Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 45
Helga Birna Ingimundardóttir
hagfræðingur
Réttíndi og skyldur starfsmanna
^Re^kjAuíkuY’boY'^AY'
Kæru hjúkrunarfræðingar.
Hér á eftir birtist samkomulag milli
Reykjavíkurborgar annars vegar og
aðildarfélaga BSRB, Bandalags
háskólamanna og Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga hins vegar um
réttindi og skyldur starfsmanna
Reykjavíkurborgar. Samkomulagið
var undirritað 27. febrúar 2001 og samþykkt í borgarráði
6. mars sl., frá og með 1. mars 2001. Samkomulagið
leysir af hólmi eldri reglugerð um réttindi og skyldur
starfsmanna Reykjavíkurborgar. Þetta er hliðstætt við
reglur og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Af efnislegum nýmælum, sem felast í samkomulaginu, má
nefna lengdan uppsagnarfrest starfsmanna 55 ára og
eldri, sem hafa 10 ára samfelldan starfsaldur hjá
Reykjavíkurborg. Einnig hefur verið skerpt á ákvæðum um
að auglýsa störf og efni slíkra auglýsinga. Þá er sam-
kvæmt samkomulaginu sett á fót sérstök samráðsnefnd
sem skipuð er fulltrúum BSRB og Bandalags háskóla-
manna annars vegar og fulltrúum Reykjavíkurborgar hins
vegar. Skal hún taka til umfjöllunar mál sem snerta
félagsmenn tiltekins félags og fjalla um túlkun og útfærslu
einstakra ákvæða samkomulags þessa.
SAMKOMULAG
Reykjavíkurborgar annars vegar og
aðildarfélaga BSRB og BHM og Félags íslenskra
leikskólakennara hins vegar um réttindi og skyldur
starfsmanna Reykjavíkurborgar
1. gr. Gildissvið
Samkomulag þetta tekur til allra starfsmanna Reykjavíkur-
borgar sem eru félagsmenn í aðildarfélögum innan BSRB
og BHM og Félagi íslenskra leikskólakennara sem heyra
undir lög nr. 94/1986.
2. gr. Um auglýsingu starfa
Það er skylda stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar að
auglýsa öll laus störf laus til umsóknar á opinberum
vettvangi. Skal það gert með 14 daga fyrirvara að jafnaði.
Þó er ekki skylt að auglýsa afleysingastörf vegna
fæðingarorlofs eða veikinda eða störf þar sem ráðning
skal standa 12 mánuði eða skemur, tímavinnustörf, störf
nema eða störf unglinga í vinnuskóla. Ef borgaryfirvöld líta
svo á að ráða skuli í stöðu með uppfærslu innan
starfsgreinarinnar eða frá hliðstæðum starfsgreinum skal
staðan auglýst á þeim vettvangi einum.
í starfsauglýsingu skal að lágmarki tilgreina:
1) Starfsheiti, starfstegund eða eftir atvikum stutta
starfslýsingu.
2) Starfshlutfall ef ekki er um fullt starf að ræða.
3) Kröfur sem gerðar eru til starfsmanns.
4) Starfskjör í boði s.s. með orðunum „eftir hlutaðeigandi
kjarasamningi opinberra starfsmanna".
5) Hver veitir nánari upplýsingar um starfið.
6) Hvert umsókn á að berast.
7) Hvenær starfsmaður skuli hefja starf.
8) Hvort umsókn eigi að vera á sérstöku eyðublaði og ef
svo er hvar sé hægt að fá það.
9) Kröfur um gögn - ef einhver eru - sem eiga að fylgja
umsókn.
10) Umsóknarfrest.
3. gr. Ráðning starfsmanna
Ráðning á að byggjast á hæfni viðkomandi til að inna starfið
vel af hendi og skal sá hæfasti ganga fyrir. Starfsmenn
Reykjavíkurborgar skulu almennt ráðnir til starfa ótíma-
bundið með gagnkvæmum uppsagnarfresti. Reynslutími er
þrír mánuðir. Heimilt er þó í undantekningartilvikum að
semja í ráðningarsamningi um allt að 5 mánaða reynslutíma.
Heimilt er að ráða starfsmann til starfa tímabundið og
er unnt að taka fram í ráðningarsamningi að segja megi
slíkum samningi upp af hálfu annars hvors aðilans áður en
ráðning fellur sjálfkrafa úr gildi við lok samningstíma.
Tímabundin ráðning skal þó aldrei vara samfellt lengur en í
2 ár. Ef stofnun eða fyrirtæki vill ráða starfsmann lengur
skal það gert með ótímabundnum ráðningarsamningi.
4. gr. Ráðningarsamningar
Skriflegur ráðningarsamningur skal gerður við starfsmann
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 77. árg. 2001
125