Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Page 32
Rúna Hjaltested Guðmundsdóttir, saga@runag.com
IGNAZ PHILIPP SEMMELWEIS - HIN ÞJÁÐA HETJA
Kenning mín er sköpuð til að hrekja á brott skelfinguna við
sængurleguspítala, til að vernda eiginkonuna fyrir eiginmanninn
og móðurina fyrir barnið ... Semmelweis 1861
Semmelweis sem
ungur maður
í síðasta tölublaði var rakin saga handþvottar fram að 19. öld og kenningar
um mikilvægi hreinlætis. Það var hins vegar ungverski læknirinn Ignaz Philipp
Semmelweis sem árið 1847 sannaði tengslin milli sýkingar og hreinlætis. Með
reglum um einfaldan handþvott var hægt að draga úr barnsfarasótt sem fór um
í farsóttarhlutföllum á fæðingarspítölum Evrópu. Uppgötvun hans átti eftir að
kosta hann starfsferilinn og hugsanlega lífið en hún bjargaði ótal mannslífum
sem og gjörbreytti starfsemi sjúkrahúsa víðsvegar um heiminn. Fyrir þessar sakir
hefur hann oft verið kallaður „bjargvættur mæðra“.
Ignaz Philipp Semmelweis, sem var af
þýskum ættum, fæddist í júlí 1818 í
Ofen í Ungverjalandi. Hann útskrifaðist
frá háskólanum í Vínarborg árið 1844
og stundaði síðan nám í fæðingarhjálp
og skurðlækningum. Hann var skipaður
aðstoðarlæknir prófessors Johanns Klein
við fæðingardeild Almenna sjúkrahússins
í Vínarborg sem var á þeim tíma stærsta
sinnartegundaríheiminum.Fæðingardeild
sjúkrahússins var eins og á öðrum
evrópskum fæðingarspítölum þjökuð af
hárri dánartíðni vegna barnsfarasóttar.
Ýmsar skýringar voru gefnar á svo hárri
dánartíðni, t.d. að margar kvennanna
30
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 84. árg. 2008