Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Side 57
Vikublað 19. janúar 2018 57
um heiminn. Ég, kornung fyrir-
sæta, og hún, umboðsmaðurinn
sem foreldrar mínir þurftu bara að
treysta,“ segir Ragnheiður og bætir
við að hún sjái ekkert eftir þessu
enda bara viðbót í reynslubankann.
Hún starfaði meðal annars í stór-
borgunum London og Mílanó og
fékk tækifæri til að kynnast lífinu
frá allt öðru sjónarhorni en flestar
jafnöldrur hennar.
Eftir að hafa starfað sem fyrir-
sæta í fimm ár tók Ragnheiður þátt
í keppninni Ungfrú Ísland og bar
sigur úr býtum. Var fyrst kjörin
Ungfrú Reykjavík og síðan Ungfrú
Ísland vorið 2001.
„Ég var orðin 21 árs og var því
ellismellurinn í keppendahópnum.
Hafði ágætis bein í nefinu og fannst
þetta því ekki svo mikið mál. Ég
eignaðist fullt af góðum vinkonum
sem ég held enn sambandi við í dag
og í raun var það nægilegt tilefni
til þátttökunnar. Framhaldið hefði
orðið að taka þátt í Ungfrú Heimur
en fljótlega eftir keppnina komst
ég að því að ég var barnshafandi.
Annar keppandi fór út í minn stað
og stóð sig frábærlega. Ég hefði
ekki getað gert betur,“ segir hún, en
Íris Björk Árnadóttir landaði titlin-
um Ungfrú Norðurlönd í október
2001 og Ragnheiði fæddist sonur
þann 22. desember sama ár.
„Svona gerist bara svo auðveld-
lega í litlum samfélögum þar sem
allir vita allt um alla“
Eins og fyrr segir var
Ragnheiður ekki mjög meðvituð
um útlit sitt fram að fyrirsætu-
keppninni. Spurð að því hvort
það hafi haft neikvæð áhrif á hana
að vera síðar skilgreind út frá
hlutverki sætu stelpunnar segir hún
það í raun hafa komið síðar.
„Ég upplifði engan samanburð
eða aðra neikvæðni hvað varðar
útlit mitt fyrr en ég fékk þessa titla.
Þá fóru alls konar kjaftasögur og
baktal af stað og sumar stelpur, sem
ég taldi vinkonur mínar, snerust
allt í einu gegn mér. Þetta virðist
einhvern veginn loða við margar
ungar konur og eflaust þroskaleysi
um að kenna enda finn ég ekki fyr-
ir neinni afbrýðisemi eða mótlæti í
dag og hef ekki gert í mörg ár. Eða
kannski tek ég þetta bara minna
inn á mig núna? Ég veit það ekki,“
segir hún og ypptir öxlum. „Svona
gerist bara svo auðveldlega í litlum
samfélögum þar sem allir vita allt
um alla. Um leið og maður stígur
út úr þeim þægindaramma að eiga
einkalífið ekki bara fyrir sig þá er
maður um leið berskjaldaðri. Á
þessum árum þekktist það ekki að
stelpur færu út fyrir normið í þessu
litla Alcatraz-samfélagi. Stundum
var þetta drulluerfitt en ég sé samt
ekki eftir neinu enda lærði ég
ósköpin öll af þessu.“
„Fólk annaðhvort elskaði að hata mig,
eða hataði að elska mig“
Ragnheiður var í sambúð með
barnsföður sínum í tæp þrjú ár en
leiðir þeirra skildi eins og gengur.
Hún réð sig til starfa hjá sjónvarps-
stöðinni PoppTíVí sem var og
hét og steig þar sín fyrstu skref í
fjölmiðlabransanum þegar hún hélt
úti lífsstíls- og dægurmálaþættin-
um Prófíl.
„Þetta var virkilega skemmti-
legt og fjölbreytt starf. Við vorum
með fjölbreyttar vörukynningar í
verslunum, seldum innslög í þátt-
inn og fjölluðum svo um komandi
stefnur og strauma, til dæmis í
heilsu- og tískubransanum. Það má
segja að þetta hafi verið kostaður
lífsstílsþáttur, sambærilegur við
vöruumfjöllun sem tíðkast á netinu
og samfélagsmiðlum í dag en þar
vorum við töluvert á undan okkar
samtíð held ég með þessum þætti.“
Með jákvæða reynslu af því að
koma fram í sjónvarpi færði hún
sig yfir á Stöð 2 og tók við af Ingu
Lind Karlsdóttur þegar hún hætti
í þættinum Ísland í bítið. Ragn-
heiður stýrði þessum morgunþætti
ásamt Heimi Karlssyni í um eitt ár
og segir það hafa tekið verulega á.
„Fólk annaðhvort elskaði að hata
mig, eða hataði að elska mig. Ég
held að ég hafi bara verið stimpluð
sem heimsk ljóska enda var mér
gert að fjalla um hluti sem ég hafði
aldrei haft áhuga á og átti erfitt með
að setja mig inn í. Til dæmis póli-
tík. Samt var ég eitthvað að reyna
að setja mig í stellingar,“ segir hún
og skellir upp úr.
„Ég hafði einlægan áhuga á
mannlega þættinum meðan Heimir
var sterkur í öllu sem sneri að
stjórnmálum. Á köflum fékk ég að
njóta mín en stundum var ég
Ég hef
kannski
bognað
en aldrei
brotnað
„Ég hef alltaf
haft meira
gaman af útiveru og
einhvers konar hasar
heldur en að punta
sjálfa mig.
„Undir lokin
var ég svo ég
svo bara algjörlega
komin með upp í
kok af neikvæðri
gagnrýni, aðfinnslum
og öðrum leiðindum
í minn garð.