Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1997, Blaðsíða 4

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1997, Blaðsíða 4
Rit stj ómar stefna Tímarits hjúkrunarfræðinga Stefnt er að útgáfu Tímarits hjúkrunarfræðinga sex sinn- um á ári en árlegur fjöldi tölublaða er þó háður ákvörðun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hverjn sinni. Tímaritið er málgagn allra íslenskra hjúkrunarfræð- inga og í því er reynt að endurspegla ólíkar skoðanir á og viðhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn þess finni þar lesefni sér til gagns, fróðleiks og ánægju. Tímaritið er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar umræðu um hjúkrun. I faglega hlnta tímaritsins eru hirt- ar greinar um hjúkrunarstörf, nýjar rannsóknir í hjúkrun, viðtöl og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga. I félagslega hluta blaðsins er greint frá því sem er að gerast hjá félaginu og tengist hagsmunaharáttu þess. Ritstjóri ber ábyrgtTá að efni, útgófa og rekstur hlaðsins sé í samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess öðru en aðsendum greinum. Iiöfundar aðsendra greina bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir sem í þeim birtast ])urfa ekki að samrýmast stefnu Félags íslenskra hj úkrunarfræðinga. Lagður er metnaður í að tímaritið sé vandað að því er varðar málfar, útlit og efni. Ahersla er liigð á að faglegar greinar standist vísindalegar kröfur. Ritnefnd hittist á mánaðarlegum fundum. Ritnefnd áskilur sér rétt til að hirta greinar eða hafna þeim og til að setja greinar upp og aðlaga að útliti hlaðsins. Alrneinit um ritiin greina Greinahöfundar eru heðnir um að skila greinum til Tímarits hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Greinar í hlaðinu eru í stórum dráttum tvenns konar. Annars vegar almennar greinar sem ritnefnd yfir- fer og lagfærir í samvinnu við höfunda fyrir birtingu. Hins vegar ritrýndar rannsóknagreinar sem eru ritrýndar af völdum fræðimönnum. Ritnefnd leggur áherslu á að málfar greina sé gott og þeir sem þar eiga sæti vilja gjarnan verða höfundum að liði við greinaskrifin. Islenska þarf erlend orð ef unnt er og skammstafanir er gott að útskýra í fyrsta skipti sem þær koma fram. Myndir og teikningar þurfa að vera nægi- lega skýrar til að hægt sé að prenta eftir þeim. Almennt gihla reglur ameríska sálfræðingafélagsins um uppsetningu greinanna. Upplýsingar um þær er að finna í bókinni Publication Manual of the American Psychologi- cal Association í íslenskri þýðingu í Handbók Sálfrœði- ritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson og bókinni Gagnfrœðakver lianda háskólanemum eftir Friðrik H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson. Rltrýndar raimsóknagremar Sérstakar reglur gilda um ritrýndar rannsóknagreinar. Miklar kröfur eru gerðar til slíkra greina um efni, inni- hald og framsetningu og tekur vinnsla þeirra lágmark þrjá mónuði eftir að þær berast til hlaðsins. SKRIFSTOFA FÉLAGSINS Starfsfólk I’élags islenskra hjúkrunarfræóinga: Ásta Möller, formaður Aóalbjörg Finnbogadóttir, ráðgjöf «g námsmat mánud. og þriöjud. kl. 9 - 16 og miðvikud. og fiinmtud. kl. 9 - 14 Anna Gunnarsdóttir, skrifstofumaður og hókari Áslaug Guðjónsdóttir, skrifstofumaður Soflía Siguróardóttir, skrifstofmnaður Vigdís Jónsdóttir, hagfræðingur, símaviðtalstími þriðjud., miðvikuit. og fimmtud. kl. 9 - 12. Þorgeróur Kagnarsdóttir, ritstjóri Skrifslofa l'élagsins að Siiðurlaiidshraut 22 er opin virka daga kl. 9-17. Skrifstofa félagsins sér um, auk almennrar skrifstofu- þjónustu og upplýsingamiðlunar, þjónustu við sjóði félags- ins, s.s. starfsinenntunursjóð, vísindasjóð, orlofssjóð og minningarsjóði. Skril'stofan sér einnig um sölu á varningi á vegum félagsins og leigu á íhúð í Reykjavík og sumarhú- stöðum félagsins utan sumarleyfistíma. FUNDIR HJÁ FÉLAGI ÍSLENSKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA HAUSTIÐ 1997 Stjórnarfundir Fundir hjá stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eru að jafnaði 1. og 3. niánudag hvers mánaðar. Fyrri fundurinn verður hádegisfundur kl. 12.00 en seinni fundurinn síðdegis- fundur kl. 16.00. Síðari fundur haustið 1997 verður 15. desember. Næsti félagsráðsfundur verður 6. fehrúar 1998. Desemberuppbót: Samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga er desemheruppbótin á árinu 1997 kr. 28.651 fyrir fullt starf. Greitt er hlutlallslega fyrir lilutastarf. Jólaglaðningur Með blaðingu fylgja að þessu sinni handhók og dag- bók Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem jóla- glaðningur til allra félagsmanna. Handbókin, sem fyrst kom út fyrir 2 árum, hefur nú verið endurskoð- uð eftir að nokkur reynsla er komin á notkun henn- ar. Ymislegt hefur verið tekið út en nýjum upplýsing- um bætt við í staðinn. Daghókin hefur einnig verið endurhætt. Nýja handbókin er töluvert þynnri en sú fyrri vegna þess að sérstakri símaskrá er sleppt og þynnri pappír er notaður en áður. Vonandi fer hún vel í vösum hjúkrunarfræðinga næstu tvö árin og reynist þeim góður upplýsingabanki um félagsleg málefni þeirra. 252 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5.TBL.73.ÁRG. 1997
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.