - 60. árgangur