Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Page 50
Balint -
ritgerðarsamkeppnin
Balint-ritgerðarsamkeppnin hefur verið haldin árlega
síðan 1991 til minningar um Michael Balint, ung-
verskan geðlækni og sálgreini sem starfaði í Englandi.
Hann var frumkvöðull í samskiptamiðaðri umönnun hjá
Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.
Verðlaunin eru veitt af svissneska Rauða krossinum og
„Foundation for Psychosomatic and Social Medicine" í
Ascona í Sviss. Verðlaunaféð er 8000 svissneskir
frankar eða um 400 þúsund íslenskar krónur. Þátttaka
miðast við heilbrigðisstarfsfólk, s.s. hjúkrunarfræðinga,
Ijósmæður, iðju- og sjúkraþjálfara en ekki lækna og
sálfræðinga.
Ritgerðirnar, sem mega í mesta lagi vera 20 síður (30
línur á síðu og 60 stafir í línu), þurfa að innihalda
eftirfarandi kafla :
1. Kynning þar sem höfundur lýsir persónulegri reynslu
af sambandi við sjúkling/skjólstæðing, þróun þess
sambands og því starfsumhverfi sem það á sér stað í.
2. Greining og hugleiðingar: Höfundur greinir hegð-
un sína í sambandinu, hegðun sjúklingsins/skjól-
stæðingsins og samskipti þeirra. Þessi greining nær
yfir tilfinningalegan þátt sambandsins, tilgang og af-
leiðingar.
3. Lærdómur og niðurlag: Höfundur útskýrir hvað
hann lærði af sambandinu og hvaða ályktanir hann
dró af því.
Skilafrestur er til 28. febrúar 1999.
Þrjú eintök af hverri ritgerð á þýsku, frönsku, ítölsku
eða ensku þarf að senda til:
The Swiss Red Cross
Department of Vocational Education
Pro Balint
Werkstrasse 18
CH-3084 Wabern
Switzerland
Guðrún Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, var meðal
verðlaunahafa árið 1996. Hún skrifaði grein um ritgerð-
ina í septemberhefti Tímarits hjúkrunarfræðinga 1997.
Veggspjald
fyrir alþjóðadag
hjúkrunarfræðinga
Alþjóðasamband hjúkrunarfræðinga býður hjúkrunar-
fræðingum að taka þátt í samkeppni um að hanna
veggspjaid fyrir alþjóðadag hjúkrunarfræðinga árið
2000. Sigurvegarinn fær ókeypis aðgang að ráð-
stefnu Alþjóðasambandsins í Kaupmannahöfn í Dan-
mörku árið 2001 og 500 svissneska franka (25.000
krónur) upp í útgjöld vegna ferðarinnar.
Skilaboð veggspjaldsins eiga að vera „Hjúkrunar-
fræðingar - ávallt til reiðu fyrir þig". Það á að gefa til
kynna að hvar sem fólk er statt þá sé hjúkrunar-
fræðingur, tilbúinn til aðstoðar, ekki langt undan. Til-
gangurinn er að vekja athygli á fjölþættu framlagi
hjúkrunarfræðinga til heilbrigðisþjónustu og mann-
úðarstarfa við mismunandi aðstæður um víða veröld.
Stærð plakatsins verður að vera A4 (21 x 29,5
cm) en skila má því hvort sem er hand- eða tölvu-
unnu. Sé það gert í tölvu verður að skila disklingi
með.
Frestur til að skila hugmyndum er til 20. nóv-
ember 1998. Allar hugmyndir, sem berast, verða
eign Alþjóðasambands hjúkrunarfræðinga sem áskilur
sér rétt til að aðlaga hugmyndirnar eftir þörfum.
Sendist til :
Tesfamicael Ghebrehiwet
ICN
3 Place Jean Marteau
1201 Geneva
Switzerland
242
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998