Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 34
Deplar Farm Fágæt-
isferðamennska. Þyrlu-
skíði á Tröllaskaga.
Ljósmyndir/Eleven Experience
Fágætir en fjarska örlátir ferðamenn
Fæstir Íslendingar hafa líklega upplifað föðurland sitt á sama hátt og fágæt-
isferðamenn sem hingað koma. Fágætisferðamenn eru þeir kallaðir sem gera
mjög miklar kröfur til aðbúnaðar og þjónustu, enda skilar hver þeirra mun meiri
tekjum en almennur ferðamaður gerir.
Nokkur fyrirtæki hafa sérhæft sig í að taka á móti fágætisferðamönnum og
veita þeim umbeðna þjónustu. Þessir gestir gista sumir á hótelum sem veita há-
gæða þjónustu meðan aðrir vilja vera sem mest út af fyrir sig. Þeir dvelja þá í
glæsivillum, -íbúðum eða -bústöðum, sem oft eru í einkaeigu, og njóta þar þjón-
ustu einkakokks og þjónustufólks meðan á dvölinni stendur. Ökuleiðsögumenn
aka þeim um landið á glæsibílum eða jeppum í klæðskerasniðnar skoðunarferðir
auk þess sem flogið er með þyrlum á milli staða og í útsýnisflug. Sumir óska eft-
ir þjónustu lífvarða meðan á dvölinni stendur og þá er orðið við slíkum óskum.
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018
Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt
Gullfalleg ný sending
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Deplar Farm hótelið í Fljótum var
opnað 14. apríl 2016. Það er í eigu
Eleven Experience sem rekur einnig
nokkur hótel í Bandaríkjunum, á Ba-
hamaeyjum og í Frakklandi. Haukur
Bent Sigmarsson er framkvæmda-
stjóri Eleven Experience á Íslandi.
Þyrluskíðaferðir að vetri
Haukur sagði að árinu sé skipt í
þrjú tímabil á Deplum. Áherslan er
lögð á þyrluskíðamennsku (hel-
iskiing) yfir vet-
urinn og stendur
það tímabil frá
mars og fram í
júní. Skíðafólkið
fer með þyrlu upp
á fjöllin á Trölla-
skaga og skíðar
niður brekk-
urnar. Ef veðrið
hentar ekki til
skíðaiðkunar þá
er góð aðstaða til
afþreyingar og afslöppunar á hót-
elinu. Ásamt þeim möguleika að fara
á fjallaskíði, gönguskíði eða í vél-
sleðaferð.
„Fólk hefur hér aðgang að útilaug,
heitum og köldum pottum, nuddi og
öðrum þægindum.“ Á árum áður var
þetta fremur daufur tími í ferðaþjón-
ustu en nú streyma gestir að Deplum
til að stunda þyrluskíðamennskuna,
að sögn Hauks.
Stangveiðar og ævintýraferðir
Yfir sumarið koma ferðamenn í
lax- og silungsveiði í ám og vötnum,
má nefna Fljótaá, Húseyjarkvísl og
Hölkná í Þistilfirði. Einnig er í boði
sjóstangveiði, hvalaskoðun, hesta-
ferðir, einkaferðir út í Drangey. Auk
þess er boðið upp á gönguferðir. Þá
er hægt að fara í fjallahjólaferðir á
breiðdekkjuðum fjallahjólum (fat
bike) eða að þeysa um á fjölnota tor-
færubíl sem ekið er eftir ákveðinni
braut. Kajakar, brimbretti ásamt
rib-bát er líka vinsæl afþreying fyrir
gestina.
„Við búum til vörur úr þeim mögu-
leikum sem eru hér í nágrenninu,“
sagði Haukur. „Eitt sterkasta vígið
okkar er eldhúsið þar sem Garðar
Kári Garðarsson, matreiðslumaður
ársins, er yfirkokkur. Þar er nær
eingöngu notað hráefni úr nær-
umhverfinu. Þetta er ákaflega gott
ásamt því að vera með villtu berin og
grænmetið sem nágrannar okkar
rækta.“
Heilsa og vellíðan á haustin
Áherslan er á heilsu og vellíðan á
haustin og fram eftir vetri. Kvölds og
morgna eru tímar í jóga og teygjuæf-
ingum. Tveir nuddarar nudda bólgur
og stirðleika úr þeim sem þess óska.
Gestirnir geta einnig notið þess að
fljóta í laug með epsom-saltvatni sem
er við líkamshita. „Þannig slakar fólk
algjörlega á. Það er ekkert álag á lík-
amanum og öll þreyta líður úr fólki í
saltvatninu,“ sagði Haukur. „Fólk
getur slappað vel af hér á Deplum.
Það getur farið í meðferðir hjá sér-
fræðingunum okkar, farið í heita
pottinn, svo í nuddið og þaðan í guf-
una og síðan í kalda pottinn. Við
leggjum mikla áherslu á spa-ið hjá
okkur með öllu því sem þar er í boði.“
Haukur sagði það hafa komið á
óvart hvað Deplar fengu fljótt góðar
viðtökur. Aðsóknin og nýtingin hafi
Fyrirtaks hótel
og afþreying í
Fljótunum
Deplar Farm býður upp á þyrlu-
skíðaferðir, stangveiðar og vellíðan
Fljótin Deplar Farm hótelið fellur vel inn í kyrrlátt umhverfið. Gestirnir sækja í kyrrðina og náttúrufegurðina.
SJÁ SÍÐU 36
Haukur B
Sigmarsson
Fágætisferðaþjónusta