Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 76

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 76
76 lífsstíll - ferðalög Helgarblað 19. janúar 2018 F imm daga helgarferð til Austur-Evrópu fyrir tvo, þar sem innifalið er flug, fjögurra stjörnu gisting, matur og skemmtanir þarf ekki að kosta meira en rúmlega 100 þús- und krónur miðað við lauslega út- tekt DV á vinsælustu áfangastöð- unum. Dýrast er hins vegar að fara til Glasgow en flug fram og til baka fyrir tvo kostar rúmlega tvö- falt meira en til Gdansk í Póllandi. Hér er miðað við tímabilið 16. janúar til 30. mars þegar eflaust flestir Íslendingar vilja skella sér út fyrir landsteinana og lífga að- eins upp skammdegið. Miðað er við beint flug þar sem flogið er út á fimmtudegi og dvalið er- lendis í þrjá til fimm daga. Þá er miðað við gistingu fyrir tvo á fjögurra stjörnu hóteli miðsvæð- is. Þá má sjá verðdæmi á mat, drykk, samgöngum og skemmt- unum í nokkrum borgum en líkt og sjá má getur munað talsvert miklu. Þriggja rétta máltíð með víni fyrir tvo kostar til að mynda þrefalt meira í Kaupmannahöfn en í Gdansk. Rétt er þó að geta þess að um viðmiðunarverð er að ræða og þótt hægt sé að eyða mun hærri upphæðum gefur verðið ágæta mynd af verðlagi í viðkomandi borgum. n Þetta eru dýrustu og ódýrustu helgarferðirnar n Hvert er ódýrast að fljúga, gista og borða? Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Kaupmannahöfn Ódýrasta flugfarið: 26.– 30. janúar með WOW air: 22.995 kr. samtals Flugtími á leið út: 3.20 klst. Flugtími á heimleið: 3.35 klst. 4 nátta gisting fyrir tvo á Hotel Kong Arthur: 47.520 kr. (11.880 kr. á nótt) Samtals: 70.515 kr. Kaffibolli: 574 kr. Bjór: 675 kr. Gos: 375 kr. Vínflaska: 1.012 kr. Þriggja rétta máltíð fyrir tvo með víni hússins: 10.129 kr. Lest/rúta eða leigubíll frá flugvelli til miðborgar: 608 kr. með lest, 4.227 kr. með leigubíl. Sólarhringsalmenningssamgöngukort: 1.352 kr. Útsýnisferð í rútu um borgina (dagspassi): 2.959 kr. Glasgow Ódýrasta flugfarið: 23.–26. febrúar með Icelandair: 47.566 kr. samtals Flugtími á leið út: 2.10 klst. Flugtími á heimleið: 2.20 klst. Þriggja nátta gisting fyrir tvo á Novotel Glasgow Centre: 34.981 kr. með vsk. (11.660 kr. á nótt) Samtals: 82.547 kr. Kaffibolli: 338 kr. Bjór: 452 kr. Gos: 144 kr. Vínflaska: 848 kr. Þriggja rétta máltíð fyrir tvo með víni hússins: 5.658 kr. Lest/rúta eða leigubíll frá flugvelli til miðborgar: 923 kr. með rútu, 2.840 kr. með leigubíl Sólarhringsalmenningssamgöngukort: 568 kr. Útsýnisferð í rútu um borgina (dagspassi): 1.988 kr. London Ódýrasta flugfarið: 15.–18. mars með Easy Jet: 21.590 kr. samtals. Flugtími á leið út: 2.55 klst. Flugtími á heimleið: 3.15 klst. Þriggja nátta gisting fyrir tvo á The Tophams Hotel: 40.788 kr. með vsk. (13.596 kr. á nótt) Samtals: 62.378 kr. Kaffibolli: 377 kr. Bjór: 636 kr. Gos: 178 kr. Vínflaska: 1.131 kr. Þriggja rétta máltíð fyrir tvo með víni hússins: 7.072 kr. Lest/rúta eða leigubíll frá flugvelli til miðborgar: 710 kr. með rútu, 5.538 kr. með leigubíl Sólarhringsalmenningssam- göngukort: 1.704 kr. Útsýnisferð í rútu um borgina (dagspassi): 4.118 kr. Berlín Ódýrasta flugfarið: 2.–6. febrúar með WOW air: 34.995 kr samtals Flugtími á leið út og á heimleið: 3.45 klst. 4 nátta gisting fyrir tvo á Berlin Mark hotel: 24.401 kr. (6.100 kr. á nótt) Samtals: 59.396 Kaffibolli: 334 kr. Bjór: 377 kr. Gos: 222 kr. Vínflaska: 628 kr. Þriggja rétta máltíð fyrir tvo með víni hússins: 5.657 kr. Lest eða leigubíll frá flugvelli til miðborgar: 377 kr. með lest, 5.037 kr. með leigubíl. Sólarhringsalmenningssamgöngukort: 843 kr. Útsýnisferð í rútu um borgina (dagspassi): 881 kr. Gdansk Ódýrasta flugfarið: 8.–13. febrúar með Wizzair: 20.508 kr. samtals Flugtími á leið út: 3.30 klst. Flugtími á heimleið: 4 klst. 5 nátta gisting fyrir tvo á Scandic Gdansk (fyrir utan borgarskatt): 32.551 kr. (6.510 kr.á nótt) Samtals: 53.059 kr. Kaffibolli: 248 kr. Bjór: 210 kr. Gos: 120 kr. Vínflaska: 601 kr. Þriggja rétta máltíð fyrir tvo með víni hússins: 3.009 kr. Lest/rúta eða leigubíll frá flugvelli til miðborgar: 108 kr.með rútu, 2.112 kr. með leigubíl Sólarhringsalmenningssam- göngukort: 603 kr. Útsýnisferð í rútu um borgina (dagspassi): 1.852 kr. Dýrasta borgin: Glasgow Ódýrasta borgin: Gdansk Dýrasta hótelgistingin: London Ódýrasta hótelgistingin: Gdansk Dýrast út að borða: Köben Ódýrast út að borða: Gdansk Dýrasta flug: Glasgow Ódýrasta flug: Gdansk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.