Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Átta af ellefu nýjum lúxusíbúðum í
Kjörgarði á Laugavegi 59 hafa verið
leigðar út. Verkefnið hefur vakið at-
hygli, enda fá dæmi um að heilu
húsi sé breytt fyrir leigu lúxusíbúða.
Fyrirtækið Vesturgarður á íbúð-
irnar og er Sæmundur H. Sæ-
mundsson framkvæmdastjóri
félagsins. Lokafrágangi lauk fyrr í
apríl. Húsinu var mikið breytt.
Sæmundur segir eina þakíbúðina
af þremur vera lausa. Hún er 79 fer-
metrar og er leigan um 340 þúsund
á mánuði. Þá eru tvær 78 fermetra
íbúðir óleigðar á þriðju hæð en leig-
an kostar um 285 þúsund.
Samið til eins árs
Leigusamningar eru gerðir til
eins árs til að byrja með.
Leigjendur geta jafnframt leigt
stæði í bílastæðahúsi norðan við
Kjörgarð á um fimm þúsund krónur
á mánuði. Innifalið í húsaleigu er
þrif og rafmagn á sameign, hiti í
íbúðum og öryggiskerfi í húsinu.
Íbúðir eru fullbúnar heimilistækjum
og er fullkomið brunavarnakerfi í
húsinu. Stórar eldvarnadyr á göng-
um lokast sjálfkrafa í eldsvoða. Þá
eru brunahanar á öllum hæðum.
Geymslur fylgja íbúðum og eru þær
í kjallara. Þar er líka hjólageymsla.
Hússjóður er innifalinn í leigunni.
Kostnaðurinn reyndist meiri
Sæmundur segir endurgerð húss-
ins hafa reynst dýrari en áætlað
var. Meðal annars var byggð hæð
ofan á húsið, gerðar inndregnar og
lokaðar svalir á 3. og 4. hæð og veit-
ingarými á 2. hæð gerbreytt.
„Við erum afar stolt af því hvern-
ig húsið lítur út. Þetta hefur reynd-
ar kostað töluvert. Hugmyndin var
að byggja hæð ofan á húsið og
breyta tveimur hæðum fyrir neðan.
Verkefnið hefur hins vegar rakið sig
þannig að það er búið að gera húsið
upp frá A til Ö, alveg ofan í að
endurnýja skólplagnir í sökklum.
Þannig að þetta er að miklu leyti ný
bygging. Það er huggun, þótt það
hafi kostað svolítið, að ekki þarf að
hugsa um viðhald næstu tuttugu
árin. Það þarf bara að skipta um
ljósaperur og bletta málningu. Það
er allt nýtt. Allar lagnir eru nýjar,
loftræstikerfi, gler, gluggar, hurðir
og gólfefni,“ segir Sæmundur.
Athafnafólk áhugasamt
Spurður um markhópinn segir
Sæmundur íbúðirnar henta öllum.
Hins vegar sé fólk í viðskiptum
áberandi í hópi leigutaka og þeirra
sem skoðað hafa íbúðirnar.
„Mér sýnist að helmingur okkar
leigutaka reki fyrirtæki. Leiguverð-
ið hjá okkur er frá 280 til 390 þús-
und krónur. Dýrustu íbúðirnar eru
leigðar á rúmlega 400 þúsund og
eru tvö bílastæði þá innifalin,“ segir
Sæmundur og bendir á að ódýrari
íbúðirnar séu á sambærilegu leigu-
verði og leiguíbúðir í miðborginni.
„Það eru dæmi um að 80 fermetra
íbúðir í 2-3 hæða lyftulausum hús-
um séu leigðar á 280-290 þúsund. Þá
erum við jafnvel að tala um gömul
hús þar sem brakar í gólfum. Hér er
allt til alls. Það þarf bara að mæta
með Hagkaupspokann og fara að
elda.“
Flestar lúxusíbúðirnar leigðar út
Töluverð eftirspurn hefur verið eftir nýjum leiguíbúðum í Kjörgarði á Laugavegi 59 í Reykjavík
Húsaleigan er frá 280 til 400 þúsund á mánuði Athafnafólk áberandi í hópi leigutaka
Heitur pottur Mikið útsýni er frá íbúðum á efstu hæðinni.
Morgunblaðið/RAX
Á efstu hæð Svalir eru allan hringinn á 5. hæð. Þar eru þrjár íbúðir. Byggð var ný hæð ofan á húsið.
Hönnun Tæki frá Siemens og granítplötur eru í öllum eldhúsum.
Anddyrið Upprunaleg hönnun fær að njóta sín í endurgerðum Kjörgarði.
Í stofunni Sæmundur H. Sæmundsson hefur stýrt endurbyggingu Kjörgarðs.
Sundföt
2018
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði