Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018
Er ferðavagninn rafmagnslaus?
TUDOR TUDOR
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
örugg
t
start
með
TUDO
R
Frístunda rafgeymar
í miklu úrvali,
AGM þurr rafgeymar
eða lokaðir
sýrurafgeymar.
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Nú einnig netapótek: Appotek.is
strandveiðar, og vísar einkum til
þess að sjómenn geti í framhaldinu
valið hvaða daga mánaðarins þeir
haldi til veiða.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
segir það eðlilegt að SFS geri at-
hugasemdir við að valkvætt verði
fyrir ráðherra hvort veiðarnar
skuli stöðvaðar.
„En það verður að vera þannig
og við höfum sótt það mjög stíft.
Við erum enda ekki ánægðir með
það að það sé ekki algjörlega
tryggt í frumvarpinu að veiðarnar
verði ekki stöðvaðar. Það er það
sem að var stefnt með þessari til-
raun, að það væri enginn þrýst-
ingur á menn varðandi það að
veiðarnar gætu verið stöðvaðar á
tilteknum tíma. Með þessari breyt-
ingu hefur ráðherra tóm til að
velta þessu fyrir sér, sem ég tel að
sé algjörlega nauðsynlegt.“
Niðurnjörvað í aflaregluna
Frumvarpið beri engan vott um
þau lausatök sem SFS nefnir.
„Kerfið er búið að vera nið-
urnjörvað í þessa aflareglu og
Landssambandið hefur barist fyrir
því að fá sveigjanleika í aflaregl-
una. Það hefur ekki fengist, sem
orðið hefur til þess að við höfum
verið með veiðar undir því marki
sem aflareglan hefur kveðið á um
á undanförnum árum. Enginn hef-
ur kvartað undan lausatökum í því
sambandi.“
Örn segir að vilyrði hafi fengist
fyrir aflaaukningu og því búist
hann ekki við að afli strandveið-
anna nái því marki sem gert sé ráð
fyrir. Bendir hann á að með frum-
varpinu sé reynt að færa veiðarnar
til betri vegar. Komið verði í veg
fyrir það óæskilega kapp sem
myndist óhjákvæmilega, þegar fyr-
irsjáanlegt þykir að veiðarnar
verði stöðvaðar í náinni framtíð.
Öryggisatriði fyrir sjómenn
„Það eru vissulega enn til staðar
miklar takmarkanir í strandveið-
unum. Það er hámark á afla hvers
dags og þú mátt ekki vera lengur
en fjórtán tíma í róðrinum, svo ég
nefni dæmi. En taki frumvarpið
gildi geta menn að minnsta kosti
valið þá daga sem haldið er til
veiða,“ segir hann og bætir við að
um mikið öryggisatriði sé að ræða.
Enginn hvati sé þá til staðar fyrir
sjómenn til að fara út á sjó í
slæmu og hættulegu veðri.
Spurður um þá gagnrýni sem
SFS hefur sett fram, að hætta sé á
að orðspor íslensks sjávarútvegs
kunni að bíða hnekki verði frum-
varpið samþykkt, segir Örn að
strandveiðar hafi aðeins orðið til
að bæta það orðspor undanfarin
ár.
Litið upp til Íslendinga
„Kerfið var miklum mun meira
gagnrýnt, áður en strandveiðunum
var komið á,“ segir Örn. „Sér-
staklega sú staðreynd að menn
gætu ekki keypt sér bát og farið
að róa, öðruvísi en með því að
kaupa sér kvóta frá þeim sem
höfðu hlutdeildina; stóru útgerð-
unum. En með strandveiðunum
hljóðnaði þessi umræða, sem orðin
var mjög hávær í þjóðfélaginu,“
bætir hann við og vísar í því sam-
bandi til Frjálslynda flokksins sál-
uga, sem hafði strandveiðar á
stefnuskrá sinni.
„Ég held að það sé nú frekar lit-
ið upp til okkar Íslendinga, að við
séum með svona kerfi til hliðar við
aflamarkskerfið.“
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Sól og blíða Strandveið-
ar í mynni Eyjafjarðar.
„Á undanförnum tveimur árum
höfum við lagt mikla vinnu í
vöruþróun og vörumerkjauppbygg-
ingu sem hefur skilað okkur frá-
bærri vöruhugmynd sem byggist á
hágæða vörum unnum úr íslenskum
sjávarafurðum,“ segir Jóhannes.
Áður hefur ORA unnið til verð-
launa á sjávarútvegssýningunni í
Boston, sem haldin var fyrr á árinu.
Verðlaunin voru veitt fyrir áð-
urnefnda loðnuhrognabita, en rétt-
urinn samanstendur af masago, sem
unnið er úr íslenskum loðnuhrogn-
um, laxamús úr íslenskum eldislaxi,
og sesam-brauðkexi.
fram úr í Brussel
ORA Vörurnar eru markaðssettar
undir merkinu Iceland’s finest.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?