Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Side 40
Brot af því besta Helgarblað 19. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ BílauppBoð KróKs: Örugg, hagKvæm og fljótleg leið til að selja Bifreiðar Krókur er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í flutningi og björgun ökutækja. gísli jónsson framkvæmdastjóri segir frá því að félagið reki einnig þjónustumiðstöð þar sem veitt er alhliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða fyrir þá sem þess óska. „starfsfólk Króks hefur mikla reynslu og félagið hefur yfir að ráða öflugum bíla- og tækjabúnaði til að sinna þörfum viðskiptavina.“ Helstu þjónustuþættir Króks eru: n flutningur, björgun og vistun tjónaökutækja. n uppboðsmeðferð bifreiða. n tjónaskoðun bifreiða. n Ástandsskoðun og verðmat bif- reiða. n Úttekt á viðgerðum ökutækja eftir stórtjón. n Björgun, flutningur, vistun, varð- veisla og sala lausafjármuna. n vegaaðstoð á staðnum, rafmagn, dekk og fleira. n Þjónusta Króks er aðgengileg allan sólarhringinn alla daga ársins í gegn- um síma 522-4600. n afgreiðslutími bifreiðageymslu og bílauppboðs er frá kl. 8.30–17.00 alla virka daga. Bílauppboð á vegum Króks að sögn gísla jónssonar eru bílaupp- boð örugg, hagkvæm og fljótleg leið til að selja bifreiðar. „í flestum tilvikum seljast bifreiðar á 3–5 dögum gegn staðgreiðslu. Krókur bílauppboð er viðurkenndur söluaðili sem sér m.a. um sölu á bifreiðum fyrir trygginga- félög og fjármálastofnanir.“ Kostir bilauppbod.is eru: „við seljum bæði bíla sem eru í góðu ásigkomulagi, en einnig bifreiðar sem þarfnast lagfær- inga eða viðgerða. (Ástand bifreiða er tekið fram í sölulýsingu miðað við fyrirliggjandi upplýsingar). seljendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að taka aðrar bifreiðar upp í. uppboðsvöktun er boði fyrir alla þá sem eru skráðir notendur hjá okkur og bjóða í ökutæki og aðra hluti á www.bilauppbod.is. uppboðsvöktun- in virkar þannig að þitt tilboð verður alltaf sjálfkrafa 5.000 krónum hærra en síðasta tilboð frá öðrum – upp að þeirri fjárhæð sem þú hefur skilgreint sem þitt hámarksverð,“ segir gísli. Krókur ehf., Suðurhrauni 3, Garðabæ. Sími: 552–4610 Fax: 522–4649. Krókur: Sérhæfing í flutningi og björgun ökutækja georg v. hannah – Úr og sKartgripir Georg v. hannah er eitt elsta fyrirtæki Keflavíkur en þessi úra- og skartgripa- verslun var stofnuð árið 1968 og er stað- sett að hafnargötu 49 í Keflavík. georg v. hannah er úrsmiður og lét nýlega af störfum, en sonur hans, gullsmiður- inn eggert hannah, hefur tekið við rekstrinum. georg v. hannah býður meðal annars upp á frábært úr- val af erlendum gæðaúrum á stóru verðbili og íslenska skartgripahönnun þar sem fágaður stíll eggerts nýtur sín. „foreldrar mínir eru ný- hættir og ég er nýbúinn að kaupa reksturinn. pabbi er úrsmiður og ég er gullsmiður. Það passar mjög vel saman að hafa hvort tveggja. Ég einbeiti mér núna að úrum og skartgripum en er búinn að losa mig við gjafavöruna sem ég var með. Það er betra fyrir mig að ein- beita mér að aðeins minna fyrirtæki,“ segir eggert. egg- ert leggur sífellt meiri áherslu á eigin hönnun en hann hannar mjög fjölbreytta skartgripi, stundum út frá eigin grunnhug- myndum og stundum í samvinnu við viðskiptavini þar sem hann útfærir þeirra hugmyndir og óskir. „Það er alltaf að aukast eftirspurn- in eftir handsmíðuðu og ég kappkosta að uppfylla hana. innfluttar vörur eru enn í meirihluta í versluninni en handsmíðaðir gripir sækja sífellt á.“ mikið úrval er af falleg- um úrum í versluninni undir gæða- merkjum, t.d. tissot, raymond Weil, hugo Boss, Daniel Wellington og orient. einnig er hægt að fá úrin frá js Watch reykjavík í versluninni, en þau eru íslensk hönnun og sett saman á íslandi. eggert er líka með öfluga viðgerðarþjón- ustu á staðn- um. hann hef- ur boðið upp á handsmíðaða skartgripi í yfir 20 ár og státar af mikilli reynslu, þekkingu og færni. með- al annars handgrefur hann og setur í steina fyrir aðra gullsmiði og heldur árlega námskeið í handáletrun í Danmörku fyrir þarlenda gullsmiði. Fólk vill hand- smíðaða skartgripi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.