Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1997, Blaðsíða 26
mati, að aðlaga töluvert að aðstæðum á hennar deild.
„Það er galli að hjartasjúklingarnir leggjast inn á
lyflækningadeild, eru svo færðir yfir á skurðdeild á
meðan unnið er að aðgerðinni en síðan eru þeir flutt-
ir aftur yfir á lyflækningadeildina til eftirmeðferðar.
Sama skráningaraðferðin á ekki við á báðum stöðum
og þessi flutningur fram og til baka ruglar ferlið,“
segir hún.
Hún segir að í Noregi sé auðvelt fyrir hjúkrunar-
fræðinga að fá vinnu og að íslenskir hjúkrunar-
fræðingar njóti virðingar í Noregi. „Mér fannst vera
farið að hlusta á mig eftir '/2 ár. Eg á gott samstarf
við lækna en frá hjúkrunarfræðingum hef ég stund-
um mætt svona hálfgerðri þreytu með orðunum:
Hvað ertu að ströggla? “ Henni finnst lítill faglegur
metnaður ríkja meðal norsku stallsystranna.
„Iljúkrunarfræðingar fara t.d. mjög sjaldan á
ráðstefnur. Starfsfólkinu býðst að heimsækja stað í
Cleveland í Ohio í Bandaríkjunum en það eru aðal-
lega læknar sem fara |iangað. Ég sótti, ásamt annarri
sem hafði áhuga á fjöláverkum, um að fara til Balti-
more í námsferð. Við fengum með herkjum að fara.
Við vorum í '/2 mánuð og komum heim uppfullar af
hugmyndum. Eftir á vorum við beðnar um að halda
fyrirlestur fyrir læknana en mættnm mótbyr hjá
hjúkrunarfræðingunum,“ segir hún og heldur áfram:
„Eg var allt í einu orðin ein með strákunum. Hér
liefur viðmiðunin verið sú að hjúkrunarfræðingur er
góður ef tæknileg færni er í lagi. Þannig var matið og
þá skipti umhyggjan eða tannhirða sjúklinga og
atriði eins og að snúa fólki í rúminu engu máli.“
Asdís segist hafa unnið mjög mikið fyrstu árin og
eiginlega unnið yfir sig. „A gjörgæslunni fékk ég ladn-
unar einkenni og varð að hætta. Eg var í brjálaðri
vinnu, rak í raun deildina á kvöldin og nóttinni. Eg
vann oft um 40 yfirvinnustundir á mánuði og stund-
um meira. Núna vinn ég bara virka daga og vinnu-
tíminn er 35 V2 ldst. á viku og engin yfirvinna en
svolítið breytilegar vaktir,“ segir hún.
Ásdís ferðast um á hjóli og býr ein í 45 fm íbúð á
vegum sjúkrahússins. Mánaðarleigan er 2400 nkr.
(24 þús.ískr.) á mánuði fyrir utan rafmagn og hita.
„Ibúðin var í lélegu ástandi þegar ég tók við henni.
Ég setti fram kröfur um endurbætur og fékk hana
lagaða. Það var ekki liægt að bjóða mér hærri laun
OPIÐ ÖLL KVÖLD
VIKUNNAR TIL KL. 21.00
HRINGBRAUT 119 - VIÐ JL HÚSIÐ
en hins vegar var hægt að veita mér hlunnindi á
þennan hátt,“ segir hún.
„Mánaðarlaunin mín eru um 19,500 nkr. á mán-
uði (180 þús ískr.) og 37% fara í skatta. Eyrsta xk
árið sem ég var hérna fannst mér ég hafa góð laun en
sú tilfinning var fljót að hverfa. Osló er víst með dýr-
ustu borgum í lieinii og húsnæði hér er t.d. dýrara en
heima. Samt næ ég þó að leggja til hliðar í hverjum
mánuði hérna. Það gat ég ekki heima,“ segir Ásdís.
Hún vill lítið segja um heimþrá og heimferð. I bili
er hún sátt við að vera þar sem hún er. Það er hins
vegar aldrei að vita livað framtíðin ber í skauti sér.
Þ.R.
Iðunnar Apótek
Domus Medica
Egilsgata 3 • 101 Reykjavík
Alm. sími 563 1020. Læknasími 563 1021
Fax 552 8518
Opið: Mánud. - Föstud. 9:00-19:00
—
BREIÐHOLTS APÓTEK
Álfabakka 12 Mjodd, 109 Reykjavík
Alm. sími 557 3733, 557 3390
Læknasími 557 3450
Fax 557 3332
Opið: Mánud. - Föstud. 9-19 Laugard. 10-14
274
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5.TBL. 73. ÁRG. 1997