Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1997, Blaðsíða 52
Herdís
Jóna
Guðný Anna
Katrín
Ingibjörg
'~(j Úk.Y'UHAYYÁð
Sjúkrahúss Reykjavíkur
Hjúkrunarráð Sjúkrahúss Reykjavíkur var stofnað
með viðhöfn 22. janúar sl. að viðstöddum Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur, borgarstjóra, og Ragnheiði Ilar-
aldsdóttur, staðgengli heilbrigðisráðherra. Þar með
var hrint íframkvœmd margra ára gamalli hugmynd
um að stofna ráð sérfróðra hjúkrunarfrœðinga sem
gœti leitt til bœttrar þjónustu við sjúklinga, en um
leið verið vettvangur fyrir hjúkrunarfrœðinga spítal-
ans til að rœða frœðileg málefni frá ýmsum hliðum.
Af því tilefni sagði Sigríður Snæbjörnsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri, m.a.: „Þegar ég tók við starfi hjúkr-
unarforstjóra sumarið 1988 fór ég að sjálfsögðu yfir
þau gögn sem forveri minn í starfi, Sigurlín M. Gunn-
arsdsóttir, hafði skilið eftir. Margt fann ég skráð sem
vakti áhuga minn og sem lýsti afar vel hversu fram-
sýn Sigurlín var í starfi sínu sem hjúkrunarforstjóri
Borgarspítalans. Mátti sjá að þar fór kona langt á
undan sinni samtíð. I nefndum gögnum l’ann ég m.a.
paþpíra þar sem Sigurlín velti fyrir sér ýmsum
hhðum á því að hafa starfandi hjúkrunarráð við spít-
alann. Með því að lesa þessi gögn var fyrstu hug-
myndum um hjúkrunarráð á spítalanum sáð í huga
minn. Fyrir það vil ég þakka.“ Ennfremur sagði Sig-
ríður: „Stofnun hjúkrunarráðs Sjúkrahúss Reykja-
víkur er liður í því að ella og styrkja hjúkrun innan
og utan spítalans. Með því að auðvelda hjúkrunar-
fræðingum að veita hetri hjúkrun, munu sjúklingar
spítalans njóta góðs af, en betri þjónusta við sjúkl-
inga hlýtur alltaf að vera lokamarkmið okkar sem
hér vinnum.“
Veg og vanda af að hrinda hugmyndinni í fram-
kvæmd hafði vinnuhópur um stofnun hjúkrunarráðs
sem hefur starfað frá í febrúar 1996. Hópinn skipuðu
Fjóla Tómasdóttir, fyrrverandi deildarstjóri á A-7,
Ingibjörg Sigurþórsdóttir, slysadeild, Jóna Guð-
mundsdóttir, 3-B, Jónína Oskarsdóttir, A-6 og Guðný
Anna Arnþórsdóttir, sem jafnframt var formaður. I
hópnum störfuðu því saman ungir og óreyndir hjúkr-
unarfræðingar og eldri og reyndari. Þar voru fulltrú-
ar af ýmsum sviðum spítalans, bæði bráðaþjónustu
og langleguþjónustu, fulltrúar sjúkhnga með hkam-
lega sjúkdóma og þeirra sem áttu við andleg veikindi
að stríða. Vinnuhópurinn annaðist reglugerð fyrir
hjúkrunarráð og skipaði í kjörnefnd sem sá um kosn-
ingu fyrstu stjórnar hjúkrunarráðs. I kjörnefndinni
sátu Fjóla Tómasdóttir, Herdís Herbertsdóttir, B-6,
og Sigríður Sigurðardóttir, A-6.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, formaður vinnuhóps-
ins, sem lýsti yfir stofnun hjúkrunarráðs, sagði í
ávarpi sínu að tilgangur með stofnun hjúkrunarráðs
SHR væri einkum þríþættur:
• Að efla hjúkrun á stofnuninni, faglega og stjórn-
unarlega.
• Að vera vettvangur fyrir alhhða umræðu í hjúkrun.
• Að vera ráðgefandi aðili, innan stofnunar og utan.
Hún bætti við að ineð stofnun hjúkrunarráðs væri j
eitt skref stigið í átt frá miðstýringu að dreifistýringu,
)»ar sem um er að ræða almenna hreyfingu hjúkrun-
arfræðinga á spítalanum, sem kjósa sér sjálfir stjórn
og nefndir. Þá skapaðist vettvangur fyrir umræðu í
hjúkrun á spítalanum, ekki með stjórnunarlegum
formerkjum, og loks væri þetta skref í áttina að auk-
inni samvinnu lækna og hjúkrunarfræðinga en reglur
Sœunn með fundarhtimarinn.
300
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5.TBL. 73.ÁRG. 1997