Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 49

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 49
%fflananna forsé^du': ,] sem ffæðigreinar. Hún ‘\4X'Á ■< ; -- • tímamótum við stofnun Ársfundur Rannsóknarstofnunap-^DRfTffiFfflajB fvar 'ftfald- inn þriðjudaginn 13. mars í húsnæði hjúkrunarfræðideildar í Eirbergi, Eiríksgötu 34. Efni fundarins var samstarf hjúkrunarfræðideildar og Landspítala-háskólasjúkrahúss. j Helga Jónsdóttir, formaður stjórnar Rannsóknarstofnunar í hjúkrunarfræði, setti fundinn. Þá ræddi Páll Skúlason, háskólarektor, um samstarf Háskóla íslands og Landspítala-háskólasjúkrahúss. Til að það yrði sem farsælast sagði hann að til staðar yrðu að vera skýr sameiginleg markmið, viðurkenning á sérstöðu hvorrar stofnunar og vilji til samstarfs. Hann ræddi m.a. hvað felst I hugtökunum háskóli og sjúkrahús og þrjú meginhlutverk sem háskólasjúkrahús hefði. Það væri í fyrsta lagi að tryggja að nemendur í heilbrigðisfræðum hefðu viðeigandi aðstöðu til að stunda sitt nám. Þá þyrfti háskólasjúkrahús að vera virkt í rannsóknum og í þriðja lagi þyrfti að tryggja að háskólafólk hefði góða aðstöðu til vinnu. Háskólasjúkrahús væri ein stofnun og í hugtakinu og sameiningunni fælist ný hugsun sem myndi halda áfram að mótast. Marga Thome, forseti hjúkrunarfræðideildar, talaði um framtíðarsýn hjúkrunarfræðideildar og nefndi þar m.a. að meðal mikilvægustu verkefna væri að efla hjúkrunarþjón- ustu, rannsóknir og kennslu. Hún lagði áherslu á að hjúkr- unar- og Ijósmóðurfræði, sem væru meðal tveggja yngstu fræðigreina háskólans, væru starfsmiðaðar greinar og þekking væri það lykilorð sem rannsóknir snerist um og auðlind sem ekki mætti sóa. Þá fjallaði Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala-háskólasjúkrahúss, um Landspítala- háskólasjúkrahús og háskólahugtakið og nefndi í því sambandi helstu markmið spítalans sem eru annars vegar þjónusta við skjólstæðinga og hins vegar þekkingaröflun og þekkingarmiðlun skjólstæðingum til hagsbóta. Hann lagði áherslu á að óformlegt samstarf hefði verið milli stofnananna lengi en með samningnum væri verið að koma á hagræðingu varðandi stjórn og skipulag og unnið væri að sameiginlegri stefnu varðandi vísindi og rannsóknir. Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóri Landspítala- háskólasjúkrahúss, ræddi m.a. um gagnkvæm starfstengsl hjúkrunarfræðideildar og Landspítala-háskólasjúkrahúss. : sagði^H___________________ áframhaldandi þróunar hjukrunar sagói hjúkrunárfræðinga standa á ■ ,r. "■?.' "-vrÁÍi^ju, •' - ’ - . - hjúkrunarfræðideildar og háskólasjúkrahúss og! kynnti hugmyndir sem komið hafa fram um samstarf. Þá fjallaði Gísli Einarsson, framkvæmdastjóri Skrifstofu kennslu og fræða, Landspítala-háskólasjúkrahúsi, um jafnrétti til kennslu og rannsókna á háskólasjúkrahúsi, sem byggðist m.a. á menntun starfsfólks, formlegri stöðu, aðstöðu, aðgengi að vísindastyrkjum, vísindastefnu og tækni. Helga Jónsdóttir, formaður stjórnar Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, fjallaði um hjúkrunarrannsóknir sem auðlind á háskólasjúkrahúsi og sagði m.a. að rannsókn Maríu Finnsdóttur 1984 hefði markað upphaf hjúkrunarrannsókna hér á landi, en síðan hefði mikið vatn runnið til sjávar og í dag mætti skipta hjúkrunarrannsóknum í þrjú svið, í fyrsta lagi rannsóknir sem tengjast hjúkrunarstarfinu, í öðru lagi lýsingar á líðan og einkennum sjúklinga og í þriðja lagi með- ferðarrannsóknir. Hún lagði áherslu á að viðfangsefni rann- sókna spryttu fram í daglegu starfi og því þyrfti rannsakandi að vera í góðum tengslum við starfsvettvanginn. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, sérfræðingur á Rann- sóknarstofnun í hjúkrunarfræði og verkefnisstjóri á barnasviði Landspítala-háskólasjúkrahúsi var síðust á mælendaskrá og fjallaði um samþættingu rannsókna og klínísks starfs. Hún sagðist m.a. vera í hópi fyrstu nemenda sem útskrifuðust úr meistaranámi frá HÍ og hefðu þær allar mikinn áhuga á að nýta hæfileika sína í starfi, halda áfram rannsóknum og þróa þannig þekkingargrunn íslenskra hjúkrunarfræðinga. Þá voru veittar viðurkenningar fyrir framlag til hjúkrunar- rannsókna. María Finnsdóttir fékk viðurkenningu fyrir fyrstu rannsókn sem hjúkrunarfræðingur gerir hér á landi og Sóley S. Bender, sem er að vinna að doktorsrannsókn, fékk hvatningarverðlaun fyrir góðan árangur í rannsóknum á undanförnum árum en hún vinnur rannsóknir á ýmsum sviðum kynheilbrigðis. Að loknu kaffi voru pallborðs- umræður sem framsögufólk tók þátt í en stjórnandi umræðna var Erla Kolbrún Svavarsdóttir, dósent. Fundar- stjóri var Ólöf Ásta Ólafsdóttir, lektor. -vkj 129 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 77. árg. 2001
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.