Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Page 9
forstjóra á Landspítala, að á meðal
hjúkrunarfræðinga erfjöldi sterkra leiðtoga
og vel menntaðra og reyndra stjórnenda.
Elsa sagði félagið þurfa að taka forustu
í málum hjúkrunar, hjúkrunarfræðinga
og heilbrigðisþjónustunnar. Lagði
hún áherslu á að félagið ynni með
stjórnvöldum þar sem árangur næst ekki
með andstöðu heldur með samvinnu.
Hún sagði stjórn félagsins telja að tilkoma
sjúkratryggingastofnunar verði til bóta
bæði fyrir þá sem þjónustunnar njóta
og þá sem hana veita. Stjórnin hefur
einnig fagnað þeim möguleikum sem
lög um heilbrigðisþjónustu frá 2007 hafa
opnað hjúkrunarfræðingum til sjálfstæðs
rekstrar og að taka að sér afmarkaða
þætti heilbrigðisþjónustunnar. Að lokum
Heiðursfélaginn Sólveig Guðlaugsdóttir umkringd hjúkrunarfræðingum af geðsviði Landspítala.
Sólveig Guðlaugsdóttir tekur á móti viðurkenningu
sem heiðursfélagi úr höndum Elsu B. Friðfinnsdóttur.
ítrekaði Elsa að stjórn Fíh leggi áherslu
á að yfir hverju sviði LSH séu sviðstjórar
lækninga og hjúkrunar og að æðstu
faglegu yfirmenn séu framkvæmdastjórar
lækninga og hjúkrunar og hefur það
að mati stjórnar Fíh reynst farsællega,
bæði með tilliti til gæða þjónustunnar og
rekstrarlegrar hagkvæmni.
Ávarp ráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðis-
ráðherra ávarpaði fundarmenn og ræddi
m.a. tækifæri í íslenskri heilbrigðisþjón-
ustu. Hann sagði að engar breytingar
verði gerðar á heilbrigðisþjónustunni
án samráðs við hjúkrunarfræðinga
og ítrekaði að ekki stæði til að gera
breytingar sem feli í sér ójafnan
aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu. í
ræðu sinni fór Guðlaugur Þór yfir þau
verkefni sem framundan eru. Sagði hann
aðaláherslu heilbrigðisráðuneytisins vera
á stefnumótun enda sé það hlutverk
ráðuneytis. Stefnumótunin taki til
allrar heilbrigðisþjónustunnar þ.m.t.
heiisugæslunnar, sjúkrahúsa og stofnana
um allt land. í ráði er að setja á fót
sjúkratryggingastofnun sem ætlað er að
annast kaup á allri heilbrigðisþjónustu
ríkisins en Ijóst er að sífellt aukin eftirspurn
verður eftir þjónustu heilbrigðiskerfisins
í framtíðinni. Þá gat hann þess að
Landlæknisembættinu hefur verið falið
Ályktun um ráðningar læknanema í störf
hjúkrunarfræðinga
Alyktun um byggingu nýs Landspítala
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 3. tbl. 84. árg. 2008 7