Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 54

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Blaðsíða 54
Markmið 17 - Fjármögnun heilbrigðisþjónustu Evrópumarkmið: Árið 2010 hafi öll aðildarríkin tryggt fjármögnun og skipt- ingu fjárveitinga til heilbrigðiskerfisins á grundvelli jafns aðgangs, hagkvæmni, samábyrgðar og mestu hugsan- legu gæða. íslensk markmið til 2010: 1. Þjónustusamningar verði gerðir við allar heiibrigðis- stofnanir landsins til þriggja ára í senn. 2. Þróun framlaga til heilbrigðisþjónustu verði ekki undir árlegum meðalvexti þjóðartekna. Markmið 18 - Mannafli í þágu heilbrigðis Evrópumarkmið: Árið 2010 skulu öil aðildarríkin hafa tryggt að allar heilbrigðisstéttir og fagstéttir í öðrum geirum samfélagsins hafi tileinkað sér viðeigandi þekkingu, viðhorf og hæfni á sviði heilsuverndar og heilsueflingar. íslensk markmið til 2010: 1. Árlega verði spáð fyrir um mannaflaþörf heilbrigðisþjón- ustunnar til næstu fimm til tíu ára. 2. Aðgangur að námi heilbrigðisstétta taki þegar mið af mannaflaþörf heilbrigðisþjónustunnar. 3. Námskrár heilbrigðisstétta taki mið af heilsuþörfum þjóðarinnar og framkvæmd heilbrigðisáætlunar. Markmið 19 - Rannsóknir og þekking í þágu heilbrigðis Evrópumarkmið: Árið 2005 skulu öll aðildar- ríkin stunda heilbrigðisrann- sóknir og hafa komið sér upp upplýsinga- og sam- skiptakerfum sem styðja betur öflun, virka nýtingu og útbreiðslu þekkingar til þess að geta framfylgt stefnu WHO um heilsu fyrir alla. íslensk markmið til 2010: 1. Framlög til rannsókna og þróunarstarfa verði a.m.k. 2% af heildarútgjöldum til heilbrigðismála. 2. Árlega verði 3-5% af fjárframlögum til heilbrigðisstofn- ana varið til kaupa og endurnýjunar á tölvum, lækn- ingatækjum og öðrum tækjabúnaði. Markmið 20 - Efling samstarfs í þágu heilbrigðis Evrópumarkmið: Árið 2005 verði búið að fá einstaklinga, hópa og skipulögð samtök til samstarfs um framkvæmd stefnumörkunar WHO um heilbrigði fyrir alla, innan opinbera geirans, einkageirans og almennt í þjóðfélaginu. íslensk markmið til 2010: 1. Unnið verði að víðtækri samfélagsþátttöku um fram- kvæmd stefnumörkunar WHO og íslensku heilbrigðis- áætlunarinnar. 2. Skipulega verði kannað á hvern hátt hver samfélags- geiri eða atvinnugrein getur lagt sitt af mörkum til þess að bæta heilsufar þjóðarinnar. Markmið 21 - Stefnumál og aðgerðir í þágu heilsu fyrir alla Evrópumarkmið: Árið 2010 skulu öll aðildarríkin vera virk í framkvæmd stefnu- mörkunar um heilbrigði fyrir alla á landsvísu og svæðis- bundið eða á staðbundnum vettvangi. Þetta starf verður að grundvallast á viðeigandi stofnananeti, stjórnkerfi og skapandi forystu. íslensk markmið til 2010: 1. Skipulags- og stjórnkerfi heilbrigðismála verði endur- skoðað með hliðsjón af stefnumörkun WHO og framkvæmd heilbrigðisáætlunarinnar. 2. Skilgreind verði frekari skammtíma- og langtímamark- mið, mælikvarðar og forgangsmál í heilbrigðismálum ásamt aðgerðum og leiðum til þess að ná settum markmiðum, sbr. skýrslu um forgangsröðun. 3. Ákvarðanir verði teknar um verkaskiptingu ríkis, lands- hluta og sveitarfélaga í heilbrigðismálum. Lokað á skrifstofunni í sumar Lokað verður vegna sumarleyfa starfsfólks á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga frá 16. júlí til 7. ágúst 2001. Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 2. tbl. 77. árg. 2001 134
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.