Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Side 2
2 Helgarblað 19. janúar 2018fréttir
Jón Garðar í samkeppni við Eldum rétt
Í
vikunni var nýtt fyrirtæki á
máltíðamarkaði kynnt til leiks.
Fyrir tækið heitir Einn, tveir &
elda og mun bjóða upp á til
búna matarpakka til eldunnar líkt
og Eldum rétt. Íslendingar hafa
tekið hugmyndafræðinni fagnandi
en hið nýja fyrirtæki hyggst skapa
sér sérstöðu með því bjóða upp
á aukið úrval rétta og gestapakka
með uppskriftum frá vinsælu
stu kokkum landsins, til dæmis
Ragnari Frey (Lækninum í eldhús
inu) og Jóa Fel.
Í forsvari fyrir fyrirtækið er
athafnamaðurinn Jón Arnar Guð
brandsson, einn eigenda Lemon,
og Gunnar Már Sigfússon einka
þjálfari, sem hefur getið sér gott
orð sem talsmaður lágkolvetna
lífsstílsins.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að Einn, tveir og elda sé í eigu
Dagný & co. Framkvæmdastjóri
þess fyrirtækis er Jón Garðar Ög
mundsson, fyrrverandi rekstrar
aðili McDonald's á Íslandi og
veitingastaðarins Metro.
Rekstrarsaga Jóns Garðars er
ekki beysin en fyrir tæpum tveim
ur árum hlaut hann tvo dóma fyrir
umfangsmikil skattsvik. Annars
vegar vegar í fimm mánaða skil
orðsbundið fangelsi fyrir að standa
ekki skil á opinberum gjöldum
sem haldið var eftir af launum
starfsmanna McDonald's
frá árinum 2009 og
2010. Hins vegar hlaut
hann 12 mánaða
fangelsi, þar af
9 mánuði skil
orðsbundið, fyrir sömu
brot hjá Metro á árun
um 2011 og 2012. Sam
tals þurfti Jón Garðar að
greiða 115 milljónir í sektir í ríkis
sjóð fyrir brotin. Í kjölfarið var Jón
Garðar úrskurðaður gjaldþrota
en engar eignir fundust upp í 166
milljón króna kröfur.
Jón Garðar Ögmundsson Gerir strand-
högg á hinum sívaxandi máltíðamarkaði.
Viðar er í yfirþyngd:
„Ég er með mikið
magn af vöðvum“
Þyngd: 94 kíló
Hæð: 185
sentimetrar
Blóðþrýsting-
ur: 120/82
Líkams-
þyngdarstuðull:
27,5
Viðar Guðjohnsen, athafnamaður og leigusali,
hefur vakið mikla athygli sem frambjóðandi í
leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Ummæli Viðars eru vægast sagt umdeild, hafa
þau valdið reiði og vakið kátínu, hafa sumir
haft á orði að nú sé kominn fram á sjónarsviðið
Donald Trump Íslands. Viðar hefur sagt í við-
tölum að hann hafi miklar áhyggjur af holdafari
þjóðarinnar, þá sérstaklega kvenna og barna,
sem hann segir að sé til marks um að fólk taki
ekki ábyrgð á sjálfu sér.
Blaðamaður DV gat því ekki stillt sig um að
spyrja Viðar hversu þungur hann væri sjálfur.
„Ég er 94 kíló. 185 á hæð. En þú mátt ekki
gleyma að ég er með mikið magn af vöðvum.
Ég tek á því. Þótt ég sé kominn yfir sextugt þá
held ég mér í formi. Blóðþrýstingurinn er 120/82
núna síðast þegar ég var mældur, en sykurinn
var í lagi. Hins vegar má ég taka mig á í að borða
ekki á kvöldin,“ segir Viðar í samtali við DV.
Miðað við BMI-líkamsþyngdarstuðulinn þýðir
þetta að Viðar er í yfirþyngd.
Nokkur umdeild ummæli Viðars:
Viðar segir að leikskólar séu „… geymslur fyrir
konur sem eru í einhverri metnaðargræðgi að
koma sér út á vinnumarkaðinn.“
Viðar var spurður hvað eigi að gera fyrir fíkla og
útigangsmenn: „Ekkert. Þeir ákváðu sjálfir að
vilja tortíma sjálfum sér. Á ég allt í einu að taka
þátt í því að vekja þá til lífsins? Vitið þið ekki
að það er mannfjölgunarvandamál hérna? Það
vantar ekki að halda lífi í fólki sem vill ekki lifa.“
Viðar vill hækka laun karlmanna í skólum: „Við
verðum að bjóða í þá. Þeir eru greinilega eftirsótt
vara í grunnskóla. Því við getum ekki alltaf látið
konurnar ráða yfir öllu. Þetta er orðið vandamál.“
„Ég vil að konur hafi peninga eða efnahag og
tíma til að eignast börn og hugsi það áður og
sinni þeim.“
Viðar að svo virðist sem að konur „… elti lág
laun.“
Viðar mætti í viðtal í þættinum Harmageddon
og rak augun í að þáttastjórnendurnir, Frosti
og Máni, væru með undirhöku: „Það þýðir að
þið eruð í yfirþyngd, sem þýðir það að hugsan-
lega verðið þið veikari fyrr. Sem þýðir það að
skattborgarinn þarf að borga fyrir ykkar veikindi
úr okkar sameiginlega sjóði. Þannig að þetta er
ábyrgðarleysi ykkar strax í augsýn. Ég sé þetta
strax. Það er ábyrgðarleysi hérna.“
Viðar segir að feitt fólk eigi að taka ábyrgð á
eigin heilsu: „Einstaklingurinn á að taka ábyrgð.
Ekki að búa til einhverjar stofnanir og einhver
kerfi og fundarhöld um það hvernig á að finna
einhver lyf til að leysa undirhökuvandamál eða of
breiðar mjaðmir eða klessufeitt fólk.“
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Þ
etta kemur mér ekkert
á óvart. Það er verið að
reyna að brjóta mig nið
ur en það mun ekki tak
ast. Ég mun að sjálfsögðu áfrýja
þessum dómi,“ segir Hreggviður
Hermannsson, bóndi að Lang
holti 1b í Árnessýslu, í samtali
við DV. Hreggviður var í vikunni
dæmdur í 30 daga skilorðsbund
ið fangelsi fyrir að stela tíu bráða
birgðagirðingarstaurum, sófa
setti og að hafa snúið upp á hönd
nágrannakonu sinnar, Fríðar
Sólveigar Hannesdóttur.
Segist ekki fá réttláta
meðferð hjá lögreglu
Dómurinn yfir Hreggviði er ein af
ótalmörgum uppákomum sem
átt hafa sér stað í nágrannaerj
um sem vart eiga sinn líka hér
lendis og DV hefur aðeins fjall
að um. Að mati Hreggviðs fær
hann ekki réttláta málsmeðferð
hjá Lögreglunni á Suðurlandi
sem helgast af því að dóttir ná
grannakonu hans er yfirmaður
hjá embættinu. „Allar ákærur á
hendur nágrönnum mínum eru
látnar niður falla en hver einasti
tittlingaskítur sem ég er sakað
ur um er keyrður af krafti í gegn
um réttarkerfið,“ segir Hreggvið
ur. Nefnir hann sem dæmi tvær
kærur vegna alvarlegra líkams
árása sem hann og gestkomandi
kona urðu fyrir en lögregla að
hefst ekkert í. Hann segir að ná
grannar hans hafi yfir 50 sinn
um kært hann til lögreglu og
lögreglumenn hafi komið í rúm
lega 170 útköll vegna ýmissa um
kvartana nágrannanna.
Deilurnar milli Hreggviðs og
nágranna hans, Ragnars Vals
Björgvinssonar og Fríðar Sól
veigar, ábúenda að Langholti 2,
byrjuðu í deilum um veiðirétt
í Hvítá árið 2005. Hreggviður
vann málið fyrir dómstólum og
síðan þá hafa samskiptin verið
hatrömm, svo vægt sé til orða
tekið. Nú deila nágrannarnir um
landamerki spildu sem eitt sinn
tilheyrði jörð Ragnars. Það mál
verður senn tekið fyrir í héraðs
dómi en út af þeirri deilu hafa
ýmsar skærur átt sér stað milli
Hreggviðs og nágranna hans.
Dæmdur fyrir að stela
girðingu og sófasetti
Eins og áður segir er dómur
inn yfir Hreggviði í þremur lið
um. Í fyrsta lagi er hann sakfelld
ur fyrir að hafa, í október 2014,
tekið niður og stolið tíu bráða
birgðarafmagnsstaurum og raf
magnsþræði sem Ragnar og
Fríður höfðu sett upp. Kannaðist
Hreggviður ekki við verknaðinn
en var hann sakfelldur á grund
velli vitnisburðar annars ná
granna. Kvaðst Hreggviður ekki
muna eftir atvikinu fyrir dómi en
kannaðist við að hafa tekið upp
aðra girðingu ári fyrr, sem hann
var einnig kærður fyrir.
Í öðru lagi var Hreggviður
dæmdur fyrir að hafa flutt sófa
sett og stóla úr sumarhúsi í
eigu annars manns og í sitt eig
ið veiðihús. „Þessi maður keypti
sumarhús sem stóð á minni jörð.
Hann ætlaði að flytja það í burtu
en sveik það, ég losnaði ekki við
húsið fyrr en eftir 20 mánuði.
Hann var með húsið í sölumeð
ferð á sínum tíma og ég varð fyrir
miklu ónæði út af hugsanlegum
kaupendum sem voru að ráfa
um jörðina og skoða húsið,“ segir
Hreggviður. Hann hafi síðan tek
ið að sér að losa og rýma hús
ið fyrir flutning og þá fært hús
gögnin í veiðihús sitt til geymslu.
„Það vissu allir hvar húsgögnin
voru og ekki voru þetta merki
legir munir,“ segir Hreggviður og
hristir hausinn.
„Þau voru sturluð af
bræði sem endranær“
Í þriðja lagi var Hreggviður sak
felldur fyrir líkamsárás gegn
Fríði. Talið var sannað að hann
hafi snúið upp á hönd henn
ar þegar, í eitt skipti af mörgum,
skarst í odda milli nágrannanna.
„Hún reif í skyrtuna á mér og
hristi mig til, á meðan stóð eigin
maðurinn fyrir aftan hana með
grjót í hönd. Þau voru sturluð
af bræði sem endranær,“ seg
ir Hreggviður. Hann heldur því
fram að Fríður hafi tekið um
gleraugu sem voru í brjóstvasa
á skyrtunni. Hafi hann þá tekið í
hægri hönd hennar með vinstri
hendi og ýtt henni í burtu.
Í dómnum kemur fram að
Fríður hafi ekki vitað á hvorri
hönd hún hefði meitt sig þegar
lögreglu bar að garði. „Hún hafi
sagt hægri, nei vinstri hægri“ eins
og þar stendur. Fyrir dómi kom
fram að hún þjáðist af dyslexíu
og ruglaðist því oft á hægri eða
vinstri. Í læknisvottorði kemur
fram að Fríður hafi fundið fyrir
þreifieymslum á tveimur stöð
um og á handlegg hennar hafi
verið þrír ljósir marblettir en
engin bólga. Niðurstaða lækna
kandídats var sú að áverkarn
ir samrýmdust best tognun eða
ofreynslu á vöðva. Hreggviður
segir niðurstöðuna vera algjöra
þvælu. „Það er ekki furða að
hún hafi ofreynt á sér vöðvana.
Hún hafði eytt drjúgri stund í að
henda grjóti úr vegghleðslu út á
veg. Það er talsvert þrekvirki því
þetta eru þungir steinar. Auðvit
að var hún þreytt eftir átökin,“
segir Hreggviður.
Telur lögreglu misbeita
valdi sínu
Hreggviður er hvergi banginn
þrátt fyrir dóminn en telur
lögreglu misbeita valdi sínu.
„ Ragnar réðst gegn gestkomandi
konu með alvarlegum hætti í júní
2017. Hún kærði hann til lögreglu
en ekkert hefur verið aðhafst í því
máli,“ segir Hreggviður. Þá rifjar
hann upp meinta árás Ragnars á
hann rétt fyrir jól, sem DV fjallaði
um. Sakaði Hreggviður Ragnar
um að hafa reynt að drepa hann
með því að keyra hann niður.
„Ég kærði það mál, eins og mörg
önnur, en það er augljóslega ekki
í forgangi á hjá lögreglu. Þá hef ég
óskað eftir að fá að skoða mynd
band, sem náðist á öryggis
myndavél í eigu Ragnars og Fríð
ar, ásamt fjölskyldu minni, en
það vill lögreglan ekki heimila,“
segir Hreggviður. n
„Hver einasti
tittlingaskítur
sem ég er sakaður um er
keyrður af krafti í gegn-
um réttarkerfið.
Hreggviður hlaut 30 daga dóm
n Ætlar að áfrýja dómnum n Sakar lögreglu um misbeitingu valds
Dæmdur Hreggviður
hlaut þrjátíu daga skilorðs-
bundinn fangelsisdóm. Að
hans mati er um tittlinga-
skít að ræða.