Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Síða 36
Brot af því besta Helgarblað 19. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Að koma í Gullkistuna á Frakkastíg er svolítið eins og að kíkja í kistu
fulla af gulli og gersemum. Bak
við búðarborðið er hún Dóra
Jónsdóttir, núverandi eig-
andi og gullsmiður. Dóra man
tímana tvenna í sögu gullsmíði
á Íslandi en hún byrjaði að
læra fagið árið 1949 og hefur
starfað í Gullkistunni síðan
þá. Gullkistuna má líklega titla
sem elsta gullsmíðaverkstæði
á Íslandi en það var upphaf-
lega stofnað árið 1870 af gull-
smiðnum Erlendi Magnússyni.
Þá var verslunin staðsett að
Þingholtsstræti. Í Gullkistunni
hefur verið unnið það góða
starf að viðhalda hefðum
í skartgripagerð og vinna
með gamla víravirkið sem og
aldagömul mynstur. Gullkistan
er þekktust fyrir smíði á skarti
fyrir þjóðbúninga út frá göml-
um mynstrum og myndum
sem Erlendur safnaði á sínum
tíma en mótin, sem gerð
voru fyrir sandsteypu, fylgdu
verkstæðinu. Enn er farið eftir
þessum gömlu mynstrum, en
gömlu mótin eru nú komin í
varðveislu á Árbæjarsafni.
Varðveita þekkinguna
Aðspurð hvort gamla hand-
verkið sé nokkuð að glatast
segir Dóra að það sé síður
en svo hætta á því. „Gömlu
hefðunum hefur alltaf verið
haldið vel við hér á landi.
Við höfum haft þónokkra
lærlinga hjá okkur sem varð-
veita þekkinguna og þannig
mun handverkið varðveit-
ast áfram um ókomna tíð.“
Ásamt því að vera einn helsti
fulltrúi þjóðbúningasilfursins
á Íslandi þá sinnir Gullkistan
að sjálfsögðu almennri þjón-
ustu við gullsmíði svo sem
hreinsun og lagfæringu og
framleiðir ýmsa fallega gripi
út frá eigin hönnum, enda
leikur málmurinn í fagmann-
legum höndum Dóru.
Mynstrin löngu
orðin íslensk
Eins og áður
sagði þá hann-
ar Gullkistan
meðal annars
skart út frá
eldgömlum
mynstrum sem
rekja rætur
sínar langt
aftur í aldir.
Dóra má heita nokkurs
konar sérfræðingur í þess-
um gömlu mynstrum og hún
tekur strax til við að fræða
blaðamann um efnið. „Mynd-
irnar í mynstrinu segja okkur
sögur af riddurum og hetjum
í bardögum á þjóðflutn-
ingatímanum.
Þessi mynstur
eru líklega frá
miðöldum eða
jafnvel eldri og
voru að berast
hingað smátt
og smátt frá
meginlandinu.
Þeim fylgja
engar skýringar
og vinna menn hörðum
höndum að því að rannsaka
uppruna þeirra. Mynstrin eru
nú mörg hver löngu orðin ís-
lensk þar sem þau hafa verið
smíðuð hér í mörg hundruð
ár. Dæmi er um stokkabelti
á Þjóðminjasafninu í Kaup-
mannahöfn sem er líklega
orðið þrjú hundruð ára gam-
alt og svo eru sams konar
belti á Þjóðminjasafni Íslands
frá 16. öld,“ segir Dóra.
Aldagömul stokkabelti og
nýmóðins tunnel-lokkar
Í Gullkistunni hefur engu verið
gleymt og gömlu hefðunum
ætíð verið haldið þar við. Hjá
Dóru er meðal annars hægt
að fá eins stokkabelti og það
sem finnst á Þjóðminjasafn-
inu í Kaupmannahöfn. Einnig
hannar Dóra ný mynstur
út frá gömlu mynstrunum
og notar við smíðar skarts.
Svo smíðar hún einnig ýmiss
konar nýmóðins skartgripi
af mikilli list. Þess má geta
að Dóra hefur ekki látið sitt
eftir liggja í „tunnel“-æðinu
sem gripið hefur landann að
undanförnu, en í Gullkistunni
má finna dýrindis silfurlokka
sem prýða slík eyrnagöt vel.
Verslunin er staðsett á
Frakkastíg 10. Opið alla virka
daga frá kl. 14.00 til 18.00
og laugardaga frá kl. 11.00 til
14.00. Sími: 551-3160 Hægt
er að nálgast frekari upplýs-
ingar um verslunina á heima-
síðu verslunarinnar.
Aldagamlar hefðir og nýmóðins
silfursmíð, allt í einni kistu
GullKiStAn SMÍðAr EFtir ÞrJú HunDruð ÁrA GöMlu StoKKABElti
Meira afl og minni eyðsla með
tölvustýrðri vélastillingu
KrAFtKort:
Það er merkileg stað-reynd að hægt er að auka kraftinn í bílnum
og spara eldsneyti með því
að uppfæra gögn í tölvu-
búnaði. Vélar í nútímabílum
nota tölvukerfi við stjórnun
vélarinnar. Fjölmargir skynjar-
ar nema aðstæður og mata
vélartölvu bílsins með upplýs-
ingum sem síðan eru notaðar
til að stjórna hegðun vélarinn-
ar. Þessir skynjarar mæla t.d.
lofthita úti, lofthita í soggrein
vélarinnar, vatnshita vélarinn-
ar, stöðu inngjafar, snúnings-
hraða vélar og fjölda annarra
þátta sem nauðsynlegir eru til
að beita vélinni sem best við
viðkomandi aðstæður.
Fyrirtækið Kraftkort, sem
staðsett er að Súlunesi 10
í Garðabæ, hefur veitt fjöl-
mörgum bílum aukið afl og
dregið úr eldsneytisnotkun
þeirra með þessari nútíma-
legu vélastillingu. Guðmundur
rögnvaldsson, sem rekur
fyrirtækið ásamt ragnari Má
Sigrúnarsyni, útskýrir að-
ferðina svo í stuttu máli:
„Þetta snýst um það að við
lesum bíltölvuna og erum í
samstarfi við breskt fyrirtæki
sem heitir Viezue technologies
og er einn stærsti aðilinn á
þessu sviði. Við sendum þeim
skrána sem er á vélartölvunni
í bílnum. Þeir senda okkur nýja
skrá með breyttum stillingum
sem við keyrum inn á tölvuna.
Forritunin sjálf á sér stað hjá
þeim en ekki okkur.“
öll forritin eru prófuð á
dyno-bekkjum hjá Viezu til að
sannreyna tölurnar sem gefnar
eru upp fyrir hvern bíl. Eins
og áður segir stuðlar endur-
forritunin bæði að auknu afli
og meiri sparneytni: „Ef við
tökum dísilbíla, þá getum við
fengið bæði svokallað Per-
formance Map sem lýtur meira
að aflaukningu ásamt því að
minnka eldsneytisnotkun, og
Eco Map, sem veldur minni
aflaukningu en meiri eldsneytis-
sparnaði og dregur úr mengun
frá bílnum,“ segir Guðmundur.
Einnig er hægt að endur-
forrita vélartölvur í bensínbíl-
um en fyrir þá er eingöngu til
Performance Map. Með auknu
afli erfiðar vélin hins vegar
minna og því minnkar eyðsla
með sama aksturslagi.
Guðmundur tók við starf-
semi Kraftkorts í vor en að hans
sögn hefur verið boðið upp
á þessa þjónustu í nokkur ár.
Sem nærri má geta hefur þjón-
ustan þróast í gegnum árin:
„Bílar eru auðvitað ekki eins
og þeir voru fyrir nokkrum
árum, það er alltaf að koma
eitthvað nýtt og hægt að gera
fleira.“
Hér með greininni fylgja
nokkur dæmi um bíla sem
hafa öðlast endurbætt líf, ef
svo má segja, eftir tölvustýrða
vélastillingu hjá Kraftkorti.
Sem fyrr segir er fyrir-
tækið staðsett að Súlunesi
10 í Garðabæ. Heimasíða
er kraftkort.net og Face-
book-síða www.facebook.
com/kraftkortgr. Símanúm-
er er 857-0210. Hægt er
að panta þjónustu eða fá
frekari upplýsingar með því
að hringja eða senda skila-
boð á Facebook-síðunni.
Jafnframt er áhugavert
að skoða heimasíðu Viezu
Technologies, viezu.com.
Þessi 2017 land rover Discovery Sport fékk aflaukningu og fór
úr 148 hestöflum í 178 hestöfl, togið fór úr 380 nm í 440 nm.
Þessi 2008 Mercedes Benz
Axor 1824 fékk aflaukningu
og fór úr 231 hestafli í 261
hestöafl, togið fór úr 810
nm í 870 nm, einnig hefur
eyðslan farið niður um 15%.