Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 19. janúar 2018fréttir
Í
síðustu viku fjallaði DV um
að fyrrverandi skjólstæðingur
Krýsuvíkursamtakanna hefði
kært fyrrverandi starfsmann,
Björn Ragnarsson, fyrir kynferðis-
brot. Björn hafði starfað sem ráð-
gjafi nokkru fyrr en var sagt upp
störfum eftir að meint kynferðis-
brot hans gegn öðrum kvenkyns
skjólstæðingi komst upp á yfir-
borðið. Björn var síðar endurráð-
inn tveimur mánuðum síðar sem
bílstjóri fyrir samtökin. Aftur kom
upp óásættanlegt atvik sem varð
til þess að annar skjólstæðingur
kærði Björn til lögreglu fyrir kyn-
ferðisbrot. Þá var hann loks lát-
inn taka poka sinn. Björn gekkst
við óeðlilegum samskiptum í sam-
tali við DV en neitaði staðfastlega
að um kynferðisbrot hefði verið að
ræða.
Í kjölfar umfjöllunarinnar
bárust DV ábendingar úr nokkrum
áttum um að annar starfsmaður
Krýsuvíkursamtakanna hefði verið
kærður fyrir kynferðisbrot. Þá hafi
tvær aðrar konur sakað hann um
að hafa brotið gegn þeim. DV
hefur öruggar heimildir fyrir því
að maðurinn hafi viðurkennt á
AA-fundum að hafa keypt vændi af
konum, stúlkum og drengjum sem
stríða við fíkniefnavanda. „Þetta
vita allir starfsmenn í Krýsuvík.
Það er verið að samþykkja hegðun
þessa starfsmanns með því að
hafa hann á launaskrá,“ segir
heimildarmaður DV. Umræddur
maður hefur í starfi sínu
aðgang að trúnaðargögnum um
skjólstæðinga samtakanna. Hann
er ekki í daglegum samskiptum
við þá en hefur farið í ferðir með
ráðgjöfum og skjólstæðingum,
meðal annars í Þórsmörk.
Starfsmaðurinn hefur verið án
áfengis og vímuefna í lengri tíma
en er sagður þjást af kynlífsfíkn.
„Ekki reyna að kenna fólki
mannkosti sem þið getið svo
ekki farið eftir sjálf“
Maðurinn er í dag í sambúð með
konu frá Austur-Evrópu en kon-
an kom hingað til að vinna á súlu-
stað. Samkvæmt heimildum DV
innan lögreglunnar var maður-
inn fjarlægður í nokkur skipti af
heimili sínu vegna heimilisofbeld-
is í fyrra sambandi sínu, sem lauk
fyrir nokkrum árum. Maðurinn
hefur verið án áfengis í um 10 ár.
Annar heimildarmaður DV seg-
ir: „Krýsuvík bjargaði lífi mínu og
hjálpaði mér mikið. En þarna eru
hlutir sem þarf að laga. Hinir með-
virku sjá það ekki og verja Krýsu-
vík eins og kirkjuna sína. Það er
enginn yfir gagnrýni hafinn og
okkur er kennt í samtökunum og
af ráðgjöfum í Krýsuvík, af AA-
bókinni að viðurkenna bresti okk-
ar og biðjast fyrirgefningar. Af
hverju getur starfsfólk og fyrrver-
andi skjólstæðingar ekki horfst í
augu við það í stað þess að styðja
við mann sem hefur beitt maka
sinn ofbeldi, kaupir vændi og sýn-
ir engin merki um iðrun. Þetta er
meðvirkt og sjúkt heimili sem gerir
vel en getur gert betur. Ekki reyna
að kenna fólki mannkosti sem þið
getið svo ekki farið eftir sjálf,“ segir
heimildarmaðurinn.
Kynferðislega brenglaður
ráðgjafi
Annar ráðgjafi sem starfaði um
árabil á Meðferðarheimilinu í
Krýsuvík er sagður kynferðis-
lega brenglaður. Tveir heimildar-
manna DV segja hann hafa tekið
bæði skjólstæðinga og aðstand-
endur í einkaviðtöl heima hjá sér
á kvöldin. Þá leigði hann herbergi
miðsvæðis þar sem hann tók upp
kynlíf sitt með konum án þess að
láta þær vita. Tveir skjólstæðingar
hafa svipaða sögu af þeim ráðgjafa
að segja eftir veru sína í Krýsu-
vík: „Ég fékk hann sem ráðgjafa
og hann settist niður og það fyrsta
sem hann sagði við mig var: „Á
hvaða hátt ertu virk kynferðislega.
Þú ert svo falleg stelpa. Þú þarft
að fara í heitt bað og taka með þér
spegil og finna út hvað þér finnst
gott og virkja þig kynferðislega.“
DV hefur heimildir fyrir því að
maðurinn hafi kvikmyndað fjölda
kvenna þegar hann stundaði með
þeim kynlíf án þess að gera þeim
grein fyrir því. Einn heimildar-
manna DV sem sá myndskeiðin
sagði að „þetta væri það ógeðs-
legasta sem hún hefði séð á ævi
sinni.“
Önnur stúlka sem átti í stuttu
sambandi við hann eftir áfengis-
meðferð í Krýsuvík fékk aðstoð
þekktra manna í undirheimunum
til að ná í tölvur og annan búnað af
ótta við að hann hefði kvikmynd-
að hana á meðan þau stunduðu
kynlíf. Konan treysti sér ekki til
að ræða við DV um málið þegar
eftir því var leitað. DV hefur einnig
heimildir fyrir því að maðurinn
hafi verið með í fórum sínum les-
efni um hvernig eigi að læra að
lesa konur, bæði varalestur og að
vinna traust og trúnað þeirra og
brjóta niður.
Annar heimildarmaður heldur
fram að Þorgeir Ólason, forstöðu-
maður Meðferðarheimilisins í
Krýsuvík, hafi verið kunnugt um
afbrigðilega hegðun undirmanns-
ins en þegar í ljós kom hversu
langt ráðgjafinn hafði gengið og
Þorgeiri gert kunnugt um það var
ekki hjá því komist að láta hann
taka pokann sinn. Maðurinn fékk
í kjölfarið vinnu á Hlaðgerðarkoti
sem ráðgjafi en starfar í dag sem
crossfit-þjálfari. n
Kynlífsfíkn í Krýsuvík
Kynferðislega brenglaður ráðgjafi kvikmyndaði kynlíf með grunlausum konum
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Óhugnaður Fjölmargir óhæfir aðilar hafa
starfað og starfa enn fyrir Meðferðarheimilið í
Krýsuvík.
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu
þjónustu
okkar á
Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS