Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Qupperneq 18

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Qupperneq 18
Hrönn Hákansson, langholtsskoli@skoli.hg.is GREIÐUR AÐGANGUR AÐ HJÚKRUNARMÓTTÖKU HEILSUGÆSLUNNAR Hjúkrunarfræðingar heyra oft kvartanir yfir hversu erfitt er að fá tíma hjá heimilislækni. Það virðist ekki vera almennt þekkt að almenningur hefur greiðan aðgang að þjónustu hjúkrunarfræðinga á heilsugæslustöðvunum á dagvinnutíma. Hjúkrunarmóttaka heilsugæslunnar er aö jafnaði opin 8-16 á virkum dögum. Hægt er að panta tíma hjá hjúkrunarfræðingi, óska eftir viðtali við hjúkrunarfræðing í síma eða koma og hitta hjúkrunarfræðinginn „á vakt" án þess að gera boð á undan sér ef erindið þolir ekki bið. Hvert er hlutverk hjúkrunar- fræðings í móttöku á heilsugæslustöð? Hjúkrunarfræðingurinn sinnir erindum sem flokkast undir heilsuvernd, eins og ráðgjöf, upplýsingagjöf og forvörnum. Hjúkrunarfræðingar greina einnig og meðhöndla ýmis heilbrigðisvandamál af líkamlegum eða sálrænum toga. Hjúkrunarfræðingurinn hefur jafnframt yfirsýn yfir úrræði heilbrigðiskerfisins og er í aðstöðu til að afla upplýsinga hjá öðrum starfsstéttum og stofnunum eða vísa erindinu til annarra fagaðila innan eða utan heilsugæslustöðvarinnar. Þjónustan getur verið nokkuð breytileg miili heilsugæslustöðva og er til dæmis nokkur munur á hjúkrunarþjónustu á landsbyggðinni þar sem langt getur verið á næsta sjúkrahús miðað við á höfuðborgarsvæðinu. Einnig getur verið nokkur breytileiki milli þjónustu heilsugæslustöðva innan Heilsugæslu höfðuborgarsvæðisins þar sem stöðvarnar hafa ákveðið svigrúm til að þróa og móta þjónustuframboð. Helstu verkefni hjúkrunarfræðinga í móttöku: • Fræðsla, ráðgjöf, upplýsingagjöf • Forvarnir (t.d. inflúensu og lungna- bólgubólusetningar) • Skyndimóttaka vegna slysa • Móttaka vegna bráðra veikinda andlegra sem líkamlegra • Bólusetningar og ráðgjöf vegna ferðalaga • Meðferð vegna sára og/eða húðvandamála • Eftirlit með heilsufari og líðan (t.d. blóðþrýstingur, blóðsykur, þyngd, andleg líðan) • Ákveðnar sýnatökur, rannsóknir og mælingar (t.d. hjartalínurit, einfaldar blóð- og þvagrannsóknir, öndunarmælingar) • Lyfjagjafir (t.d. sprautugjafir eða lyf til innöndunar) • Tilvísanir til annarra fagaðila innan eða utan heilsugæslunnar • Símaráðgjöf Samvinna við aðrar starfstéttir Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu- stöðvum vinna í nánu samstarfi við aðrar starfsstéttir innan stöðvarinnar, eins og Ijósmæður, heimilislækna, barnalækna og sálfræðinga. Inni á heilsugæslustöðvunum er gjarnan um að ræða náið samstarf f teymum sem þjónusta ákveðinn notendahóp. Auk þess eiga hjúkrunarfræðingar samstarf við fagaðila innan stofnunarinnar á öðrum starfsstöðvum eftir þörfum. Einnig geta hjúkrunarfræðingar sett sig í samband við starfsfólk annarra heilbrigðisstofnana. Hjúkrunarfræðingar eiga líka í samstarfi við þjónustumiðstöðvar höfuðborgarinnar og bæjarfélaganna og geta ráðfært sig við sérfræðinga þar. 16 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 84. árg. 2008

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.