Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1997, Blaðsíða 37
A döfinni
Bráðahjúkrunarfræðingar
Stofnfundur fagdeiidar bráðahjúkrunarfræðinga
verður haldinn fimintudaginn 15. janúar 1998
kl. 20.00 í húsnæði Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, Suðurlandsbraut 22, 3. hæð. Hjúkrunar-
fræðingar sem vinna á bráðamóttöku eða hafa áhuga
á bráðahjúkrun eru hvattir til að mæta.
U ndirbúningsnefnd
Greiðslur í
Vinnudeilusjóð
Greiðslur hefjast í Vinnudeilusjóð Félags íslenskra
hjúkrunarfrœðinga frú og með 1. janúar 1998
Á fulltrúaþingi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
15. og 16. maí 1997 var samþykkt tillaga frá full-
trúum í kjaranefnd félagsins þess eðhs að hjúkrunar-
fræðingar myndu greiða 0,3% af heildarlaunum
sínum í Vinnudeilusjóð Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga frá og með 1. janúar 1998.
Samkvæmt reglugerð um Vinnudeilusjóð Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga er tilgangur sjóðsins að
greiða kostnað við vinnudeilur félagsmanna. Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga á nú um 18 milljónir
króna í vinnudeilusjóði og Ijóst er að þessi fjárhæð
dugar skammt ef til vinnudeilna kemur hjá
hjúkrunarfræðingum. Þessi fjárhæð myndi t.d. ein-
ungis duga til að greiða hverjum hjúkrunarfræðingi
sem nú er í starfi einu sinni 8.500 kr. Það er hins
vegar mikill stuðningur bæði fyrir samninganefnd
félagsins á hverjum tíma og hjúkrunarfræðinga að
geta vísað til þess að félagið eigi öílugan verkfallssjóð
ef til vinnudeilna kemur.
Hildur Einarsdóttir
Rannsókna- og
visindasjóður
hj ukrunarfræ ðinga
Úthlutun styrkja
Rannsókna- og vísindasjóður hjúkrunarfræðinga var
stofnaður 1987 af Maríu Finnsdóttur, þáverandi
fræðslustjóra lljúkrunarfélags Islands.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja hjúkrunarfræð-
inga til rannsókna- og vísindastarfa í hjúkrunarfræð-
um hér á landi. Styrkveiting miðast við stuðning á
öllum stigum rannsóknarvinnu. Ekki er veitt úr
sjóðnum í tengslum við nám.
I stjórn sjóðsins, sem skipuð er af stjórn Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga, á sæti María Finnsdótt-
ir, formaður, ásamt Onnu Birnu Jensdóttur og Stef-
aníu Sigurjónsdóttur, meðstjórnendum. Stjórn sjóðs-
ins hefur á hendi alla framkvæmd styrkveitinga og
reikningshald sjóðsins.
Stofnfé sjóðsins var 100 þús. kr. og tekjur hans
áætluð frjáls framlög. Stjórn sjóðsins lét útbúa lykla-
kippur með merki Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga og rennur ágóði af sölu þeirra til sjóðsins.
Næst verður veitt úr sjóðnum í árslok 1997.
Umsóknarfrestur til að sækja um styrk úr sjóðnum
er til 15. desember 1997 og fást umsóknareyðu-
blöð á skrifstofu Félags íslenskra hjúki'unarfræðmga.
Þjóðráð safnar auglýsingum
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur gert
samning við nýjan aðila um að safna auglýsingum
fyrir tímaritið.
Hænir sf. útgáfuþjónusta. sem hefur safnað
auglýsingum fyrir tímaritið, handbókina og l’l. á
vegum félagsins undanfarin 2 ár, hættir störfum
fyrir blaðið Irá og með áramótum nk.
Félagið hefur í staðinn gert samning við Þjóð-
ráð ehf. markaðsþjónustu um að safna auglýsing-
um fyrir tímaritið og etv. önnur verkefni. Þjóðráð
liefur störf fyrir félagið um áramótin og sér því um
að alla auglýsinga í fyrsta tölublað tímaritsins á
næsta ári sem áætlað er að komi út í byrjun
febrúar.
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA
5.TBL. 73.ÁRG. 1997
285