Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 77
DÆGRADVÖL 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Undanfarið hefurðu efast um hvað
þú eigir skilið. Þú þarft að gefa sjálfum þér
tíma þessa dagana. Takirðu fagnandi á móti
breytingum hefurðu byrinn með þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að taka þér tak og gera eitt-
hvað fyrir heilsu þína. En þar sem þú vilt fá
heildarmynd af hlutunum, skaltu bíða fram
til morguns með að hrinda þeim í fram-
kvæmd.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Annað slagið skjóta upp kollinum
mál úr fortíðinni sem þarf að takast á við.
Það er úr vöndu að ráða þegar staðið er
frammi fyrir mörgum möguleikum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Fastheldni þín á alla hluti stendur
þér fyrir þrifum. Njóttu alls kyns afþreyingar
og skemmtunar og njóttu þess að leika þér
með smáfólkinu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Umhverfið hefur meiri áhrif á þig en
aðra og ræður líðan þinni. Fólk gerir miklar
kröfur til þín og þú þarft að gæta þess að fá
tíma fyrir sjálfan þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur lagt hart að þér að undan-
förnu og ert að uppskera laun erfiðis þíns.
Nú máttu verðlauna sjálfan þig svolítið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hinir hæfileikaríku, áköfu og skrýtnu í
vinahópnum þínum hafa góð áhrif á þig
núna. Einbeittu þér að því að gefa og þiggja
og koma til móts við aðra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hikar ekki við að taka mál-
stað annarra og færð tækifæri til þess að
láta í þér heyra í dag. Það er alveg hægt að
rökræða við fólk án þess að allt fari í hund
og kött.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Mikill tilfinningahiti getur orðið
þess valdandi að samræður fari úr bönd-
unum í dag. Reyndu ekki að fela mistök
heldur bættu úr þeim með bros á vör.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú getur ekki lengur vikist undan
því að hafa frumkvæði að lausn mála. En til
að forðast allan misskilning skaltu samt
ræða málið við alla málsaðila.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú vilt halda um stjórnartaum-
ana í samskiptum þínum við aðra í dag og
telja þá á þitt band. Ræddu það sem þig
langar til þess að gera, fólk skilur þig núna.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að hafa augun hjá þér svo
áætlun þín fari ekki öll úr skorðum. Ef þú
missir af tækifæri fyrir hádegi, færðu annað
í kvöld.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir Ímorgunsárið 24. apríl:
Í gær var hér blíða og sumar og sól
og söngvar í víði og fjólur á hól.
Þó svara ég spurður hvort nokkuð sé
nýtt:
„Nú er það svart maður, allt orðið hvítt.“
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir
um lífið:
Njóttu alls sem guð þér gaf,
grimmt sem þjált.
Lítil von að lifa af
lífið sjálft.
Og Ármann Þorgrímsson þakkar
dag hvern:
Þó afgangur sé ekki neinn
alltaf hef ég gaman
daga þakka einn og einn
og aftur fleiri saman.
Bólu-Hjálmar orti um Sölva
Helgason:
Maður kom með þrýstinn þjó,
ég þekki hann gegnum ljóra,
á sér bar og eftir dró
óhamingju stóra.
Gústi Mar segir frá því á Leirnum
þegar Tindastóll hóf rimmu við KR
um Íslandsmeistaratitilinn í körfu-
bolta á Króknum. Til að efla bar-
áttuanda heimamanna var forseti Ís-
lands mættur ásamt fleira stórmenni
úr byggðarlaginu. Heimamenn töp-
uðu leiknum hinsvegar frekar sann-
færandi og eru skiptar skoðanir um
þessa óopinberu forsetaheimsókn.
Tapast leikur, týnist æra
tárast margur sýnist mér.
Lítið hafði fram að færa
forsetinn í stúku hér.
Auðvitað kallar þessi vísa fram í
hugann aðra sem flestir Íslendingar
kunnu til skamms tíma með nokkr-
um orðamun þó og mun hafa fundist
í beinakerlingu á Kaldadal:
Týnd er æra, töpuð er sál,
tunglið veður í skýjum.
Sunnefu hér súpi skál
sýslumaðurinn Wíum.
Hér er önnur vísa úr þeirri sömu
beinakerlingu:
Veri þeir allir velkomnir,
sem við mig spjalla í tryggðum,
eg get varla unað hér
ein á fjallabyggðum.
Jónas í Hróarsdal í Skagafirði
orti, – vafalaust í vorharðindum:
Bágt á ég með barnakind
bjargarvana í hreysi.
Sendu, Drottinn, sunnanvind
svo að vötnin leysi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ort um lífið, blómin
og beinakerlingar
„NEI, ÞÚ MÁTT EKKI TAKA ÞETTA MEÐ
ÞÉR Í TÍMANN. EF ÉG LEYFI ÞÉR ÞAÐ,
ÞARF ÉG AÐ LEYFA ÖLLUM ÞAÐ.“
„ÞESSI HEITIR VÍST: „ÁVAXTASKÁL Á
MJÖG HÁU BORÐI.““
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að leika sér við
yndislegu frændur
hennar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
TJA, ÉG GET EKKI
BORÐAÐ ÞETTA!
ÉG ER
STJÓRNLAUS!
GOTT! HÚN VIRKAR NÚ
ÞEGAR!
HVAÐA KLIKKAÐA HLUT
GERI ÉG NÆST?!
HVAÐ ER SVONA
ILLA LYKTANDI!? ÞETTA ER MEGRANDI
UPPSKRIFT!
Víkverji er í frekar melankólískuskapi þessa dagana. Hann veltir
fyrir sér hvort það tengist eitthvað
tónlistinni sem hann er að hlusta á í
bílnum, en fyrir einungis nokkrum
dögum var hann á toppi tilverunnar.
Þá var „Greatest hits“-diskurinn
með Queen í græjunum og Víkverji
spilaði „We are the Champions“ aft-
ur og aftur. Það voru dýrðardagar.
x x x
Svo ákvað Víkverji að skipta yfir í„Greatest hits 2“-diskinn með
sömu hljómsveit, og einhverra hluta
vegna varð lagið „The Show Must
Go On“ fast á „repeatinu“. Fyrir þá
sem ekki þekkja vel til verka Queen,
þá snýst lagið um þörfina á að halda
áfram að standa sína plikt þrátt fyrir
að áföll dynji á. Lagið var samið af
gítarleikara sveitarinnar, Brian
May, og almennt er talið að hann
hafi fengið innblástur sinn af baráttu
Freddie Mercury, söngvara sveit-
arinnar, við alnæmi.
x x x
Fallið var hátt, allt í einu var Vík-verji ekki lengur „meistari“ með
Queen, heldur að berjast við að
halda aftur af tárunum á bak við
farðann. (Ekki að Víkverji farði sig,
sko, þetta er í texta lagsins.) Ein-
hverjir myndu halda að einfalda
lausnin væri að skipta aftur yfir í
hitt lagið, en Víkverji er ekki alveg í
stuði til þess. Hver veit hvað það
gæti gert við sinnið að taka svona
stórt stökk aftur upp í gleðina? Vík-
verji er ekki sá liprasti, hvorki á
andlega né líkamlega sviðinu og
gæti eflaust bara tognað ef hann
reyndi slíkt án atrennu.
x x x
Þannig að í millitíðinni hefur Vík-verji fundið sína lendingu í enn
einu laginu með Queen: „I Want to
Break Free,“ en myndbandið við það
lag er ein af fyrstu æskuminningum
Víkverja. Það er nógu fjörugt til
þess að halda Víkverja svona nokkuð
góðum, en þó með misalvarlegum
undirtónum sem gætu alveg passað
við líf hans eins og það er í augna-
blikinu. Lexían hér virðist þó vera
sú, að sama hvað bjátar á í lífinu, þá
er alltaf hægt að finna sér eitt gott
lag með Queen. vikverji@mbl.is
Víkverji
Og Jesús sagði við alla: „Hver sem vill
fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki
kross sinn daglega og fylgi mér.
(Lúk: 9.23)