Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Síða 15
Helgarblað 19. janúar 2018 fréttir 15
eða ekki, hvort einhver afbrot hafi
átt sér stað.“
BLM: „Það er margt einkenni-
legt við þessa aðgerð.“
Jón: „Hver segir það?“
BLM: „Nú, þetta endaði með
því að hann var ekki ákærður fyr-
ir neitt í tengslum við þessa að-
gerð, hann var bara ákærður fyr-
ir skattalagabrot. Hann var ekki
ákærður fyrir mansal eða milli-
göngu vændis …“
Jón: „Hjálmar, Hjálmar, þú get-
ur haldið áfram og haldið áfram
að tala við þinn heimildarmann
og fengið þetta þaðan en ég sé ekki
ástæðu til að taka þátt í umfjöllun
málsins á þessum stað, á þessum
málefnastað.“
BLM: „Ertu þá ósammála því
að það hafi verið gerð mistök í
þessari aðgerð?“
Jón: „Já, já, algjörlega ósam-
mála.“
BLM: „Að þínu mati var ekkert
að þessari aðgerð?“
Jón: „Nei, nei.“
BLM: „Voru lögreglumenn
drukknir?“
Jón: „Það liggur allt fyrir í
málinu […] Hjálmar með fullri
virðingu fyrir þessu málefni þá
tel ég ekki að það sé eðlilegt að ég
svari þessu og ég finn mig ekki í að
svara málinu á þessum grunni.“
Jón sendi svo tölvupóst þar sem
hann skýrði mál sitt nánar: „Ég get
ekki verið sammála þér að það sé
eðlilegt að ég svari þessum spurn-
ingum. Ég vil þó árétta það að að
rannsókn var staðið með skipu-
lögðum og lögmætum hætti og
margar þeirra aðgerða sem lög-
regla framkvæmdi voru bornar
undir dómstóla áður en ráðist var
í þær með kröfum um úrskurð. Ég
ítreka það að allra reglna og laga
sem um ræðir var gætt við rann-
sókn þessa máls.“
Myndskeið
DV birtir eins og áður segir mynd-
skeið af lögreglumönnum sem
kaupa hverja bjórflöskuna og
sterka drykkinn á fætur öðrum. Þá
sulla þeir niður áfengi á barborðið
og samkvæmt heimildum DV var
upphæðin sem þeir greiddu á
staðnum 1,1 milljón. Einn heim-
ildarmaður DV heldur því fram
að lögreglumennirnir hafi verið
saklaus peð í höndum yfirstjórnar
lögreglunnar sem fól þeim verk-
efni sem sé ólöglegt. Öllum æðstu
stjórnendum árið 2013 hafi verið
kunnugt um málið enda þarf lög-
reglustjóri að samþykkja sérstakar
aðgerðir yfirvalda ásamt næstráð-
endum, hvort sem er að kaupa
varning eða falast eftir þjónustu.
„Það eru mjög skýr lög varð-
andi vændi. Vændi og hugsan-
legt mansal eru alvarlegar ásak-
anir. Að falast eftir vændi hjá fólki
í viðkvæmri stöðu eins og á nekt-
arstað er alvarlegt. Þarna er reynt
að freista kvenna sem hefðu hugs-
anlega aldrei selt líkama sinn. Þá
er ólöglegt að falast eftir vændi og
með því að gera slíkt er verið að
brjóta lög,“ segir einn heimildar-
manna DV og bætir við að fall-
ið hafi verið frá öllum ákærum og
eigandi sætt kæru vegna skatta-
lagabrots. „Þá mega lögreglumenn
ekki fara í handtökur undir áhrif-
um áfengis,“ bætir heimildarmað-
ur DV við. Blaðamaður DV kann-
aði málið. Til að sérstök aðgerð
eins og tálbeituaðgerð sé heimil
þarf að uppfylla nokkur skilyrði og
eitt af þeim er að brot varði minnst
átta ára fangelsi. Rannsókn vegna
mansals er þó undanskilin sam-
kvæmt heimildum DV. DV hefur
óskað eftir svörum frá öllum sem
komu að málinu en Jón H.B. var sá
eini sem tengist málinu sem svar-
aði hluta af spurningum DV.
Ekki vandað til verka
Helgi Magnús Gunnarsson, fyrr-
verandi vararíkissaksóknari,
og þingmaðurinn Þórhildur
Sunna Ævarsdóttir ræddu mál-
ið í Kastljósi á miðvikudagskvöld.
Þórhildur Sunna sagði:
„Það finnast ekki ákveðin
sönnunargögn og þetta er enn til
skoðunar. Það sem kom út úr þess-
um fundi var að reglur um vörslu
sönnunargagna eru ekki mjög að-
gengilegar svo það er erfitt fyr-
ir okkur sem eru inni í kerfinu að
kynna okkur nákvæmlega hvern-
ig þessu er háttað og hvar staðirnir
ættu að vera.“
Þá sagði Helgi: „Þetta mál er
enn þá í sakamálarannsókn gagn-
vart þeim lögreglumönnum sem
að þessu komu. Það var fellt niður í
janúar en er kæranlegt til ríkissak-
sóknara. Það sem er augljóslega
helsti vandinn er skortur á utan-
umhaldi og ábyrgðarsviði þeirra
sem komu að þessari aðgerð. Það
á að vera verkstjóri yfir þessu sem
ber ábyrgð […] Þarna er eins og oft
vill verða að enginn keðja er sterk-
ari en veikasti hlekkurinn. Þarna
eru starfsmenn ekki að vanda sig
og er kennt í lögregluskóla. Þetta
er alltaf vinnan eftir húsleit að
halda utan um alla pappíra.“
Þingmenn funda
Sigríður Björk Guðjónsdótt-
ir, lögreglustjóri lögreglunnar á
höfuð borgarsvæðinu, kom fyrir
allsherjar- og menntamálanefnd
Alþingis í fyrradag og svaraði fyrir-
spurnum um hin týndu sönnunar-
gögn. Tekið skal fram að hún hafði
ekki tekið við embætti þegar
ákvörðun um tálbeituaðgerðina
var tekin. Píratar höfðu frumkvæði
að fundinum.
Sigríður greindi einnig frá því
að hvorki tangur né tetur hefði
fundist af skartgripum og öðrum
fjármunum. Á Vísi var haft eftir
Sigríði Björk:
„Þessir munir hafa ekki kom-
ið í leitirnar þrátt fyrir ítarlega leit.
Þetta hefur verið skoðað innan lög-
reglustjóraembættisins með eins
ítarlegum hætti og mögulegt er.“
Bætti Sigríður við að málið væri litið
alvarlegum augum innan emb-
ættisins. Heimildarmenn DV segja
að lögreglustjórinn leggi þunga
áherslu á að málið sé rannsakað til
að draga af því lærdóm. Líklegasta
niðurstaðan að mati heimildar-
manns DV er að engin niðurstaða
fáist í hvarf verðmætanna og ríkið
greiði á endanum skaðabætur.
„Það gerast mistök eins og í því
máli sem við erum að skoða núna.
Eða hugsanleg refsiverð háttsemi.
Það er verið að rannsaka það af full-
um þunga og af mikilli alvöru.“ n
n Umdeild rassía lögreglu á Strawberries n Jón H.B.: Engin mistök gerð n DV birtir tvö myndskeið sem sýna lögreglumenn hella í sig áfengi
1 bjór, 2 bjórar, gin og svo koníak
Spurningar DV
til stjórnenda lögreglu - Jón H.B. Snorrason svaraði að hluta
DV vill spyrja eftirfarandi spurninga:
n Má lögregla vera drukkin við störf?
n Hver tók ákvörðun um þessa aðgerð og skipulagði hana? Hver stýrði henni?
n Lágu fyrir upplýsingar um vændisstarfsemi eða mansal áður en aðgerðin var sett af
stað?
n Hvaða fjárupphæðir var lögreglumönnum ráðstafað?
n Hvernig var gerð grein fyrir þessum upphæðum sem lögregla fékk til að eyða á barn-
um. Nú hlýtur að vera bókhald í lögreglunni? Hvernig var þetta útlistað?
n Hvað fór fram áður en farið var af stað? Það þurfa að liggja fyrir ákveðnar
grunsemdir. Voru þær nægar? Lá á að gera þetta?
n Hefði verið hægt að vinna þetta með öðrum hætti. Yfirheyrslum? Samtölum við
starfsmenn?
n Það er regla um meðalhófsreglu sem er mjög mikilvæg. Var henni framfylgt?
n Væri hugsanlega hægt að lögsækja lögreglumenn eða stjórnendur vegna aðkomu
þeirra að málinu?
n Aðgerðin er skipulögð af löglærðum mönnum sem þekkja lögin. Eru þeir þarna að
fela lögreglumönnum að gera eitthvað ólöglegt eins og að drekka áfengi og fara svo í
handtökur?
n Voru einhverjir ófaglærðir lögreglumenn á svæðinu?
n Hver stjórnaði á vettvangi? Var einhver stjórnandi inni á staðnum?
n Var stjórnandi fyrir utan?
n Stóð það til frá upphafi að fara í handtökur? Átti þetta að vera upplýsingaöflun sem
síðan breyttist? Og hvað breyttist svo það varð þess valdandi að þetta var gert?
Tekin með valdi
Lögreglumaðurinn ýtti stúl-
kunni á myndinni nokkuð
harkalega í stólinn. Stúlkan
starfaði á staðnum.