Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Síða 18
18 Helgarblað 19. janúar 2018fréttir H ún er búin að vera í sömu buxunum, sem ég benti starfsfólki á um helgina að væru skítugar. Blússu­ bolurinn er einnig haugskítugur. Tennurnar eru afar afar skítugar! Mér finnst þetta ekki hægt. Ég var eiginlega eins og oft áður miður mín eftir þessa heimsókn margra hluta vegna.“ Þannig hljómar dagbókarbrot aðstandenda Elsu Unnar Guð­ mundsdóttur, 82 ára konu sem lést í febrúar 2017 eftir baráttu við krabbamein. Elsa hafði átt góða ævi, en hennar síðustu dagar reyndust sorglegir, bæði fyrir hana og aðstandendur. Dætur hennar segja farir sínar ekki sléttar eftir dvöl hennar á öldrunardeild Vífils­ staða í Garðabæ. Snýr óánægjan meðal annars að þeirri umönnun sem hún fékk og segja þær að lág­ markshreinlæti hafi ekki verið sinnt. Þeim þykir sárt að hugsa til þess að Elsa hafi ekki fengið að deyja með reisn, eins og þær orða það. Heilsunni hrakaði hratt Elsa greindist með heilaæxli þann 18. desember 2016 en áður en að því kom hafði hún verið mjög heilsuhraust og ekið bíl örfáum vikum áður. „Hún var alla tíð afar virk og félagslynd,“ segja dætur Elsu í viðtali við DV. Haustið 2016 var ljóst að heilsu Elsu var tekið að hraka. Í desem­ ber það ár fór hún í rannsókn á Landspítalanum og í höfuð­ myndatöku kom stórt heilaæxli í ljós sem ekkert var hægt að gera við. Börnum Elsu var í fyrstu sagt að hún ætti ekki langt eftir, hugs­ anlega nokkra daga, kannski vik­ ur. Aðstandendur hennar vildu að hún fengi inni á líknardeild enda átti hún ekki að eiga langt eftir. Eitthvað virtist greining á stöðu Elsu breytast því lagt var til að hún færi á hjúkrunarheimili. Ekki nógu veik fyrir líknardeildina „Þeir sögðu að hún væri ekki með nógu mikil einkenni til að fara á líknardeild af því að hún virtist ekki vera mjög kvalin,“ segja dæt­ ur hennar, Hrönn, Guðfinna og Arna Bára Arnarsdætur, og úr varð að fjölskyldan var látin velja hjúkr­ unarheimili. „Við búum tvær systurnar í Garðabænum og hún hafði verið í starfi eldri borgara í Sjálandi í mörg ár. Þannig að við vildum að hún færi á Ísafold sem er þarna á sama plan­ inu,“ segja dæturnar og bæta við að vegna langs biðlista hafi verið lagt til að hún færi á Vífilsstaði með­ an hún væri að bíða. Þær segja að umönnunin sem móðir þeirra fékk á Landspítalanum í Fossvogi hafi verið góð – þrátt fyrir plássleysi – en á Vífilsstöðum væri heimilislegra umhverfi og eitthvað í boði fyrir vistmenn sem ekki er í boði í Foss­ vogi. Úr varð að hún fór á Vífils staði í lok janúar 2017. Dætur Elsu settu­ st niður með blaðamanni vegna óá­ nægju þeirra með þá meðferð sem móðir þeirra fékk á Vífilsstöðum. Augljóst er að þeim er enn mikið niðri fyrir nú þegar tæpt ár er liðið síðan Elsa lést. „Við áttum eiginlega ekki til orð. Við vorum bara mið­ ur okkar. Við vorum í sjokki þegar við komum og í ennþá meira sjokki þegar við fórum,“ segja þær. Benda þær á að fyrsta daginn sem ein þeirra heimsótti móður þeirra hafi hún setið í hjólastól inni í herberginu sínu. „Þá sagðist hún vera alveg að pissa í sig,“ segir dóttir hennar en tvær konur, starfsmenn á Vífilsstöðum, sögðu að hún þyrfti ekki að fara með hana á klósettið – þær væru nýbúnar að því. „Ég segi við þær: „Ef manneskjan segir við mig að hún þurfi að fara á kló­ settið þá fer ég með hana.“ Og hún þurfti svo sannarlega að fara á kló­ settið. Ég get ímyndað mér að það sé ekki auðvelt fyrir fólk sem hef­ ur aldrei þurft aðstoð, að pissa fyr­ ir framan ókunnuga. Ég er ekkert að rengja að þær hafi verið nýbún­ ar að fara með hana,“ segir dóttir­ in sem bætir við að þetta sé aðeins lítið dæmi af mörgum um að um­ önnun hafi stundum verið ábóta­ vant og ákveðið skilningsleysi ríkt. Í því samhengi nefna þær að ekki var passað upp á að taka til­ lit til lágmarksþarfa hennar, hún látin afskiptalaus þegar hún þurfti verulega á aðstoð að halda. Lágmarkshreinlæti og þörfum ekki sinnt Það var dætrum Elsu áfall að upp­ lifa það að lágmarkshreinlæti og þörfum var ekki sinnt þennan mánuð sem hún dvaldi á Vífils­ stöðum. Segja þær að þrátt fyrir að buxur hennar blotnuðu ítrekað og fötin væru skítug hafi ekki ver­ ið skipt um. Benda þær á að starfs­ fólk hafi ítrekað verið beðið um að sinna henni varðandi hrein­ læti en talað hafi verið fyrir dauf­ um eyrum. „Það var öllu fögru lofað, henni yrði sinnt um leið og heimsóknum lyki en það varð alls ekki raunin. Dag eftir dag var reynt að fá starfsfólk til þess að hjálpa henni en ekkert var gert. Þrátt fyr­ ir ítrekuð loforð starfsfólks breytt­ ist ekkert. Dag einn var hún þó sett í hreinar buxur, næfurþunnar bux­ ur, allt of litlar af öðrum vistmanni þrátt fyrir fullan skáp af hreinum fötum. Rúmið hennar var beint undir opnum glugga í köldu febr­ úarveðri en það var plássleysi og tveimur rúmum komið fyrir í eins manns herbergi,“ segja þær. Þegar nokkrir dagar höfðu liðið án þess að Elsu væri hjálpað með hreinlæti og föt, var enn og aftur lof­ að að henni yrði sinnt um leið og heimsóknum til hennar lyki. „Strax á leið heim frá Elsu, hringdi ein okk­ ar í Vífilsstaði til þess að fullvissa sig um að verið væri að sinna þessu lág­ markshreinlæti en það var ekki fyr­ ir því að fara frekar en fyrri daginn.“ Tvær af dætrunum ákváðu að koma aftur seint um kvöldið. „Enn var ekkert búið að gera,“ segja þær en að þarna hafi þær fengið endan­ lega nóg. Þær hafi tekið upp á því sjálfar að færa hana í hrein föt, en það reynst erfitt, enda kunnu þær ekki réttu handtökin eins og starfs­ fólk átti að gera. „Við börnin hennar hefðum gjarnan viljað sinna þessu sjálf en móðir okkar var komin í það ástand að til þurfti tvær manneskjur sem kunnu til verka.“ Myndi ekki láta nokkra manneskju í svona aðstæður Dæturnar segja að á meðan á dvöl móður þeirra á Vífilsstöðum stóð Elsa fékk Ekki að dEyja mEð rEisn n DV birtir dagbókarbrot n Aðstandendur Elsu ósáttir við Vífilsstaði n Ekki skipt um buxur þótt þær hefðu ítrekað blotnað n Fólk fái að deyja með reisn Tjá sig ekki um mál einstakra sjúklinga Ingibjörg Tómasdóttir sagðist ekki kannast við mál Elsu Unnar en kvaðst þó hafa verið hjúkr­ unardeildarstjóri á þeim tíma. „Ég er bara ekki klár á því, ég hreinlega man það ekki,“ sagði Ingi­ björg. „Svona spurningar fara allar í gegnum fjöl­ miðlafulltrúa Vífilsstaða og Landspítalann. Það er sér deild sem sér um samskipti við fjölmiðla […] Ég myndi aldrei tjá mig um málefni sjúklings við dagblað.“ DV hafði samband við deildarstjóra samskiptadeildar Landspítalans, Stefán Hrafn Hagalín. Aðspurð­ ur hvort hann kannaðist við mál Elsu Unnar Guðmundsdóttur neitaði Stefán. „Hér eru 103 þúsund sjúklingar á ári, 250 deildir og 108 byggingar. Við tjáum okkur aldrei um málefni einstakra sjúklinga.“ Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is „Það var öllu fögru lofað, henni yrði sinnt um leið og heim- sóknum lyki en það varð alls ekki raunin. Elsa Unnur Var tæplega 83 ára þegar hún lést. Aðstandendur hennar eru ósáttir við þá umönnun sem hún fékk á Vífilsstöðum. Standa saman Hrönn, Arna Bára og Guðfinna Arnarsdætur vildu afsökunarbeiðni en fengu ekki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.