Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Qupperneq 64

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Qupperneq 64
64 Helgarblað 19. janúar 2018 Menning Aldrei úr augsýn Menningartoppur „Þetta snýst of mikið um það hvaða nöfn eru að koma. Við erum komin með svo hæft fólk hérna til þess að spila verkin sem við þurftum áður að fá aðra til þess að flytja fyrir okkur. Fullt af hæfu fólki sem bara situr heima hjá sér.“ Bjarni Frímann Bjarnason, nýráðinn tónlistarstjóri Íslensku óperunnar, velti því fyrir sér í viðtali í Fréttablaðinu hvort nauðsynlegt væri að flytja svo marga erlenda tónlistarmenn til landsins þegar hérlendir listamenn gætu vel tekist á við sömu verk af svipaðri færni. n Eftirlit með einstaklingum verður stöðugt umfangsmeira og margþættara n Louise Wolthers ræðir um ljósmyndun og eftirlitssamfélagið M anneskjur búa við marg­ falt umfangsmeira eftirlit í dag en nokkur tímann í sögunni – við erum nán­ ast alltaf sýnileg og aldrei algjör­ lega úr augnsýn. Stjórnvöld setja upp eftirlitsmyndavélar, stórfyrir­ tæki safna saman öllum okkar stafrænu fótsporum og teikna upp nákvæma mynd af hegðun okkar, þar að auki tökum við sjálf­ viljug þátt í eftirlitinu með því að taka óteljandi myndir og opinbera smæstu smáatriði hversdagslífs okkar á samfélagsmiðlum. Eftir­ litið er ekki lengur einfalt fyrirbæri sem er á ábyrgð eins aðila heldur flæðir um allt mannfélagið, yfir og á milli okkar – „fljótandi eftirlit“ hefur þessi nýi sýnileiki stundum verið kallaður. Ljósmyndun og sjónlistir eru það svið menningarinnar sem hefur tekið hvað ítarlegast á við spurningar um sýnileika og sjón­ arhorn, valdið sem felst í því að sjá og valdaleysinu sem hinn sýnilegi getur upplifað. Það er einmitt þess vegna sem sú þekking og tilrauna­ starfsemi sem fer fram á þess­ um sviðum ætti að geta hjálpað okkur að átta okkur á eftirlitinu, myndgert þessa alsjá samtím­ ans, gagnrýnt hana og ögrað. Þetta segir danski listfræðingur­ inn og yfirmaður rannsóknasviðs Hasselblad­stofnunarinnar í Gautaborg, Louise Wolthers. Louise fjallaði um eftirlit og ljós­ myndun í opnunarfyrir­ lestri Ljósmyndahátíðar Íslands í Þjóðminjasafninu á fimmtudag, en hún hefur rannsakað efnið í sýningunni ÁHORF! Eftirlit, list og ljósmyndun sem var sýnd í Hasselblad Center í Gautaborg, í Kunsthall Aarhus og C/O í Berlín, sem hún fylgdi svo eftir með sam­ nefndri bók. Blaðamaður DV ræddi við Louise skömmu áður en hún kom til landsins í gegnum vefmyndavél og spjallrás sem er að öllum lík­ indum auðhleranleg af óskamm­ feilnum hökkurum eða upplýs­ ingafíknum stjórnvöldum. Ytra og innra eftirlit Við hugsum oft um eftirlitssamfé- lagið sem sérstaklega nútímalegt fyrirbæri, en er þessi tilhneiging valdamikilla aðila til að fylgjast með undirsátum sínum ný af nál- inni? „Nei, eftirlit er alls ekki nýtt fyrirbæri. Upphafspunkturinn hjá mér, eins og mörgum öðrum sem hafa rannsakað þetta, er fræg grein franska heimspekingsins Michel Foucault, en hann setur fram þá kenningu að eftirlit sam­ tímans eigi sér fyrirmynd í sér­ stöku fangelsiskerfi sem Jeremy Bentham hannaði á 18. öld, al­ sjánni (e. Panopticon),“ segir Lou­ ise og vísar til fangelsishugmynda sem fólust í því að hafa varðturn í miðju hringlaga fangelsis. Fanga­ vörðurinn í turninum gæti alltaf séð inn í hvern klefa en ómögulegt væri fyrir fanga að sjá úr klefanum inn í turninn. „Þetta fangelsi var hannað þannig að fangarnir vissu aldrei almennilega hvort fangaverðirn­ ir væru að fylgjast með þeim en arkitektúr fangelsisins gerði það að verkum að það var alltaf möguleiki. Fangarnir bjuggu því stöðugt við þá tilfinningu að það væri fylgst með þeim,“ segir Louise. Hugmynd Foucault var að þessi stöðugi sýnileiki í fangelsinu, og nútímasamfélagi almennt, gerði það að verkum að hver einstak­ lingur sæi um það að ritskoða sjálfan sig og móta hegðun sína á viðeigandi hátt. Yfirvaldið þurfi smám saman í minna mæli að sjá um að refsa fólki – það sæi bara um það sjálft. Öryggi og aðgengi „En auðvitað nær hugmyndin um algjört eftirlit enn lengra aftur,“ bætir Louise við. „Vangaveltur um eftirliti ná að minnsta kosti aftur til hugmyndarinnar um Guð, hið al­ sjáandi auga sem fylgist alltaf með þér og sér allar syndir þínar. Það er áhugavert að eftirlitið hefur alltaf haft þessar tvær hliðar. Það er annars vegar þessi ógnun, athug­ un, eftirlit sem sér til þess að þér verði refsað ef þú gerir eitthvað rangt. Á sama tíma er þetta líka hugmyndin um að einhver sjái um þig, fylgist með þér svo hann geti passað upp á þig.“ Sögulega hefur þetta verið helsta röksemdin fyrir réttmæti eftirlits, aðeins þannig geti ríkið tryggt öryggi borgara sinna sem best. Þetta er svo samtengt þró­ un á undanförnum áratugum þar sem ýmiss konar áhætta og leiðir til að útrýma áhættuþáttum er eitt helsta umhugsunarefni samfé­ lagsins – það sem félagsfræðingar hafa kallað áhættusamfélagið (e. risk society). Í óorðuðum sam­ félagslegum sáttmála samþykk­ ir borgari að gangast undir eftirlit ríkisins gegn því að yfirvöld tryggi öryggi hans. Á undanförnum árum hefur myndin þó orðið talsvert flóknari þar sem tilgangur og röksemdir Fyrstu fangamyndirnar Á áttunda áratug 19. aldar voru teknar portrett- myndir af fangelsuðum byltingarsinnum sem höfðu tekið þátt í uppreisninni sem nefnd hefur verið Parísarkommúnan. Nokkrum árum síðar var þróað í París skrásetningarkerfi og ljósmyndatækni sem enn er notuð í dag, hin alræmda fangamynd. Ljósmynda- hátíð Íslands Fer fram 18.–21. janúar 2018 Hátíðin: Haldin í fyrsta skipti árið 2012 og fer fram annað hvert ár. Markmið hátíðarinnar er að vinna að framþróun ljósmyndunar sem listforms. Dagskrá: Ljósmyndasýningar með erlendum og íslenskum listamönnum, fyrirlestrar, ljósmyndabókakynningar og ljósmyndarýni. Allar upplýsingar um dagskrána eru að finna á vefsíðunni www.tipf.is. Staðsetning: Ljósmyndasafn Reykjavík- ur, Gerðarsafn, Hafnarborg, Listasafn Íslands, Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni og Ramskram. Listrænir stjórnendur: Pétur Thomsen og Katrín Elvarsdóttir DNA hvers- dagsins Al- berto Frigo hefur síðan árið 2004 tekið myndir af hverjum einasta hlut sem hann hefur snert með hægri hendinni. Myndirnar geta sýningargestir rýnt í með stækkunargleri. MYND Alberto Frigo Kristján guðjónsson kristjan@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.