Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 30
fólk að því sem vísu hvað það er og sér þar af leiðandi
umheim sinn og bregst við honum á forsendum gildismats
síns. Því miður er það svo á Stóra-Bretlandi að enn þá er
um að ræða „hvíta miðstéttarnálgun" sem er mjög
ósveigjanleg gagnvart breytingum og mismunar ómeðvitað
fólki með ólíkan menningarlegan bakgrunn. Um er að ræða
eins konar innbyggða fordóma sem fólk gerir sér yfirleitt ekki
grein fyrir og sem hafa að einhverju leyti óhjákvæmileg áhrif
á umhyggju. Þetta er almenn alhæfing. íhygli hjálpar fólki til
að draga fram og vinna úr þessum fordómum og að læra
að þekkja sjálft sig sem umhyggjusaman einstakling.
Á líknarheimilinu, þar sem ég vinn, eru engir hjúkrunar-
fræðingar eða starfsfólk ættað frá Kasmír en þó búa
hvergi á Stóra-Bretlandi fleiri frá Kasmír en einmitt í Luton.
Fólk ættað frá Kasmír nýtir sér heldur ekki hjúkrunar-
heimilið nema þeir sem breskastir eru orðnir.
Umhyggja skiptir án efa miklu máli í lífi þeirra sem við
höfum afskipti af. Umhyggja felur í sér mikla ábyrgð, ekki
við að kveikja og slökkva á tæknibúnaði heldur við að
opna fólki leið til tilvistar. Rannsóknir Sigríðar sýna að
skortur á umhyggju getur leitt til aukinna þjáninga og því
verðum við stöðugt að minna okkur á hlutverk okkar sem
umhyggjuaðila, að bera merki starfsgreinar okkar af stolti,
að muna arfleifð okkar við umhyggju og að láta ekki villast
af leið þótt ástandið sé erfitt. Við verðum að læra að
annast um okkur sjálf til þess að styrkja okkur sem
umhyggjuaðila og að bægja frá þeim svikasendingum sem
skaða umhyggjuþáttinn í okkur. Einnig þarf, vegna
rannsókna okkar og námsefnis, að hafa í huga að kjarni
hjúkrunarstarfsins er umhyggja. Ef umhyggjan hverfur,
hverfur sjálfið." -vjk
FAGMENNS KA í FYRIRRÚMI
Frœðsluráðstefna heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri og
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri 21. - 23. maí 2001 á Akureyri
Ráðstefnudagskrá
Mánudagurinn 21. maí, 2001 kl. 12.00- 16.30
Kynning á B.S. verkefnum nemenda í hjúkrunarfrœöi við heilbrigðisdeild HA (heiti erindanna birt með fyrirvara)
11.00-12.45 Skráning í HA
13.00-13.10 Setning ráðstefnunnar
13.10-13.30 Upplifun hjúkrunarfræðinema af verklegu námi Björg Aradóttir, Ásta Baldursdóttir, Kolbrún Sigurlásdóttir
13.30-13.50 Hver er líðan einstaklings sem missir maka sinn í sjálfsvígi? Gunnhildur H. Gunnlaugsdóttir, H. Heba Theodórsdóttir, Rfkey Ferdinandsdóttir, Sólveig Hulda Valgeirsdóttir
13.50-14.20 Líðan verðandi feðra á meðgöngutímanum Ragnhildur Bjarnadóttir, Þórhildur Höskuldsdóttir, Berglind Gunnarsdóttir
14.20-14.40 Líðan foreldra sem eiga einhverf börn Hugrún Árnadóttir
14.40-15.00 Bregðumst við brjóstverk Ásdís Skúladóttir, Steingerður Örnólfsdóttir
15.00-15.30 Heilsuhressing
15.30-15.50 Tengsl ofvirkni við vímuefnaneyslu Ásthildur Bjömsdóttir
15.50-16.10 Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum Sigrún Sigurðardóttir
16.10-16.30 Tengsl listmeðferðar við hjúkrunarfræði Erla Björk Birgisdóttir
110
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 77. árg. 2001