Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 58
Vikublað 19. janúar 2018 58
þvinguð til að fjalla um hluti sem
ég hafði litla sem enga þekkingu á
og þá kemur maður svo sem ekkert
vel út. Svo var þetta á þeim tíma
sem NFS, eða Nýja Fréttastöðin,
var að fæðast þannig að það var
gríðarleg áhersla lögð á allt sem
sneri að fréttum og pólitík. Þeir
ætluðu sér að verða BBC News
Íslands. Ég var fróðleiksfús og gerði
mitt besta til að afla mér upplýsinga
um hin ýmsu mál – en kannski gaf
fólk mér bara ekki séns? Ég veit það
ekki. Undir lokin var ég svo bara
algjörlega komin með upp í kok af
neikvæðri gagnrýni, aðfinnslum
og öðrum leiðindum í minn garð
enda má segja að þetta niðurrif hafi
flæmt mig úr fjölmiðlabransanum,“
segir Ragnheiður og rifjar upp
færslur og athugasemdir sem hún
las um sjálfa sig, meðal annars á
Barnalandi og ýmsum bloggsíðum
sem þá gegndu svipuðu hlutverki
og Facebook og Twitter gera í dag.
Hefur bognað en aldrei brotnað
„Maður las alls konar rugl eins
og til dæmis að maður gæti eins
verið með póstkassa í staðinn fyrir
haus, fólk var ekkert að spara sitt
ömurlega álit. Fyrst um sinn hafði
þetta mjög niðurbrjótandi áhrif
á mig og ég lét þetta stjórna því
hvernig mér leið en þegar NFS fór
á hausinn, hætti ég í fjölmiðlum og
fór inn á önnur svið,“ segir hún,
en Ragnheiði var sagt upp ásamt
fjölda annarra starfsmanna þegar
fyrirtækið hætti.
„Að vera sagt upp er reynsla
sem ég hefði ekki viljað missa af.
Margir líta á uppsögn úr starfi sem
gríðarlega höfnun en í dag er ég
þakklát fyrir þetta því þrátt fyrir
allt sem á hefur gengið í lífi mínu
hef ég, innst inni, alltaf einhvern
veginn vitað fyrir hvað ég stend.
Ég hef kannski bognað en aldrei
brotnað – og ég held að ég sé
komin með ansi þykkan skráp.
Gagnrýnin, afbrýðisemin, mót-
lætið, umtalið og aðfinnslurnar
byrjuðu auðvitað þegar ég var bara
fimmtán ára en það var ekki fyrr
en eftir þessa reynslu að ég tók þá
ákvörðun að álit annarra skyldi
aldrei ráða því hvernig mér liði eða
hvað mér þætti um sjálfa mig og ef
það væri einhver sem ætti að bera
ábyrgð á minni líðan þá væri það
einungis ég sjálf,“ segir hún.
„Pabbi var alltaf kletturinn í mínu lífi“
Eftir þetta beindist athygli hennar
inn á önnur svið. Hún skráði sig
í nám í mannauðsfræðum hjá
Endurmenntun Háskólans og það-
an lá leiðin í sálfræðina en Ragn-
heiður útskrifaðist með meistara-
gráðu í félags- og vinnusálfræði frá
Háskóla Íslands árið 2013. Í dag
starfar hún sem framkvæmdastjóri
Forvarna ehf. og sinnir bæði
einstaklingum og fyrirtækjum,
ásamt fleira fólki sem þar starfar,
en aðaláherslu leggur Ragnheiður
á að hjálpa fólki að fyrirbyggja
heilsubrest sem orsakast af völdum
streitu og álags. Áhuga hennar á
þessu orsakasamhengi má meðal
annars rekja til ótímabærs dauða
föður hennar sem lést úr krabba-
meini aðeins 56 ára að aldri.
„Hann vann mikið álagsstarf
og ég er viss um að partur af hans
veikindum orsakaðist af streitu en
hann var bráðkvaddur í sömu viku
og hann greindist með krabbamein
í ósæðinni við hjartað. Okkur
fjölskyldunni var tilkynnt um
veikindin á þriðjudegi og svo var
hann látinn á föstudegi. Maður veit
eiginlega ekki hvort það er betra að
missa fólk skyndilega eða fá tíma
til að kveðja það, en við áttum góða
stund saman áður enn hann fór.
Pabbi var alltaf kletturinn í mínu
lífi og að missa hann var auðvitað
innlegg í reynslubankann líka,“
segir hún og ljóst er að henni þótti
ákaflega vænt um pabba sinn.
„Erum við sífellt að bera okkur saman
við annað fólk?“
Hún segist trúa því að samhengið
á milli þess að veikjast alvarlega
og/eða deyja fyrir aldur fram megi
oft rekja beint til mikillar streitu.
Streitan geti orðið allsráðandi
í lífi margra og þá sé það ýmist
innri streita, ytri streita eða hvort
tveggja, sem hafi tögl og hagldir.
Ytri streitu skilgreinir hún sem
uppákomur og aðstæður sem
við höfum enga eða litla stjórn
á, til dæmis dauðsföll, veikindi,
tekjumissi eða þess háttar, en innri
streitu segir hún vanalega orsakast
af hugsunum sem við gætum oft
haft miklu betri stjórn á. Hún telur
að margt ungt fólk, á aldrinum
tuttugu til fjörtíu ára, glími við
innri streitu sem í flestum tilfellum
mætti draga stórlega úr.
„Fyrst og fremst þurfum við
að byrja á því að skoða viðhorfin
okkar og komast að því hvort þau
séu að gagnast okkur. Erum við
til dæmis á kafi í lífsgæðakapp-
hlaupinu eða föst í einhvers konar
útlitsdýrkun? Erum við sífellt að
bera okkur saman við annað fólk
og kannski setja okkur óraunhæf
markmið? Og erum við haldin of
mikilli þörf fyrir viðurkenningu?
Þetta eru mikilvægar spurningar
sem er gott að svara, því ef viðhorf-
in gagnast okkur ekki þá keyrum
við okkur stundum í gegnum lífið,
með slæmum afleiðingum, ekki að-
eins fyrir okkur sjálf heldur einnig
fyrir okkar nánasta fólk, bæði börn
og maka,“ segir Ragnheiður.
Áróður um fullkomið líf
Hún segir að mörg gerum við þau
mistök að lifa lífinu á forsendum
annarra og gleymum stundum að
staldra við og spyrja hvort það sem
við séum að gera sé raunverulega
það sem okkur langar til. Sýndar-
veruleikinn á samfélagsmiðlum
geti til dæmis gert fólki lífið leitt ef
það er ekki meðvitað um andlegu
áhrifin sem geta fylgt því að verða
fyrir stöðugu áreiti og áminningum
um einhvers konar fullkomið líf.
„Það dynur á okkur þessi endalausi
áróður um að eignast fullkomið
heimili, keyra um á fullkomnum
bíl, vera í góðu sambandi við
fullkominn maka og eiga fullkomin
kurteis börn – og síðast ekki síst
hafa fullkomið útlit til að lífið geti
orðið gott. Auðvitað er ekki til neitt
sem heitir fullkomið líf og þetta
vita flestir en við þetta áreiti getur
samt sem áður myndast ósamræmi
milli innri og ytri veruleika sem
skilar sér svo í vanlíðan. Fólk veltir
því fyrir sér hvernig það muni
nokkurn tímann ná að höndla
hamingjuna þegar lífið er eins
ófullkomið og raun ber vitni. Með
öðrum orðum verður bilið á milli
þess hver þú ert, og hver þig langar
til að verða, of breitt. Og svo er það
annað mál að „hver mig langar til
að vera“ stjórnast oft allt of mikið af
því sem maður telur að aðrir haldi
um mann, eða áliti annarra.“
Þú hefur þá kannski dregið
þennan lærdóm beint upp úr eigin
reynslubrunni?
„Já, auðvitað lærði ég af því að
hafa lent á þeim stað í lífinu að
skoðanir, álit, hugsun og hegðun
annarra stjórnuðu því næstum
alfarið hvernig mér sjálfri leið og
þótt hún hafi ekki verið skemmtileg
þá hefur þessi lífsreynsla einnig
nýst mér mjög vel í starfinu. Ég hef
til að mynda lært að þekkja eigin
tilfinningar nokkuð vel og stjórna
þeim eftir bestu getu, en um leið
hef ég líka öðlast ágætis tilfinninga-
læsi og á auðvelt með að skilja fólk
og setja mig í spor annarra.“
Áreitið verður alltaf til staðar
Hún segir, að þrátt fyrir margs konar
vonbrigði og erfiðleika, hefði hún
aldrei viljað að henni hefði verið
hlíft við þeim verkefnum sem lífið
hefur fært henni til þessa. Í sumum
tilfellum hafi hún haft takmarkaða
stjórn á aðstæðum og öðrum ekki,
en allt hafi þetta verið góðar lexíur
sem nýtist vel í dag. Í starfi sínu
þakkar Ragnheiður Ólafi Þór Ævars-
syni, geðlækni og eiganda Forvarna,
sérstaklega fyrir góða handleiðslu
en með honum hefur hún starfað
allt frá því að hún byrjaði að læra
sálfræði. Með tímanum hefur hún
svo öðlast mikla sérþekkingu á
áhrifum streitu og starf hennar
gengur aðallega út á að liðsinna fólki
á því sviði. Þrátt fyrir áðurnefnda
útgangspunkta um innri og ytri
streituvalda segir hún það þó mjög
einstaklingsbundið hvað það sé sem
stressar fólk upp. „Þegar ég tala um
streituvarnir þá á ég oftast við svefn,
mataræði, hreyfingu og hugarfar.
Áreitið verður alltaf til staðar í lífinu
en hvert og eitt þurfum við að byggja
upp markvissar varnir með því að
passa upp á þessi grundvallaratriði.“
Smátt og smátt
verður hamingjan meiri
Hvað finnst þér þá um það þegar
fólk er að mæla hreyfingu sína og
birta svo árangurinn, tíma, þyngd
og þess háttar á samfélagsmiðl-
um eða í þar til gerðum öppum?
Verður þessi viðleitni til að lifa
heilbrigðara lífi kannski til þess að
auka streituna hjá sumum?
„Vissulega. Hjá mörgum verða
þessi smáforrit, og aðrir sam-
félagsmiðlar, einmitt til þess að
samanburðurinn við annað fólk
verður meiri og óheilbrigðari. Í
kjölfarið líður mörgum sífellt verr
ef árangurinn er ekki í samræmi
við markmiðin. Þessari tækni er
vissulega ætlað að bæta líf okkar
og einfalda það en ef við kunnum
ekki að fara með hana þá getur
tilveran orðið erfiðari. Með sam-
félagsmiðlatengd útivistarforrit á
borð við Endomodo, Strava og þess
háttar er kannski málið að byrja
á því að spyrja til hvers maður sé
að stunda hlaup og hjólreiðar? Er
maður að þessu til að aðrir geti
fylgst með manni, séð hvað maður
er fljótur og hvað maður hjólar
langt, eða erum við fyrst og fremst
að þessu í þeim tilgangi að bæta
eigin lífsgæði?“
Hún lýsir huganum sem félags-
legu líffæri og að í honum mótist
öll okkar félagslega hegðun allt frá
því við erum börn.
„Frá upphafi er okkur sagt
hvernig við eigum að haga okkur
við ákveðnar félagslegar aðstæður,
hvernig við ættum að bregðast við
og svo framvegis, og smám saman
skilyrðist hugarfarið inn á ákveðna
hegðun. Þess vegna er fyrsta mál
á dagskrá að skoða hugann ef við
viljum breyta einhverju í lífinu,“
segir hún og bendir um leið á að
allt snúist þetta um ákvarðanir.
Að alla daga stöndum við frammi
fyrir því að velja ýmist A eða B
en styrkurinn og hamingjan séu í
raun fólgin í því að velja það sem
er betra fyrir mann þegar til lengri
tíma er litið.
„Maður hugsar fyrst, ákveður
sig og framkvæmir svo. Stundum
ákveðum við hlutina svo fljótt að
við tökum ekki einu sinni eftir því
en því oftar sem maður staldrar
við, hugsar málið og velur svo þann
kostinn sem er betri fyrir mann
til lengri tíma – eins og til dæmis
að borða hollan mat í staðinn fyrir
skyndibita, því betur líður manni
og smátt og smátt verður hamingj-
an meiri.“
„Maður veit
eiginlega ekki
hvort það er betra
að missa fólk skyndi-
lega eða fá tíma til
að kveðja það.