Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Page 39
TIL SIGURS
Samninganefnd Fíh í þungum þönkum á fundi 30. júní.
manna til aðgerða til þess að knýja
á um gerð nýs kjarasamnings við fjár-
málaráðherra. Þar sem verkfall þótti
ekki fýsilegur kostur á sumri var leitað
annarra ráða. Upp kom hugmynd að
yfirvinnubann. 2068 hjúkrunarfræðingar
störfuðu á umræddum kjarasamningi
þegar efnt var til atkvæðagreiðslu um
yfirvinnubann. Atkvæðagreiðslunni lauk
22. júní kl. 23:59. Notað var rafrænt
kerfi og niðurstöður lágu strax fyrir. Yfir
60% þátttaka var í kosningunni og 95%
þátttakenda voru fylgjandi yfirvinnubanni
sem var svo boðað frá og með 10. júlí
kl. 16:00.
30. júní var aftur haldinn fundur hjá
ríkissáttasemjara sem var árangurslaus.
Næsti fundur var boðaður eftir viku - þrem
dögum fyrir boðað yfirvinnubann. Elsa
B. Friðfinnsdóttir, formaður Fíh, sagði í
blaðaviðtali að heppilegast væri fyrir alla
að viðunandi niðurstaða næðist áður en
til yfirvinnubannsins kæmi. „Ég dreg enga
dul á það að það er eitthvað sem ég vildi
helst að yrði niðurstaðan," sagði hún.
Fjölmenni á fundum um boðað
yfirvinnubann
Strax um kvöldið 30. júní hélt Fíh
fyrsta fundinn í fundaröð um stöðuna
í samningamálum og um boðað
yfirvinnubann. Fjöldi hjúkrunarfræðinga
kom saman á Grand Hótel í Reykjavík
til að ræða stöðuna í kjaraviðræðunum.
Formaður og verkefnastjóri kjara- og
réttindamála félagsins, ásamt fulltrúum
úr samninganefnd félagsins, kynntu
gang kjaraviðræðnanna og þau lög og
reglur sem gilda í boðuðu yfirvinnubanni.
Miklar umræður urðu á fundinum.
Einstök samkennd og baráttukraftur ríkti
og hjúkrunarfræðingar gáfu tóninn með
miklu hvatningaklappi.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga, sagði í viðtali
viðræður 18. mars 2008. Eftir fimm
fundi vísaði SNR viðræðunum til sátta-
semjara ríkisins um mánaðamótin
apríl/maí. Fjölmargir fundir voru haldnir
með sáttasemjara ríkisins til þessa án
árangurs. Tilboð SNR breyttist ekkert
milli funda. Aðalatriðin voru eftirfarandi:
• Gildistími samnings frá 1. degi
undirritunarmánaðar - 31. mars 2009
• 20.300 kr. hækkun á allar launatölur í
launatöflu
• Vísindasjóður fari inn í launatöflu sem
2,2% viðbótarhækkun
• 12 dagar árlega í stað 10 áður vegna
launaðrar fjarveru frá vinnu vegna
veikinda barna
Þessu tilboði hafnaði samninganefnd
Fíh ítrekað enda ekki eitthvað sem
samninganefndin taldi að félagsmenn
myndu samþykkja og því tilgangslítið
að ræða það. Samninganefnd Fíh lagði
fram margar hugmyndir til þess að ná
samningum en megináherslan var á
hækkun grunnlauna og að starfsreynsla
yrði metin til launa.
í maílok hvöttu trúnaðarmenn félagsins
stjórn Fíh til þess að fá heimild félags-
Ríkissáttasemjari býöur upp á vöfflur eftir
undirskrift.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 84. árg. 2008
37