Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Síða 34
Brot af því besta Helgarblað 19. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ Við fórum í miklar breytingar og endurbætur á sjoppunni fyrir um einu og hálfu ári, lokuðum í mánuð og byggðum staðinn í raun upp á nýtt. Við gerðum miðpunktinn í búðinni að ísbúð og núna er þetta orðin ein af helstu ísbúðum landsins og gefur stærstu ísbúðun- um í Reykjavík ekkert eftir. Við erum með 64 tegundir fyrir bragðaref, 18 tegundir af kúluís og fjórar tegundir af ís úr vél,“ segir Valgeir Magnússon hjá Ungó, Hafnargötu 6 í Keflavík. Ís- inn í Ungó kemur frá Kjörís og er afar vinsæll. Ungó er fjölskyldufyrirtæki en Valgeir keypti staðinn með foreldrum sínum árið 2004. „Foreldrar mínir eru farnir út úr þessu en ég rek stað- inn með eiginkonu minni, Þorgerði Sigurbjörnsdóttur,“ segir Valgeir. Fyrir utan ísinn er Ungó þekkt fyrir úrval af góðum skyndibita, pítsum, ham- borgurum og pylsum. Vinnandi fólk í Keflavík sækir sér gjarnan hádegismat í Ungó og nemendur úr fjölbrautaskólanum streyma þangað núna eftir að skólaárið byrjaði fyrir skömmu. Valgeir býst við miklum mannfjölda á Ljósanótt sem haldin verður dagana 30. ágúst til 3. september. „Ég hefði ekki getað beðið um betri staðsetningu fyrir hátíðina en við erum beint á móti sviðinu og bergið er beint á móti okkur. Síðan er þetta alltaf að stækka. Hátíðin nær hámarki á laugardaginn og þá þurfum við að vera hérna 10 til 15 í afgreiðslu. Veðrið hefur reyndar mikið að segja en í fyrra var sól og blíða og veðurspáin er góð núna,“ segir Valgeir. Ungó er líka þekkt fyrir veglegan nammibar en ólíkt mörgum öðrum stöðum þá er 50% afsláttur á nammibarnum ekki bara á laugar- dögum heldur alla helgina, föstudag, laugardag og sunnudag. Opnunartími í Ungó er frá 9 á morgnana og til 23 á kvöldin á virkum dögum. Á laugardögum og sunnu- dögum er opið frá 10 og fram til miðnættis en á Ljósanótt verður opið til eitt um nóttina. Ef þú hefur ekki fengið þér ís í Ungó ennþá er kominn tími til að prófa – og gestir Ljósanæt- ur láta ekki ógert að kíkja í Ungó. Ungó, HaFnaRgötU 6, KEFLaVÍK Ísinn er þungamiðjan Ísinn í Ungó er ekki lítið vinsæll. nammibarinn er glæsilegur og það er 50% afsláttur þrjá daga í viku. Starfsmenn fyrirtækis-ins Bortækni leysa fagmannlega af hendi öll verkefni, stór sem smá, á fljótlegan og skil- virkan hátt. „Við höfum rúmlega 36 ára reynslu sem er dýrmæt og nýtist viðskiptavinum okkar vel. Strax í upphafi var sér- stök áhersla lögð á fagleg vinnubrögð og þrifalega umgengni,“ segir Halldór Kristjánsson verk- stjóri. Nýjustu og bestu tækin Halldór segir að Bortækni annist margvísleg verkefni, eins og til dæmis kjarnabor- un og steypusögun auk þess sem fyrirtækið sérhæfir sig í niðurrifi. „Bortækni hefur á hátt í fjögurra áratuga ferli ávallt lagt mikla áherslu á að veita viðskiptavinum sínum góða og persónulega þjón- ustu. Með nýjustu og bestu fáanlegum tækjum er okkur kleift að bjóða hraða þjón- ustu á sanngjörnu verði,“ segir hann. Leiðandi á íslenskum verktakamarkaði „Bortækni hefur verið leið- andi í íslenskum verktaka- iðnaði í gegnum tíðina og ekkert verk er of stórt eða of smátt fyrir okkur. Í dag erum við með með 10–12 starfs- menn sem eru allir búnir að vera lengi i faginu. Okkur er mjög umhugað um vinnuöryggi og heilsu okkar starfsmanna. Bortækni vinnur mikið í heimahúsum við að saga glugga, hurðarop og stiga. Fyrirtækið tekur einnig að sér að saga fyrir hita í gólf og sér um að rífa allt, eins og innréttingar, veggi og gólfefni. Við komum á staðinn og gerum verðtilboð þér að kostnaðarlausu,“ segir Halldór að lokum. Bortækni ehf., Miðhrauni 14, 210 Garðabær Símar: 567-7570, 693-7700 Net- fang: bortaekni@bortaekni.is www.bortaekni.is Framúrskarandi þjónusta með nýjustu og bestu tækjum BORtæKni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.