Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 36
J-tjómun mk^tuv i k&ilbYÍ^ðisþjón.us'tu
- endurmenntun sem ber ávöxt
Þríggja missera hagnýtt nám í Stjórnun og rekstri í heil-
brigðisþjónustu hefst á hausti komanda hjá Endurmennt-
unarstofnun HÍ. Þetta er í fjórða sinn að boðið er upp á
þetta nám hér á landi en það er skipulagt í samstarfi við
Norræna heilbrigðisháskólann í Gautaborg. Námið er
ætlað háskólamenntuðu fólki sem starfar í heilbrigðisþjón-
ustu og vill afla sér þekkingar um rekstur, stjórnun og
stefnumótun. Þegar hafa 83 heilbrigðisstarfsmenn lokið
þessu námi. Þar af eru flestir hjúkrunarfræðingar og
læknar, en meðal brautskráðra eru einnig meinatæknar,
röntgentæknar, lyfjafræðingar, tannlæknar, sálfræðingar,
félagsráðgjafar, iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar.
Nám í Stjórnun og rekstri í heiibrigðisþjónustu jafngildir
15 háskólaeiningum og eru kennarar íslenskir og erlendir
sérfræðingar m.a. í heilsuhagfræði, skipulags- og stjórn-
unarfræðum, starfsmannastjórnun, gæðastjórnun, fjár-
LANDSPÍTALI
HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
Á Landspítala - háskólasjúkrahúsi gefst nýútskrifuðum
hjúkrunarfræðingum tækifæri til að leggja grunn að
starfsferli sínum.
Fjölmargar starfsþróunarleiðir bjóðast í samvinnu við
starfsþróunarráðgjafa. Góð starfsaðlögun, fræðsla og handleiðsla.
Upplýsingar gefur Hrafii Óli Sigurðsson starfsþróunar-
ráðgjafi í síma 560 1485. Netfang hrafnsig@landspitali.is
Á Landspítala -háskólasjúkrahúsi er lögð áhersla á framsækið
kennslu og vísindastarf. Þar gefst hjúkrunarfræðingum tækifæri
til að taka þátt í þróun gæðastarfs á fjölmörgum sviðum
klínískrar hjúkrunar auk rannsókna og fræða í starfsgreininni.
Hjúkrunarfræðingar óskast í fastar stöður og sumarafleysingar á
ýmsar deildir. Góður aðlögunartími með reyndum
hjúkrunarfræðingum. Starfshlutfall og vaktir eftir samkomulagi.
Upplýsingar á sltrifstofu hjúltrunar, Hringbraut í síma 560
1300 og sltrifstofú hjúltrunar, Fossvogi í síma 525 1223.
Einnig gefur Lilja Stefánsdóttir aðstoðarmaður
hjúltrunarforstjóra upplýsingar í si'ma 560 1302.
Netfang liljaste@landspitali.is
málafræðum, upplýsingatækni, forvömum og siðfræði.
Meðal kennara að þessu sinni er Philip Jacobs, prófessor í
heilsuhagfræði við Háskólann í Alberta í Kanada, og
Guðjón Magnússon, rektor Norræna heilbrigðisháskólans.
Fimm manna stjórn skipuleggur námið og er hún
skipuð Sigurði Guðmundssyni, landlækni, Guðjóni
Magnússyni, rektor Norræna heilbrigðisháskólans í Gauta-
borg, Guðrúnu B. Yngvadóttur hjá Endurmenntunar-
stofnun HÍ, Kristjáni Jóhannssyni, lektor við viðskipta- og
hagfræðideild HÍ, og Brynju Guðmundsdóttur, meinatækni
hjá heilbrigðisdeild Tækniskóla íslands.
Fyrirhugað er að bjóða upp á fjarkennslu í þessu námi
á Akureyri ef þátttaka verður næg.
Umsóknarfrestur rennur út 10. maí nk.
Frekari upplýsingar eru á vefsetri Endurmenntunar-
stofnunar HÍ, www.endurmenntun.is.
ytlkókól
- veldur flestum dauðsföllum
meðal ungra manna í Evrópu
Eitt af hverjum fjórum dauðsföllum evrópskra karl-
manna á aldrinum 15-29 ára má rekja til áfengis-
neyslu. Á sumum svæðum í Austur-Evrópu er
hlutfallið jafnvel hærra eða einn af hverjum þremur.
Árið 1999 létust alls 55.000 ungmenni í aðildarríkjum
WHO af atvikum eða sjúkdómum sem rakin voru til
áfengisneyslu. Þessar upplýsingar komu m.a. fram á
ráðstefnu um ungt fólk og áfengisneyslu sem haldin
var í Stokkhólmi í febrúar sl. en ráðstefnuna sóttu
heilbrigðisráðherrar frá því 51 landi sem aðild á að
Evrópudeild WHO sem og fulltrúar ungmenna og
stofnana er láta sig málið varða. í opnunarræðu sinni
sagði dr. Gro Harlem Brundtland, aðalframkvæmda-
stjóri WHO, m.a. að á undanförnum 10-15 árum væri
sífellt meira höfðað til ungs fólks við markaðssetningu
áfengis og það veittist ungu fólki því erfitt að halda sig
frá því. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna eru á
heimasíðu WHO, www.youngalcohol.who.dk.
116
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 77. árg. 2001