Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Qupperneq 36

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Qupperneq 36
J-tjómun mk^tuv i k&ilbYÍ^ðisþjón.us'tu - endurmenntun sem ber ávöxt Þríggja missera hagnýtt nám í Stjórnun og rekstri í heil- brigðisþjónustu hefst á hausti komanda hjá Endurmennt- unarstofnun HÍ. Þetta er í fjórða sinn að boðið er upp á þetta nám hér á landi en það er skipulagt í samstarfi við Norræna heilbrigðisháskólann í Gautaborg. Námið er ætlað háskólamenntuðu fólki sem starfar í heilbrigðisþjón- ustu og vill afla sér þekkingar um rekstur, stjórnun og stefnumótun. Þegar hafa 83 heilbrigðisstarfsmenn lokið þessu námi. Þar af eru flestir hjúkrunarfræðingar og læknar, en meðal brautskráðra eru einnig meinatæknar, röntgentæknar, lyfjafræðingar, tannlæknar, sálfræðingar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar. Nám í Stjórnun og rekstri í heiibrigðisþjónustu jafngildir 15 háskólaeiningum og eru kennarar íslenskir og erlendir sérfræðingar m.a. í heilsuhagfræði, skipulags- og stjórn- unarfræðum, starfsmannastjórnun, gæðastjórnun, fjár- LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS Á Landspítala - háskólasjúkrahúsi gefst nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum tækifæri til að leggja grunn að starfsferli sínum. Fjölmargar starfsþróunarleiðir bjóðast í samvinnu við starfsþróunarráðgjafa. Góð starfsaðlögun, fræðsla og handleiðsla. Upplýsingar gefur Hrafii Óli Sigurðsson starfsþróunar- ráðgjafi í síma 560 1485. Netfang hrafnsig@landspitali.is Á Landspítala -háskólasjúkrahúsi er lögð áhersla á framsækið kennslu og vísindastarf. Þar gefst hjúkrunarfræðingum tækifæri til að taka þátt í þróun gæðastarfs á fjölmörgum sviðum klínískrar hjúkrunar auk rannsókna og fræða í starfsgreininni. Hjúkrunarfræðingar óskast í fastar stöður og sumarafleysingar á ýmsar deildir. Góður aðlögunartími með reyndum hjúkrunarfræðingum. Starfshlutfall og vaktir eftir samkomulagi. Upplýsingar á sltrifstofu hjúltrunar, Hringbraut í síma 560 1300 og sltrifstofú hjúltrunar, Fossvogi í síma 525 1223. Einnig gefur Lilja Stefánsdóttir aðstoðarmaður hjúltrunarforstjóra upplýsingar í si'ma 560 1302. Netfang liljaste@landspitali.is málafræðum, upplýsingatækni, forvömum og siðfræði. Meðal kennara að þessu sinni er Philip Jacobs, prófessor í heilsuhagfræði við Háskólann í Alberta í Kanada, og Guðjón Magnússon, rektor Norræna heilbrigðisháskólans. Fimm manna stjórn skipuleggur námið og er hún skipuð Sigurði Guðmundssyni, landlækni, Guðjóni Magnússyni, rektor Norræna heilbrigðisháskólans í Gauta- borg, Guðrúnu B. Yngvadóttur hjá Endurmenntunar- stofnun HÍ, Kristjáni Jóhannssyni, lektor við viðskipta- og hagfræðideild HÍ, og Brynju Guðmundsdóttur, meinatækni hjá heilbrigðisdeild Tækniskóla íslands. Fyrirhugað er að bjóða upp á fjarkennslu í þessu námi á Akureyri ef þátttaka verður næg. Umsóknarfrestur rennur út 10. maí nk. Frekari upplýsingar eru á vefsetri Endurmenntunar- stofnunar HÍ, www.endurmenntun.is. ytlkókól - veldur flestum dauðsföllum meðal ungra manna í Evrópu Eitt af hverjum fjórum dauðsföllum evrópskra karl- manna á aldrinum 15-29 ára má rekja til áfengis- neyslu. Á sumum svæðum í Austur-Evrópu er hlutfallið jafnvel hærra eða einn af hverjum þremur. Árið 1999 létust alls 55.000 ungmenni í aðildarríkjum WHO af atvikum eða sjúkdómum sem rakin voru til áfengisneyslu. Þessar upplýsingar komu m.a. fram á ráðstefnu um ungt fólk og áfengisneyslu sem haldin var í Stokkhólmi í febrúar sl. en ráðstefnuna sóttu heilbrigðisráðherrar frá því 51 landi sem aðild á að Evrópudeild WHO sem og fulltrúar ungmenna og stofnana er láta sig málið varða. í opnunarræðu sinni sagði dr. Gro Harlem Brundtland, aðalframkvæmda- stjóri WHO, m.a. að á undanförnum 10-15 árum væri sífellt meira höfðað til ungs fólks við markaðssetningu áfengis og það veittist ungu fólki því erfitt að halda sig frá því. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna eru á heimasíðu WHO, www.youngalcohol.who.dk. 116 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 77. árg. 2001
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.