Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1997, Blaðsíða 35
Fréttir
Háskólans á Akureyri 10 ára
Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri (H.A.) héll
upp á 10 ára afmæli sitt 27. september sl. Fjöldi
góðra gesta ávarpaði samkomuna og slegið var á létta
strengi í tali og tónum. Heilbrigðisdeild bárust fjöldi
gjafa og beillaóska frá velunnurum og samstarfs-
stofnunum fyrr og nú.
Heilbrigðisdeild var önnur tveggja deilda sem
H.A. hóf starfsemi sína með í september 1987. A af-
mælishátíðinni rifjaði Margrét Tómasdóttir, fyrsti
forstöðumaður heilbrigðisdeildar, upp fyrstu skrefin
í starfi deildarinnar. Hún lýsti því m.a. að forstöðu-
maður, kennarar og nemendur hefðu oft og tíðum
þurft að grípa í fleira en bækurnar fyrstu árin t.d. að
bera stóla- og borð og setja saman tæki. Þá var
kennslutími nemenda oft miðaður við vinnutíma að-
komukennara og því jafnvel kennt um helgar og
nemendur kallaðir úr páskafríi til að hlýða á fróð-
leikskorn meistaranna. Eins og vænta mátti af braut-
ryðjendum stóðust nemendur heilbrigðisdeildar þess-
ar áskoranir með ágætum.
Guðrún Una Jónsdóttir, úr hópi fyrstu braut-
skráðu hjúkrunarfræðinganna frá heilbrigðisdeild
H.A., lýsti gleði og raunum fyrstu nemendahópanna.
Hún nefndi einnig starfsvettvang hvers og eins þess-
ara fyrstu brautskráðu kandídata. Meðal annars
kom fram að tveir þeirra 11 hjúkrunarfræðinga er
brautskráðust úr fyrsta hópnum 1991, hafa þegar
lokið meistaranámi í hjúkrun. Annar þeirra, Helga
Lára Ilelgadóttir, hefur nú skilað sér „heim“ þ.e.
hafið störf sem lektor við heilbrigðisdeild H.A. Helga
Sif Friðjónsdóttir, hjúkrunarfræðinemi á 3. ári,
sýndi afmælisgestum dagbók hjúkrunarfræðinemans
í örhtlum spéspegli.
I ávarpi sínu rakti dr. Þorsteinn Gunnarsson,
rektor H.A., uppbyggingu skólans frá stofnun 1987.
Dr. Sigríður llalldórsdóttir, forstöðumaður heil-
brigðisdeildar, sagði að varla hefði verið hægt að
halda betur upp á 10 ára afmælið en með með stofn-
un námsljrautar í iðjuþjálfun við deildina á árinu,
jafnframt því að efna til náms til meistaragráðu í
hjúkrunarfræði í samvinnu við Manchesterháskóla. 1
ávarpi sínu vakti hún athygli á hve hjúkrunarfræði-
kennurum með meistaragráðu eða meira hefði fjölg-
að við deildina, en sjálf var hún eini hjúkrunarfræð-
ingurinn með ineistaragráðu fram til 1995. Nú hefur
Sigríður lokið doktorsprófi og finmi hjúkrunarfræð-
ingar við deildina hafa meistaragráðu, þær Arún K.
Sigurðardóttir, Elsa B. Friðfinnsdóttir, Ilelga Lára
Helgadóttir, Ingibjörg Þórhallsdóttir og Sía Jóns-
dóttir. Auk þess eru fjórir lektorar deildarinnar í
fjarnámi til meistaragráðu við Manchesterháskóla i
Bretlandi, þau Hafdís Skúladóttir, Hólmfríður
Kristjánsdóttir, Magnús Olafsson og Sigfríður Inga
Karlsdóttir. Þetta þýðir að innan árs verða væntan-
lega 10 kennarar við deildina með meistaragráðu eða
meira í hjúkrunarfræði.
Það var merkur áfangi sem náðist í haust er hafið
var nám í iðjuþjálfun við heilbrigðisdeild H.A. Er
Jiað í fyrsta skipti sem hægt er að stunda náin í
iðjuþjálfun á Islandi. Guðrún Pálmadóttir og
Snæfríður Þóra Egilson, iðjuþjálfar og lektorar,
gerðu stuttlega grein fyrir hugmyndafræði iðjuþjálf-
unar og markmiðum með stofnun iðjuþjálfunar-
brautar við skólann. Þá gerðu Jiær grein fyrir upp-
byggingu námsins og belstu áherslum. Þar er gengið
út frá |iví að fólk sé í eðli sínu virkt og haldið at-
hafnaþörf. Þessari þörf fái það fullnægt með margs
konar iðju sem veitir tilgang, ýtir undir alhliða
Jjroska og eykur færni en að iðjuleysi geti verið skað-
legt heilsu og dregið úr Jjroskamöguleikum. Iðjujvjálf-
ar leitast við að nálgast mannlega erfiðleika á heild-
rænan hátt og beita til Jiess íhlutun sem felur í sér
[ijálfun, fræðslu og ráðgjöf. Mikill áhugi er fyrir
námi í iðjuþjálfun og hófu 40 nemendur nám í haust.
Vegna takmarkaðra námsplássa í verklegu náini
munu einungis 15 þeirra fá að hefja nám á vormisseri
1. árs.
Á afmælishátíðinni voru einnig kynnt þrjú loka-
verkefni til B.Sc.-prófs í hjúkrunarfræði, sem unnin
voru vorið 1997. Það voru verkefnin:
• Starfssvið hjúkrunarfræðinga: Ilin ósýnilega stétt
• Lífið snýst um neytandann: Upplifun mæðra af
því að eiga ungling í vímuefnavanda
• Stoð í erfiðri stöðu: Reynsla foreldra barna með
fötlun af samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk.
Að kvöldi afmælisdagsins var efnt til hátíðar-
kvöldverðar á Fiðlaranum og var kvöldstundin vel
heppnuð og gleði ríkti þar sem annars staðar Jiennan
ágæta dag.
Elsa B. Friðfinnsdóttir
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5.TBL.73.ÁRG. 1997
283