Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 42
Brot af því besta Helgarblað 19. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ Bílrúðumeistarinn Allt á einum stað þegar skipta þarf um rúðu lærður Bifreiðasmíðameistari sér um allar rúðuísetningar Þegar bílrúða brotnar eða fær á sig sprungu er gott að hringja í Bílrúðumeistararann, Dalvegi 18, Kópavogi, í síma 571-1133, og panta tíma. eftir það er séð um allt sem á að gera á einum stað, hratt og örugglega. „Það fer rafræn sending frá okkur á tryggingafélagið þannig að viðskiptavinurinn þarf aldrei að vera í neinu sambandi við það frekar en hann vill. Það er mikilvægt að þetta sé ekki flókið fyrir viðskiptavin- inn. Hann geti bara hringt í eitt númer og síðan sé gengið frá öllu á einum stað,“ segir Páll gunnlaugsson, eig- andi Bílrúðumeistarans. Páll er lærður bifreiðasmíðameist- ari og það er góð tilfinning fyrir við- skiptavini að vita af rúðuísetningunni í höndum faglærðs og þrautreynds manns. Páll hefur starfað við rúðu- ísetningar allt frá áriu 2001, en hann stofnaði Bílrúðumeistarann árið 2011. Hefur verið mikill vöxtur í viðskiptun- um vegna góðrar þjónustu að sögn Páls. upprunagæði á ísettu gleri – Hægt að nota plástra og sleppa við rúðu- skipti við minniháttar skemmdir „ég legg áherslu á að nota gler sem er af sömu gæðum og upp- runalega glerið í bílnum og því getur bíleigandinn treyst því að fá jafngóða rúðu og var upphaflega,“ segir Páll, En eru rúðubrot í bílum algeng? „Það er ótrúlega mikið um rúðu- brot. algengast er að eitthvað komi í rúðuna, steinn sem skemmir hana og ef hún brotnar ekki strax þá klárar frostið og hitabreytingarnar verkið. en ef fólk nýtir sér þessa plástra sem bæði eru í boði hjá mér og trygginga- félögunum, þá eru þeir settir yfir skemmdina strax, bíleigandinn kemur síðan með bílinn til mín og ég get fyllt upp í skemmdina án þess að það þurfi að skipta um rúðu. Þetta er auðvitað miklu ódýrari kostur og getur gengið ef skemmdin er á lítt áberandi stað á rúðunni, utan sjóns- viðs ökumanns. auk minni kostnaðar þarf eigandinn þá ekki að greiða fyrir neina sjálfsáhættu.“ Biðtími frá því hringt er í 571-1133 vegna rúðubrots er vanalega 1–2 dagar. Páll segir að rúðubrot vegna skemmdarverka séu sjaldgæfari en það sem hann kallar, rúðubrot af eðlilegum ástæðum. skemmdarverk ganga þó oft í bylgjum og stundum verði mörg rúðubrot á stuttum tíma vegna skemmdarverkafaraldurs. Þess má geta að Páll er fljótur að leysa þau algengu vandamál þegar hliðarrúður festast í upphölurum. Þá er hægt að koma með bílinn beint í Bílrúðumeistarann sem losar rúðuna og skiptir um upphalarann. að sögn Páls eru þessi vandamál algeng þegar byrjar að frjósa á veturna. Býr til sinn eigin ís Við gerum ísinn sjálfir, bæði í Ögurhvarfi og á selfossi, og það er enginn með þennan ís nema við. Við erum með alvöru rjómaís, mjög góðan, og síðan erum við með þennan gamla, kalda ís, sem er vatnskenndur, en hann er mjög vinsæll hjá unga fólkinu,“ segir Jón magnússon, eigandi skalla í Ögur- hvarfi. ísinn hefur ávallt verið aðalsmerki skalla og stendur alltaf fyrir sínu og nýtur alltaf jafnmikilla vinsælda. „ef það bara rétt glittir í sólina þá bókstaflega fyllist allt hérna, sólin fyllir alla lífsgleði og allir vilja fá sér ís,“ segir atli Jónsson, sonur Jóns magnússonar. Þeir feðgar reka skalla í Ögurhvarfi. skalli er líka á selfossi, þar eru aðrir eigendur en náið sam- starf er á milli staðanna og á selfossi er sami góði skallaísinn einnig búinn til frá grunni á staðnum. skalli er líka vinsæll vegna mikils úrvals góðra skyndirétta og er í senn veitingastað- ur og ísbúð. íssalan tekur mikinn kipp á sumrin, ekki síst ef sést til sólar, eins og fyrr segir. girnilegur, fjölbreyttur og ferskur nammibar spillir þar ekki fyrir. skalli á sér langa sögu og hóf starfsemi sem sjoppa og ísbúð í lækjargötu árið 1973. Það voru í raun nemendur í menntaskólanum í reykjavík sem gáfu staðnum nafn: „í lækjargötu var sjoppa áður en skalli var opnaður en hana rak sköll- óttur maður. menntaskólakrakkarnir töluðu um að kíkja á skalla þegar þeir fóru í þá sjoppu og þar með varð nafnið til,“ segir atli. eins og mörg góð fyrirtæki hvílir skalli á gömlum grunni en þróast jafnframt í takt við tímann og er sívin- sæll. sem fyrr segir er skalli á tveimur stöðum, í Ögurhvarfi 2 í Kópavogi og á austurvegi 46 á selfossi. Á báðum stöðunum er ísinn að- alsmerkið en fjölbreytt úrval góðra skyndibita nýtur einnig mikilla vin- sælda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.