Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 33
^RífetjóvnAY'^-te.fnA ví-tittfnÁAr
Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefið út fimm sinnum á ári.
Tímaritið er málgagn félagsmanna í Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga og í því er reynt að endurspegla ólíkar
skoðanir og viðhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkrunar-
fræðinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn þess
finni þar efni sér til gagns, fróðleiks og ánægju.
Tímaritið er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar
umfjöllunar um hjúkrun. í faglega hluta tímaritsins eru birtar
margvíslegar greinar sem fjalla um öll svið hjúkrunar.
Greinar flokkast í tvennt, annars vegar er um að ræða
fræðigreinar og hins vegar fræðslugreinar. Fræðigreinar
eru rannsóknagreinar, yfirlitsgreinar og greinar sem á
ítarlegan hátt fjalla um þróun þekkingar í hjúkrun, hvort
heldur sem er hjúkrunarstarfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkr-
unarkennsla, hjúkrunarrannsóknir eða stefnumótun í hjúkr-
unar- og heilbrigðisþjónustunni. Lögð er áhersla á beitingu
margvíslegra rannsóknaraðferða, fjölbreytileika í fræðilegri
nálgun viðfangsefna og vönduð vinnubrögð. Möguleiki er
að óska eftir að fræðigreinar verði ritrýndar.
Við umfjöllun greina, sem óskað hefur verið eftir að
verði ritrýndar, fylgir ritnefnd reglum sem fram koma í
Handbók sálfræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og
Júlíus K. Björnsson og gefin var út af Sálfræðingafélagi
íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ítarlegar
leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum
tímaritsgreinum. í handbókinni er einnig að finna upplýs-
ingar um vinnulag við umfjöllun á handriti sem óskað hefur
verið eftir að sé ritrýnt og fylgir ritnefnd þeim leiðbein-
ingum. Höfundar þurfa að fylgja þessum reglum í hvívetna
en eru hvattir til að ráðfæra sig við ritnefnd ef þörf er á að
víkja frá settum reglum.
í örfáum atriðum víkur ritnefnd frá leiðbeiningum Hand-
bókar sálfræðiritsins. Þau eru: Höfundar fá ekki sérprent-
aðar tímaritsgreinar sínar en fá aukaeintök af viðeigandi
tímariti. Til að auðvelda flokkun efnis skulu fylgja með
greinunum þrjú lykilorð. í handbókinni er megináhersla á
megindlegar rannsóknir, einkum tilraunir. Tímarit hjúkrunar-
fræðinga bindur sig hins vegar ekki við megindlegar rann-
sóknir og er fengur að greinum sem hafa margvíslegar
aðferðafræðilegar nálganir.
Fræðslugreinar fjalla hins vegar um margvísleg viðfangs-
efni hjúkrunar og byggjast að einhverju leyti á fræðilegum
heimildum ásamt athugunum og/eða reynslu höfunda. Þar
skiptir miklu frumleiki í umfjöllun og efnistökum, menn-
ingarlegur margbreytileiki í hjúkrun og þróun hjúkrunar. í
blaðinu er einnig að finna viðtöl við fólk um hjúkrun og aðrar
faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga.
í félagslega hluta tímaritsins eða fréttahlutanum er
greint frá kjaramálum og því sem er að gerast hjá félaginu.
Þar er einnig að finna fréttir frá svæðanefndum félagsins.
Einnig er greint frá því helsta sem er á döfinni hjá fagdeildum
félagsins.
Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur tíma-
ritsins sé í samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Ritstjóri
ásamt ritnefnd leggur metnað í að tímaritið sé vandað að
því er varðar efni, málfar og útlit. Áhersla er lögð á að
fræðigreinar standist vísindalegar kröfur.
Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess
öðru en aðsendum greinum. Höfundar aðsendra greina
bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir, sem í þeim birtast,
þurfa ekki að samrýmast stefnu Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga.
Leiðbeiningar til höfunda tímaritsgreina
Tímaritsgreinar eru sendar til Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Einn
höfundanna þarf að vera ábyrgur fyrir samskiptum við
tímaritið og nafn hans þarf að koma fram í bréfi sem sent
er með handritinu.
Frágangur handrits
Við ritun greina þurfa höfundar að styðjast við Handbók sál-
fræðiritsins eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson
sem gefin var út af Sálfræðingafélagi íslands í Reykjavík árið
1995. í handbókinni eru ítarlegar leiðbeiningar um hvernig
skrifa eigi handrit að fræðilegum tímaritsgreinum.
Á forsíðu handritsins þarf að koma fram heiti tímarits-
greinarinnar, nafn/nöfn höfundar/höfunda; vinnustaður/vinnu-
staðir höfunda(r); heimilsfang og símanúmer þess höfundar
sem er ábyrgur fyrir samskiptum við tímaritið. Útdráttur, sem
er á annarri blaðsíðu, á að vera 100-150 orð.
Lengd tímaritsgreinar skal vera 3000-5000 orð. Hand-
ritið í heild sinni ásamt texta, myndum, töflum o.s.frv. skal
vera með tvöföldu línubili. Öll handrit skulu send inn í
þremur eintökum sem ekki eru með nafni höfunda(r).
Handrit skulu ekki hafa birst annars staðar þegar óskað er
eftir því að þau séu ritrýnd.
Útgáfuferli
Þegar handrit berst til ritstjóra er haft samband við þann
höfund sem er ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra og
honum tilkynnt skriflega að greinin hafi borist. Þegar óskað
er eftir birtingu greinar lesa fulltrúar í ritnefnd handritið og
ákveða hvort það verður sent til umsagnar. Stuðst er við
þau viðmið sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins við
mat á tímaritsgreinum.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 77. árg. 2001
113