Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Qupperneq 14
14 Helgarblað 19. janúar 2018fréttir D ýr Rolex-úr, verðmætir skartgripir og reiðufé sem var haldlagt við húsleit lög- reglu í tengslum við rann- sókn á starfsemi kampavíns- klúbbsins Strawberries árið 2013 fór aldrei í geymslu lögreglunn- ar. Munirnir voru í poka eða tösku og voru hinir dýru munir teknir á vettvangi. Lögreglumenn sem tóku þátt í hinni umdeildu aðgerð voru margir undir áhrifum áfengis en þeir eyddu um 1,1 milljón króna á barnum í sig og stúlkurnar sem störfuðu á strippstaðnum. DV birt- ir í dag á vef DV tvö myndskeið sem sýna lögreglumenn drekka hvern drykkinn á fætur öðrum, bjór, gin, vodka og að lokum skáluðu lög- reglumenn í dýru koníaki. Á mynd- skeiðum sem DV birtir í dag, föstu- dag, má sjá lögreglumenn fara í handtökur eftir að hafa fengið sér sopa af bjór og svo lagt hann frá sér. Fyrr um kvöldið höfðu lögreglu- menn hellt í sig hverjum drykknum á fætur öðrum. Forsaga Árið 2013 sætti Strawberries lög- reglurannsókn vegna meintrar vændisstarfsemi og mansals sem varð til þess að eigandinn, Viðar Már Friðfinnsson, og fjórir aðr- ir starfsmenn voru handteknir í kjölfar rassíu. Við rannsókn máls- ins voru meðal annars notaðar tál- beitur þar sem óeinkennisklædd- ir lögreglumenn fóru inn á staðinn til að reyna að afhjúpa meinta ólöglega starfsemi. Í kjölfarið var staðnum lokað, hann innsiglaður og húsleit fram- kvæmd. Tveimur árum síðar, í júní 2015, lýsti ríkissaksóknari því yfir að málið hefði verið fellt nið- ur. Það eina sem eftir stóð af ítar- legri rannsókn málsins voru meint stórfelld skattalagabrot Viðars Más sem ákært var fyrir. Á mánudag var íslenska ríkið svo dæmt til að greiða fyrrverandi dyra- verði á Strawberries 800 þúsund krónur í miskabætur vegna gæslu- varðhalds sem hann sætti í tengslum við rassíu lögreglu. Enn eru þó ekki öll kurl komin til grafar í þessu máli. Hlutirnir sem hurfu DV hefur fjallað ítarlega um mál- ið en í mars 2017 var greint frá því að samkvæmt heimildum hefðu verið haldlögð á Strawberries og heimili Viðars Más nokkur Rolex- armbandsúr, bindisnælur, hringar, hálsmen og annað verðmætt skart, þar á meðal erfðagripir, og nokkuð af reiðufé, bæði evrur og dollarar. Verðmæti þessara muna og lausa- fjár hleypur á mörgum milljónum króna samkvæmt heimildum. Sem fyrr segir var það eina sem eftir stóð í Strawberries-málinu meint skattalagabrot Viðars Más, sem hann var ákærður fyrir síðast- liðið sumar og hlaut dóm fyrir. Sá sem skipulagði aðgerðina er Jón H.B. Snorrason en hann var þá yfirmaður ákærusviðs og rann- sóknardeildar á sama tíma og svo aðstoðarlögreglustjóri. Lögreglu- stjóri á höfuðborgarsvæðinu var þá Stefán Eiríksson. Rannsókn- in skilaði litlu og hefur verið álits- hnekkir fyrir embættið. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, núverandi lögreglustjóri, hefur samkvæmt heimildum DV lagt áherslu á að málið sé gert upp og embættið læri af þeim mistökum sem forver- ar hennar gerðu áður en hún tók við embætti. Samkvæmt heimildum DV var það Jón H.B. sem tók þátt í skipulagningu og Friðrik Smári Björgvinsson var inni í málinu. Þeir hafa báðir yfirgefið lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Friðrik Smári er nú hjá héraðssaksóknara sem mun rannsaka hvarf verðmætanna og Jón H.B. starfar fyrir ríkissak- sóknara sem mun taka við málinu frá héraðssaksóknara sé tilefni til þess að mati þeirra sem þar starfa. Jón H.B. svarar Málið er eins og áður segir um- deilt og vildi DV leggja spurningar í mörgum liðum fyrir þá sem komu að skipulagningu aðgerðarinn- ar á sínum tíma. Jón H.B. Snorra- son gerir lítið úr gagnrýnisröddum í samtali við DV. Friðrik Smári hef- ur neitað að tjá sig um málið á með- an það er í rannsókn. Blaðamaður DV vildi vita hvort lögreglumenn mættu vera drukknir við störf. Hver hefði tekið ákvörðun um að- gerðina og stjórnað henni. Þá eins hvort að legið hafi fyrir upplýsingar um vændisstarfsemi á staðnum eða mansal og hvaða fjárhæðum lögreglumönnum var úthlutað til að kaupa áfengi. Væri hugsanlega hægt að lögsækja lögreglumenn eða stjórnendur vegna aðkomu þeirra að málinu? Þá einnig hvort það hafi staðið til frá upphafi að fara í handtökur. Þá lék DV forvitni á að vita hvort hugað hafi verið að stúlk- unum eftir hina umdeildu aðgerð. „Ég sé nú enga ástæðu til að þess að ég svari þessu,“ segir Jón H.B. í samtali við DV. „Mér finnst bara umfjöllunin á þeim stað að ég sé enga ástæðu til að taka þátt í henni.“ BLM: „Hvað meinarðu, á hvaða stað?“ Jón: „Nú, þú ert með spurn- ingar sem mér finnst alveg maka- lausar og fráleitar. Svörin við þeim myndu væntanlega snúast um hvort ég hafi brotið af mér í starfi n Umdeild rassía lögreglu á Strawberries n Jón H.B.: Engin mistök gerð n DV birtir tvö myndskeið sem sýna lögreglumenn hella í sig áfengi 1 bjór, 2 bjórar, gin og svo koníak Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Svörin við þeim myndu væntan- lega snúast um hvort ég hafi brotið af mér í starfi eða ekki Ýtt í gólfið Hér sést þegar óeinkennisklæddur lögreglumaður ýtir dyraverði Strawberries í gólfið. Látinn setjast Hér sést ljósklæddur lögreglumaður láta einstakling inni á staðn- um setjast. Engin mistök „… með fullri virðingu fyrir þessu málefni þá tel ég ekki að það sé eðlilegt að ég svari þessu og ég finn mig ekki í að svara málinu á þessum grunni,“ segir Jón H.B. Snorrason.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.