Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 52

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 52
Markmið 6 - Bætt geðheilbrigði Evrópumarkmið: Árið 2020 verði andleg og félagsleg vellíðan fólks meiri, þjónusta víðtækari og aðgengilegri fólki með geðræn vandamál. íslensk markmið til 2010: 1. Dregið verði úr tíðni geðröskunar um 10%. 2. Dregið verði úr tíðni sjálfsvíga um 25%. 3. Geðheilbrigðisþjónusta nái árlega til 2% barna og unglinga 18 ára og yngri, óháð búsetu. 4. Bætt verði aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og meðferðarrúrræðum fjölgað. Markmið 7 - Dregið verði úr smitsjúkdómum Evrópumarkmið: Árið 2020 verði búið að draga verulega úr skaðlegum afleiðingum smitsjúkdóma og með skipulegum aðgerðum búið að útrýma, einangra eða hamla gegn sóttnæmum sjúkdómum sem þýðingu hafa fyrir heilbrigðisástandið. íslensk markmið til 2010: 1. Viðhaldið verði öflugum forvörnum gegn smitsjúk- dómum með ónæmisaðgerðum. 2. Rauðum hundum og hettusótt verði útrýmt. 3. Dregið verði úr nýgengi klamidíu um 50%. 4. Bætt verði og aukin kögun á smitsjúkdómum með skipulegri skráningu, markvissum viðbrögðum og sam- vinnu við erlenda aðila. 5. Dregið verði úr ónæmi sýkla gegn sýklalyfjum. 6. Eflt verði upplýsingastarf og fræðsla fyrir almenning og fagfólk um farsóttir og sóttvarnir. Markmið 8 - Dregið verði úr lang- vinnum sjúkdómum Evrópumarkmið: Árið 2020 verði búið að draga eins og mögulegt er úr dánartíðni, örorku og ótímabærum dauðsföllum af völdum langvinnra sjúkdóma á Evrópusvæðinu. íslensk markmið til 2010: 1. Dregið verði úr dánartíðni vegna hjarta- og æðasjúk- dóma hjá aldurshópnum 25-74 ára: um 20% hjá körlum og 10% hjá konum. 2. Dregið verði úr dánartíðni vegna krabbameina hjá fólki yngra en 75 ára um 10%. 3. Dregið verði áfram skipulega úr veikindum, örorku og dánartíðni vegna öndunarfærasjúkdóma, stoðkerfis- vandamála og annarra langvinnra sjúkdóma um þriðjung. Markmið 9 - Dregið verði úr ofbeldi og slysum Evrópumarkmið: Árið 2020 verði búið að draga verulega og varanlega úr meiðslum, örorku og dauða sem orsakast af slysum og ofbeldi á Evrópusvæðinu. íslensk markmið til 2010: 1. Dánartíðni og örorka vegna umferðarslysa lækki um a.m.k. 25%. 2. Dánartíðni og örorka vegna slysa á vinnustað, heimilum og í skóla lækki um 25%. 3. Dregið verði úr tíðni og dauðsfölllum vegna heimilis- ofbeldis, kynferðissofbeldis og annars ofbeldis um 25%. Markmið 10 - Heilsusamlegt og öruggt umhverfi Evrópumarkmið: Árið 2020 lifi fólk á Evrópusvæðinu í öruggara umhverfi, standi ekki varnarlaust gagnvart eiturefnum sem eru hættuleg heilsunni og fylgt verði alþjóðlega viðurkenndum öryggisstöðlum. íslensk markmið til 2010: 1. Framlög til heilbrigðisrannsókna verði tvöfölduð. 2. Gerð verði landsáætlun í umhverfis- og heilbrigðismál- um (NEHAP). 3. Skipulegt mat verði reglulega gert á áhrifum umhverfis- þátta og vinnuaðstæðna á heilsufar fólks. Markmið 11 - Heilbrigðari lífshættir Evrópumarkmið: Árið 2015 hafi fólk í öllum þjóðfélagsstéttum tamið sér heilbrigðari lífshætti. íslensk markmið til 2010: 1. Stuðlað verði að þvi að fólk neyti sem fjölbreyttastrar Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 2. tbl. 77. árg. 2001 132
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.