Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Side 10
10 Helgarblað 19. janúar 2018fréttir
Ó
lga er meðal Sjálfstæðis
manna í Vestmannaeyjum
vegna ákvörðunar fulltrúa
ráðs flokksins um að halda
ekki prófkjör, þess í stað mun full
trúaráðið kjósa um sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í komandi
sveitarstjórnarkosningum. Sjálf
stæðisflokkurinn er í yfirburða
stöðu í bænum og hefur Elliði
Vignis son, oddviti Sjálfstæðis
flokksins, verið bæjarstjóri síðustu
tólf ár. Á fundi fulltrúaráðsins milli
jóla og nýárs var tillaga um uppstill
ingu felld og því stefndi allt í próf
kjör. Aníta Óðinsdóttir, formaður
fulltrúaráðsins, sem segir í samtali
við DV að hún styðji prófkjör, segir
að athugasemdir hafi borist eftir
fundinn og því ákveðið að boða
annan fund til að ákveða endan
lega hvort farið yrði í prófkjör.
Fulltrúaráð „í vasanum“
Elís Jónsson, vélstjóri á Herjólfi,
var búinn að boða þátttöku sína í
prófkjöri, hann segir í samtali við
DV að smalað hafi verið á seinni
fundinn til að koma í veg fyrir að
Elliði þyrfti að fara í prófkjör. Vill
hann meina að á sínum 12 árum
í bæjarstjórn væri Elliði búinn
að raða samstarfsfólki sínu, fjöl
skyldu og mökum í fulltrúaráð
ið. Tillaga um prófkjör var felld
með 28 atkvæðum á móti 26, einn
seðill var auður og einn ógildur.
Elís segir að sú tillaga hafi verið
óraunhæf, of margir þyrftu að taka
þátt í prófkjörinu og tíminn væri
of naumur. Lagði hann því fram
breytingartillögu um að 10 manns
þyrfti í prófkjör í stað 14, sú tillaga
var felld. Niðurstaða fundarins var
að farið yrði í röðun sem gengur út
á að fulltrúaráðið kýs á listann.
Elís segir að margir séu ósáttir við
niðurstöðuna því fulltrúaráðið sé „í
vasanum“ á bæjarstjóranum, sendi
hann lista með nöfnum þeirra sem
eiga að hafa kosið gegn prófkjöri á
blaðamann DV til að sýna fram á
tengsl fulltrúanna við bæjarstjór
ann og bæjarfulltrúa Sjálfstæðis
flokksins. Viðmælendur DV sem
flokkast mega sem andstæðingar
Elliða innan Sjálfstæðisflokksins
segja að ekki sé um ræða neina sér
staka fylkingu sem stefni á
klofningsframboð, þeir
sem vilji prófkjör séu
einungis þreyttir á
að hafa sama odd
vitann í 12 ár og
tími sé kominn á
breytingu. Nafn
Írisar Róberts
dóttur grunn
skólakennara
var ítrekað nefnt
í tengslum við bar
áttuna fyrir prófkjöri
og hugsanlegt fram
boð fyrir Sjálfstæðis
flokkinn, hún
vildi ekki ræða við blaðamann DV
þegar eftir því var leitað.
Leynilisti í umferð
Listi, sem inniheldur annað orða
lag en listi Elísar, er í umferð
en enginn viðmælenda
DV kannast við að
hafa útbúið þann
lista. Listann má
sjá hér til hliðar.
Margir sem eru á
listanum kannast
við að hafa kosið
á móti próf
kjöri, sumir vildu
ekki ræða við DV
en einn bæjar
fulltrúi, Páll Marvin
Jónsson, sagðist hafa
greitt atkvæði með
því að fara í
prófkjör en er sáttur við þá niður
stöðu að fara í röðum. „Þetta er leið
til að sætta ákveðin sjónarmið. Það
er fylking hér sem vill prófkjör og
önnur fylking sem vill ekki próf
kjör. Með röðun mun fulltrúaráð
ið, þeir sem starfa innan flokksins,
fá tækifæri til að kjósa fólk á lista,“
segir Páll Marvin. Einn viðmæl
andi sagði að lítið væri að marka
orð Elísar þar sem hann ynni
fyrir Eimskip og vildi komast að
í bæjarstjórn til að koma í veg
fyrir að bærinn tæki yfir rekstur
Herjólfs. Elís hafnar því alfar
ið og segist ekki hafa neitt að
fela, verið væri að nota skoð
anir hans um rekstur Herjólfs
til að drepa málinu á dreif.
Elliði hefur sagt að hann
hefði verið tilbúinn að gefa
kost í sér í prófkjöri ef það
yrði niðurstaðan en Elís segir
að það standist ekki skoðun
heldur hafi Elliði beitt sér gegn
prófkjöri með öllum tiltækum
ráðum. Ekki er þó allt sem sýnist,
viðmælendur DV draga margir í
efa sýn Elísar á málin, á það líka
við um viðmælendur sem tengjast
ekki bæjarstjóranum. „Ástæðan
fyrir því að Elliði kaus gegn því að
fara í prófkjör hefur ekkert að gera
með hræðslu við kjósendur, hann
veit að staða sín er sterk. Þetta
snýst um að gera það sem er þægi
legast og koma í veg fyrir að karlar
verði í öllum efstu sætunum,“ seg
ir einn viðmælandi DV.
Ekkert sem styður samsæris
kenningar um spillingu
Viðmælendur DV innan minni
hlutans í Vestmannaeyjum
segja að málið snúist um nokkra
einstaklinga innan Sjálfstæðis
flokksins sem hafi reynt að kom
ast á lista fyrir kosningarnar 2014
en ekki haft erindi sem erfiði og
séð fram á að hið sama myndi ger
ast fyrir kosningarnar í vor. „Ég
hef ekki orðið vitni að spillingu í
kringum bæjarstjórann, sem full
trúi minnihlutans er það mitt starf
að finna eitthvað á Elliða en það
er ekki auðvelt. Það sem fólk er
ekki alltaf að átta sig á er að þetta
er lítið bæjarfélag og það segir
sig sjálft að fólk þekkir hvert ann
að. Þótt ég sé ekki á sama stað og
Elliði í stjórnmálum þá hef ég ekki
orðið vitni að neinu sem styður
samsæriskenningarnar um spill
ingu,“ segir Auður Ósk Vilhjálms
dóttir, bæjarfulltrúi Elistans. n
Dularfullur listi
í Vestmannaeyjum
n Deilt um prófkjör sjálfstæðismanna n listi yfir meinta stuðningsmenn elliða í umferð
Ari Brynjólfsson
ari@pressan.is
Á móti prófkjöri
skellti á blaðamann
Á móti
Á móti
„Ég var á móti
prófkjöri „mjög
óviðeigandi
að spyrja um þetta
„Ég er ekkert
heitur með
eða á móti, þetta
er bara niðurstaðan
„tjái mig ekki
um þetta „Ég gef þetta
ekki upp„finnst
það mjög
óviðeigandi hjá
ykkur að eltast
við þetta
„Ég hefði
kosið með
uppstillingu á fyrri
fundinum, en ég
kaus með prófkjöri
á síðasta fundi
Elliði vill konur
og ungt fólk
á listann
Elliði Vignisson bæjarstjóri
sagði í samtali við mbl.
is að hann hafi talað fyrir
leiðtogaprófkjöri til að tryggja
aðkomu kvenna og ungs fólks
á lista Sjálfstæðisflokksins.
Bendir hann á að í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi fyrir síðustu
alþingiskosningar þá hafi
þrír karlar raðast í þrjú efstu
sætin. Aníta Óðinsdóttir,
formaður fulltrúaráðsins,
gefur lítið fyrir það í samtali
við DV: „Það var síðast
prófkjör hér í Vestmannaeyj-
um árið 1990, það hefur mikið
vatn runnið til sjávar síðan þá.“
Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðis-
manna í Vestmannaeyjum, lagðist gegn
prófkjöri, andstæðingar Elliða innan flokksins
segja lítið að marka þá afstöðu þar sem sonur
Elliða sé varaformaður Eyverja.
Páll vildi
prófkjör
Páll Magnús-
son, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi, sat
báða fundina og hann
segir að niðurstaðan hafi komið á
óvart. Sagði hann í samtali við Vísi
að hann hefði stutt það eindregið að
fara í prófkjör: „Ég tel að þetta sé afar
óheppileg niðurstaða fyrir flokkinn í
Vestmannaeyjum,“ sagði Páll.
Vélstjóri á Herjólfi Elís Jónsson gaf kost
á sér í prófkjör eftir fund fulltrúaráðsins
milli jóla og nýárs, hann er ekki sáttur við
niðurstöðuna.
Leynilistinn Listinn á að
sýna þá 28 sem Elliði á að hafa
smalað á fund fulltrúaráðsins
til að koma í veg fyrir prófkjör
og sýna fram á tengsl þeirra
sem eiga sæti í fulltrúaráðinu.
Enginn sem DV ræddi við vildi
segja hvaðan listinn kæmi.
Bæjarstjóri
Elliði Vignisson
hefur verið
bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum
frá árinu 2006 og
gefur kost á sér til
að halda áfram í
kosningunum í vor.