Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 53
Marc Inbane Natural Tann- ing Spray, 7.890 kr. (marcin- bane.is) (veg- an) Aukið sjálfstraust með Marc Inbane Ég og brúnkukrem eigum ekki mikla samleið og yfirleitt finnst mér þau yfirþyrmandi. Þegar mér var svo boðið í kynningu hjá Marc Inbane um daginn hugsaði ég með mér að ég gæti nú allavega mætt fyrir áfengið og veitingarnar. Ekki vissi ég að þetta kvöld ætti eftir að verða til þess að breyta allri minni sýn á brúnku- vörur. Þar hitti ég eig- endur Marc Inbane, stór- kostleg hjón frá Hollandi, og allar vörurnar frá þeim hafa gert mig kjaftstopp. Brúnkuspreyið er svo auð- velt í notkun og eðlilegt á litinn, andlitsskrúbburinn er sá allra besti sem ég hef prófað og ég mun halda áfram að prófa mig áfram með fleiri vörur. Auðvitað á sjálfstraust ekki að sveiflast með brúnkukremi en ég er búin að vera að nota brúnkuspreyið undanfarið og spreyja örlitlu framan í mig (minna er meira), dreifi úr því með hanskanum og einn daginn fannst mér ég vera hreinlega huggu- legri en áður með náttúrulegan lit í andlitinu. Með þetta sjálfstraust mætti ég á blint stefnumót, virkaði mjög svo útitekin og sagðist auðvitað hafa verið í fjallgöngu. Vonum að hann stingi ekki upp á Esjunni í næstu viku. Frískari ásýnd á þremur sekúndum með Guerlain Það er brúnkuþema hjá mér þenn- an mánuðinn en það fylgir þegar vor er í lofti. Konungsfjölskylda sól- arpúðursins var að endurnýja terra- cotta-púðrið sitt og það hefur aldrei verið jafnfallegt, að mínu mati. Gu- erlain segist endurvekja ljóma húð- arinnar á þremur sekúndum með þessu púðri en ég hef þó ekki tekið tímann. Hins vegar höfðar Guerlain alltaf til drottningarinnar innra með mér svo ég gef mér ávallt góðan tíma til að njóta þegar ég nota vörur frá franska snyrtihúsinu. Falin perla frá Estée Lauder Ég uppgötva alltaf leyndar perlur í snyrtileiðöngrum mínum og ein slík er augabrúnagelið frá Estée Lauder en það er líklega eitt það besta sem ég hef komist í kynni við. Bæði heldur það augabrúnahárunum á sínum stað en augabrúnirnar mínar virka einnig talsvert þykkari og meiri um sig. Þetta þurfa allir að prófa. Djúpnæring sem þyngir ekki hárið frá Briogeo Um daginn prófaði ég loksins hina umtöluðu djúpnæringu frá Briogeo sem nefnist Don’t Despair, Repair! (sem gæti verið mottóið á morgnana þegar maður lítur í spegil?) en fjórar útgáfur eru til af þessari formúlu: Hinn klassíski hármaski, næt- urhármaski, tveggja þrepa hármaski með hettu og svo í sprey- formi sem ekki er skol- aður úr hárinu. Allar fjórar formúlurnar er hrein unun að nota og ég skil vel ,,hæpið“ í kring- um þessar vörur. Vissu- lega eru til margir góðir hármaskar en þessum tekst að mýkja hárið og næra án þess að þyngja það og eru án sílikonefna. Briogeo fæst í versluninni Nola á Höfðatorgi eða á nola.is. Lilja Ósk Sigurðardóttir, snyrtipenni Smartlands, hefur tekið saman lista yfir þær snyrtivörur sem henni finnst skora hæst í apríl. Hún segir nauðsyn- legt að vinna vel í húðinni og setja á sig örlitla brúnku til að mæta sumrinu á frísklegri hátt. Lífrænar nýjungar f rá Eco by Sonya Margir þekkja lífrænu brúnkuvör- urnar frá Eco By Sonya en núna eru komnar húðvörur frá merkinu sem allar eru lífrænar og náttúrulegar. Tvær vörur fönguðu auga mitt strax en sú fyrri nefnist Glory Oil og er sér- staklega hönnuð til að minnka sjáan- leika öra og fínna lína á húðinni. Olíu- blanda úr Incha Inchi, Acai og graskerafræjum er stútfull af and- oxunarefnum, omega 3 og 6 ásamt vítamínum. Seinni varan er Face Compost sem er djúphreinsandi en í senn næringarríkur andlitsmaski og eins konar ofurfæða fyrir húðina. Hann inniheldur m.a. spínat, klórellu, chia-fræ, acai-ber, spirúlínu, aloe vera og hvítan leir. Húðin mín ljómar sem aldrei fyrr og henta báðar vör- urnar öllum húðgerðum. Fylgstu með á samfélagsmiðl- unum: Instagram: Snyrtipenninn Snapchat: Snyrtipenninn Facebook: Snyrtipenninn Snyrtipenninn mælir með … Estée Lauder Brow Now Vol- umizing Brow Tint, 3.499 kr. Guerlain Terracotta Light, 7.199 kr. Briogeo Don’t Despair, Repair! Deep Conditioning Ha- ir Cap System, 5.990 kr. (vegan) Getty Images/iStockphoto Briogeo Don’t Despair, Repair! Deep Condition- ing Mask, 5.190 kr., Briogeo Don’t Despair, Repair! Gel-To-Oil Overn- ight Reapair Treatment, 3.990 kr., Briogeo Don’t Despair, Repair! Strength + Mo- isture Leave-In Mask, 3.990 kr. (vegan) Marc Inbane Facial Exfoliator, 6.890 kr. (marcin- bane.is) Eco By Sonya Face Compost, 5.590 kr. (Maí) (vegan) Eco By Sonya Glory Oil, 6.900 kr. (Maí) (vegan) 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018 Mörkinni 6 - Sími 568 7090 - veidivon@veidivon.is - veidivon.is Scierra vöðlur og vaðskór Pakkatilboð 29.990.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.