Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Side 65
menning 65Helgarblað 19. janúar 2018
Aldrei úr augsýn
Metsölulisti Eymundsson
Vikuna 8.–14. janúar
Vinsælast í bíó
Helgina 12.–14. janúar
Vinsælast á Spotify
18. janúar 2018
1 Þorsti - Jo Nesbø
2 Bætt melting betra líf - Michael
Mosley
3 Sigraðu sjálfan þig - Ingvar Jónsson
4 Náttbirta - Ann Cleeves
5 Vertu ósýnilegur - Kristín Helga
Gunnarsdóttir
6 Dóra Bruder - Patrick Modiano
7 Gatið - Yrsa Sigurðardóttir
8 Ný tölfræði fyrir framhaldsskóla -
Björn Einar Árnason
9 Svanurinn - Guðbergur Bergsson
10 Þyrluránið - Jonas Bonnier
1 Paddington 2
2 Jumanji
3 The Commuter
4 Star Wars: The Last Jedi
5 The Greatest Showman
6 Ferdinand
7 Pitch Perfect 3
8 Downsizing
9 Coco
10 The Disaster Artist
1 Út í geim - Birnir
2 Já ég veit - Birnir og Herra Hnet-
usmjör
3 Ungir strákar - deep mix - Floni
4 Rockstar - Post Malone og 21
Savage
5 Trappa - Floni
6 River - Eminem og Ed Sheeran
7 Havana - Camilla Cabello og Young
Thug
8 B.O.B.A. - JóiPé og Króli
9 Perfect duet - Ed Sheeran og
Beyoncé
10 Labbilabb - Herra Hnetusmjör
AlsjáinFangelsi með stöðugu eftirliti sem gerir það að verkum að fangarnir fara að aga sig
sjálfir. Eru sömu lögmál að verki í eftirlitssamfélagi samtímans?
„Vangaveltur
um eftirlit ná
að minnsta kosti aftur
til hugmyndarinnar um
Guð, hið alsjáandi auga
sem fylgist alltaf með
þér og sér allar syndir
þínar.
eftirlits tæknifyrir-
tækja er allt annar
en ríkisins. Neytandi
samþykkir eftirlitið í skipt-
um fyrir auðvelt aðgengi að
ýmiss konar tækjum og staf-
rænum tólum, en tilgang-
ur fyrirtækjanna er fyrst og
fremst að reikna út langanir
neytanda og selja viðeigandi
auglýsendum aðgang að viðkom-
andi.
Ljósmyndin í þágu eftirlitsins
Ég geri ráð fyrir að ljósmynda-
tæknin hafi mjög snemma verið
nýtt í þágu eftirlits yfirvalda. Hvað
er hægt að segja um áhrif ljós-
myndarinnar á þróun eftirlits?
„Já, ljósmyndamiðillinn hefur
alveg frá upphafi verið samtvinn-
aður eftirliti yfirvalda. Hann hef-
ur til dæmis verið notaður sem
hluti af skrifræðinu, sem mið-
ill til að skrá stóra hópa fólks í
skjalasöfn. Klassískt dæmi er til
dæmis hvernig franski afbrota-
fræðingurinn Alphons Bertillion
fann upp fangamyndina (e. mug
shot) í kringum 1880, það er skýrt
dæmi um hvernig ljósmyndin var
notuð til eftirlits og söfnun upp-
lýsinga. Frá upphafi hefur eftir lit
helst beinst að ýmiss konar óæski-
legum aðilum á borð við glæpa-
menn. En á sama tíma hefur hún
alltaf verið notuð til að skrásetja
ýmsa aðra minnihlutahópa – til
dæmis í mannfræðilegum til-
gangi. Þetta hefur verið leið til
að safna saman og flokka þá sem
gætu kallast „hinn“.“
Er framþróun í myndavélar-
tækninni þá ekki líka drifkraftur í
auknu eftirliti, hvaða áhrif hefur
það til dæmis að stafræna mynda-
vélin kemur fram?
„Jú, hún hefur haft áhrif að
mörgu leyti. Til dæmis hvað
varðar hvernig stór tæknifyrir-
tæki geta fylgst með okkur – og
svo hvernig það getur verið fært
áfram til bandarískra eftirlitsyfir-
valda á borð við NSA. En stafræna
myndavélin hefur líka haft áhrif
á það hvernig við erum farin að
stunda hversdagslegra eftirlit með
jafningjum okkar, þetta er það
sem hefur verið kallað „lá-
rétt eftirlit“ milli fólks. Með
þessu lárétta eftirliti verð-
ur það mjög óskýrt í hug-
um fólks hvort eft-
irlit sé af hinu
góða eða
slæma.
Í dag
hrærumst
við í flóknu sam-
tvinnuðu neti margs konar
ólíks eftirlits sem stafræn ljós-
myndun, aðgengileiki, auðveld
dreifing og geymsla stafrænna
gagna hefur haft afgerandi áhrif á.“
Gagnrýnisleysi á Norðurlöndum
Louise segir að það sé ekki síst
mikilvægt að ræða eðli og af-
leiðingar eftirlitsins á Norður-
löndum enda hafa rannsóknir
sýnt að þar sé fólk mun jákvæðara
en annars staðar í garð hvers kon-
ar eftirlits. Hún bendir á að vanda-
málið við eftirlit stjórnvalda sé
ekki bara í framtíðinni eins og
margir telji, í þeirri pólitísku
óvissu um hvort andlýðræðislegir
stjórnmálamenn geti einn daginn
náð stjórnartaumunum og nýtt
eftirlitstæknina á ómannúðlegan
hátt gagnvart heiðvirðu fólki, því
jafnvel þegar lýðræðisleg stjórn-
völd séu við lýði mismuni tæknin
og komi oftar en ekki illa niður á
varnarlausustu aðilum samfélags-
ins.
„Á Norðurlöndum er viðkvæð-
ið gagnvart eftirlitinu yfirleitt það
að ef þú hefur ekki gert neitt rangt
þá hafir þú ekkert að fela. Fólk að-
hyllist hálfgerða útópíu um al-
gjöran sýnileika – en það er ekk-
ert annað en útópía því það er
aðeins sá sem býr við mikil for-
réttindi sem myndi óska eftir
slíku. Sýnileiki getur aukið hætt-
una fyrir þann sem þarf á einhvern
hátt að óttast að vera opin beraður
eða gerður sýnilegur, hvort sem
hann er óskráður innflytjandi eða
starfsmaður í kynlífsiðnaði,“ segir
Louise.
Eitt verkið í sýningunni
ÁHORF! er til að mynda byggt á
ljósmyndum sem teknar hafa ver-
ið af kortlagningarbíl Google og
sýna kynlífsverkakonur þar sem
þær bíða eftir kúnnum við vegi
í Suður-Evrópu. Karlmenn hafa
svo nýtt myndirnar til að staðsetja
konurnar og umhverfið, en það
gæti verið dæmi um hvernig algjör
sýnileiki getur aukið líkamlega
hættu fyrir hinn valdalitla.
En af hverju eru Norðurlanda-
búar svona jákvæðir í garð eft-
irlitsins?
„Það þarf eflaust að rannsaka
það betur, en það hefur meðal
annars verið bent á að þetta hafi
með velferðarsamfélagið að gera.
Við erum vön því að njóta félags-
legra ávaxta velferðarsamfélags-
ins, ávinningurinn næst að hluta
til með félagslegu eftirlit og að-
haldi. Það sem skiptir líka máli
er að við höfum ekki upplifað al-
ræðistilburði af hálfu ríkisins í
sama mæli og aðrir hlutar Evrópu
og heimsins. Að lokum eru þetta
mjög einsleit samfélög og fólk
veltir lítið fyrir sér stöðu þeirra
sem koma nýir inn í samfélagið og
gætu verið sérstaklega berskjald-
aðir fyrir sýnileikanum. Þetta virð-
ist vera frekar blindur punktur hjá
mörgum Norðurlandabúum og
vantar samstöðu með þeim sem
minna mega sín og þyrftu kannski
öryggi gagnvart eftirlitinu.“
Trufla stigveldi áhorfsins
Eftirlit nútímans snýst ekki síður
um söfnun og greiningu mikils
magns upplýsinga um hegðun
einstaklings en sjónrænt eftirlit
með myndavélum. Hvað getur svið
ljósmyndunar komið með inn í
umræðuna um eftirlit?
„Ég held að myndlist og ljós-
myndun hafi ýmsilegt upp á að
bjóða. Það er löng hefð fyrir gagn-
rýnni heimildaljósmyndun, löng
hefð fyrir því að vera meðvitað-
ur um augnaráð, um sjónarhorn
og það hvernig vald getur birst í
áhorfi. Velta fyrir sér hvaða áhrif
það hefur að sumir geti horft á og
skrásett tilveru annarra. Margir
ljósmyndarar og listamenn hafa
velt fyrir sér hvernig hægt er að
breyta eða brjóta upp þetta ójafn-
vægi, hvernig er hægt að trufla
stigveldi áhorfsins. Þessar aðferðir
geta verið mjög gagnlegar og við-
eigandi enn þann dag í dag, jafn-
vel þó að mikið af eftirlitinu fari
bara fram í gegnum hreinar tölu-
legar upplýsingar. Listamenn og
ljósmyndarar geta auðvitað líka
sett hluti fram á sjónrænan hátt
sem við erum ekki vön að sjá.“
Er eitthvert dæmi um ljós-
myndaverk úr sýningunni sem
þér dettur í hug sem varpar upp
nýjum hliðum á umræðuna
um eftirlit í samtímanum?
„Ég get til dæmis nefnt
verkefni Albertos Frigo, en
hann dregur fram þetta
hversdagslega eftirlit í
brjálæðislegu verkefni þar
sem hann tekur ljósmyndir
af hverjum einasta hlut sem
hann snertir með hægri hönd
sinni. Hann byrjaði á þessu árið
2004 og ætlar að halda
þessu áfram til
2040. Þegar
maður hittir
hann og
fær sér kaffi
með hon-
um byrj-
ar hann
á því að
taka
mynd af kaffibollanum með lítilli
myndavél. Hverri einustu mynd
safnar hann í skjalasafn á netinu,
þetta eru nú þegar orðnir tugir
þúsunda mynda. Hann safn-
ar þeim saman fyrir sýningar og
prentar út, en maður þarf nánast
stækkunargler til að skoða þær.
Þetta verkefni minnir mann auð-
vitað á hvernig við höfum tilhneig-
ingu til að taka og deila mynd-
um af alls konar hversdagslegum
athöfnum og vekur upp
spurningar um
þetta. Með því
að fara enn
lengra með
þetta sýnir
hann okkur
hvað sé í
gangi í raun
og veru.“ n
Skrásetning hinna ósýnilegu Danska listakonan Tina Enghoff hefur skrásett tilveru
óskráðra og heimilslausra innflytjenda, sem forðast hvað best þeir geta eftirlit yfirvalda í
Danmörku. Þessi mynd er af blóði eins innflytjandans sem hefur þurft að fá læknisaðstoð
frá Rauða krossinum. MyNd TiNA ENGhoff
Louise Wolthers Hélt fyrirlestur um áhorf, eftirlit,
ljósmyndir og listir á Ljósmyndahátíð Íslands í vikunni. MyNd dV
Ehf / SiGTryGGur Ari