Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018
Z-brautir &
gluggatjöld
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15
fyrir falleg heimili
Falleg gluggatjöld
Dagmar Gunnarsdóttir, Björk Hu-
zell og María Kamal Gordonsdóttir
en systurnar eru allar búsettar í Sví-
þjóð. Erla, móðir Vilborgar, starfaði
í rúm 20 ár sem löggiltur túlkur og
skjalaþýðandi hjá varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli.
Vilborg kynntist ung Kanada-
manni sem bjó á Íslandi. Saman
eignuðust þau þrjú börn og bjuggu í
tvö ár í Kanada. Þau fluttu aftur
heim til Íslands en skildu nokkrum
árum seinna. „Fyrsta árið eftir að ég
kom heim frá Kanada sótti ég kvöld-
námskeið við öldungadeild MH. Ég
gafst upp enda var ég þá orðin ein-
stæð móðir með þrjú börn. Maður
þarf að velja. Börnin verða aldrei
aftur fimm ára,“ segir Vilborg.
Fluttu á vesturströndina
Vilborg starfaði sem áður segir á
skrifstofu varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli þegar hún kynntist
eiginmanni sínum, Jablonski. Þau
kynntust árið 1980, þegar Vilborg
var þrítug, og fluttu út árið 1983.
„Hann fór aftur til Bandaríkjanna
eftir eins árs þjónustu og þremur
árum eftir að við kynntumst
ákváðum við að gifta okkur. Ég
pakkaði mínu hafurtaski og við flutt-
um til San Diego [einnar stærstu
borgar Kaliforníu á vesturströnd-
inni]. Við eigum átta börn sameig-
inlega. Hann á eitt, ég átti þrjú og
síðan eignuðust við fjögur saman.
Fyrsta barnið okkar fæddist í San
Diego. Þaðan fórum við til Gvam í
Kyrrahafinu. Þar áttum við eina
dóttur. Næst lá leiðin til Manassas í
Virginíu en þaðan er um klukku-
stundar akstur til Washington DC.
Frá Manassas fórum við til Dunoon í
Skotlandi. Það er við Holy Lock rétt
fyrir utan Glasgow. Þar voru að-
stæður fyrir kafbáta. Viðgerðir og
annað. Þar vorum við í eitt ár. Átt-
um litla dóttur þar. Hún var okkar
þriðja barn og sjöunda barnið sem
við áttum saman. Hún hét Inga
Dagmar. Síðan flutti ég frá Skot-
landi til Michigan með krakkana
mína og var þar í tíu mánuði eftir að
við misstum dóttur okkar. Litla
barnið. Skipið var að skipta um
heimahöfn til Norfolk í Virginíu svo
ég varð að fara með fjölskylduna.
Hann varð eftir á skipinu og fylgdi
því í nýja höfn. Ég bjó nálægt for-
eldrum hans í Michigan í einn vetur.
Þaðan fórum við til hafnar-
borgarinnar Monterey í Kaliforníu í
meistaranám og eignuðumst þar
yngsta drenginn okkar.“
Frá Íslandi til Kansas
Jablonski starfaði við birgða-
stjórnun fyrir Bandaríkjaher. Sá um
innkaup og samninga. Frá Monte-
rey flutti fjölskyldan til Íslands.
„Við vorum þar í tvö og hálft ár.
Frá Íslandi fórum við til Kansas og
bjuggum á herstöð í Fort Leaven-
worth. Hann fór þar í skóla. Þar vor-
um við umkringd fangelsum. Síðan
fluttum við hingað til Pennsylvaníu
en Thomas fór á eftirlaun í hernum
árið 2000. Við vorum enn með börn í
skóla og Thomas hóf nýjan feril sem
ríkisstarfsmaður og vann til 2017.
Fyrir sex árum fluttum við svo hing-
að í sveitina,“ segir Vilborg.
Áður en þau kynntust átti Ja-
blonski dótturina Christy Jablonski-
Roe, sem er verslunarmaður í Mic-
higan. Fyrir átti Vilborg tvo syni,
Kenneth Mekkinó Spencer og
Gunnar John Spencer. Mekkinó býr
í Kanada en Gunnar býr í Mecha-
nicsburg. Einnig átti hún dóttur frá
fyrra sambandi, Lindu Ósk, sem
heitir nú Gallagher eftir manni sín-
um í Michigan. Linda Ósk á tvö börn
og les nú sálfræði í háskóla.
Frumburður Vilborgar og Ja-
blonski, Thomas Albert, starfar sem
grafískur hönnuður. Hann var her-
maður og gegndi meðal annars her-
þjónustu í Írak og Kúveit. Næst
eignuðust þau Ernu Björk sem var
hermaður í Írak og Afganistan.
Þriðja barn þeirra, Inga Dagmar,
lést í bernsku. Yngsta barnið, Pat-
rick Theadore, var níu mánaða þeg-
ar þau fluttu til Íslands.
Börnin send á átakasvæði
Líkt og Thomas Albert og Erna
Björk fór Gunnar John Spencer,
sonur Vilborgar úr fyrra hjóna-
bandi, líka í herinn. Herinn hefur
því verið rauður þráður í lífi Vil-
borgar.
– En hvernig var að eiga börn
sem voru send á átakasvæði?
„Ég á systur sem spurði: „Hvern-
ig stendur á því að þú leyfir þeim að
gera þetta?“ Ég er búin að ala börn-
in mín upp. Þau þekkja rétt frá
röngu. Þegar ég spurði þau út í
stríðin sögðu krakkarnir: „Þegar við
skráðum okkur vissum við að þetta
gæti komið til. Þetta er bara hluti af
okkar starfi. Við reynum bara að
gera það besta.“ Ég sagði til dæmis
við Tomma minn að það væri svo
sterkt járnið í skrifborðunum hjá
hernum. „Skríddu bara undir þau,“
sagði ég og fannst ég vera voða
fyndin. Þá sagði hann: „Mamma,
veistu ég þurfti oft að gera það.“ Og
Erna mín var til dæmis í Kabúl í
heilt ár. Hún sá þar m.a. um að
koma pappírum og vitneskju áleiðis
til Bandaríkjanna, ef einhver var
slasaður eða lét lífið, svo herinn gæti
sent fólk heim til ættingja áður en
þeir fengu fréttirnar á Facebook. Á
þeim lista voru margir sem hún
hafði verið með í Fort Hood í Texas
og í Suður-Karólínu. Sumir þeirra
voru ungir strákar. Þetta lagðist
þungt á hjarta 25 ára stelpu.
Hún sendi okkur myndir af sér
með hjálm og byssu og vesti á ferð
með þremur hertrukkum að sækja
póstinn. Þau þurftu að fara á flug-
völlinn í Kabúl. Þarna var litla stelp-
an mín. Það er ábyggilega margt
sem þau hafa aldrei sagt mér og ég
reyni að spyrja þau ekki um, frekar
að hlusta. Ég er afskaplega þakklát
fyrir að þau komu ekki með meiri
sár en þau eru með, en ég efast ekki
um að það sé eitthvað. En meðan á
þessu stóð kom ekki til greina að
kvarta. Þeir sem skráðu sig í herinn
vissu hverju þeir gátu átt von á.“
Dýrt að ferðast á Íslandi
Vilborg fer orðið sjaldnar til Ís-
lands. Henni þykir verðlagið hátt.
„Ég fór í Kolaportið og langaði í
peysu. Spurði svo hvað hún kostaði.
Svo kvaddi ég og keypti lopann í
peysuna. Mér fannst allt óskaplega
dýrt og skildi ekki hvernig fólkið
kemst af. Því ég var alltaf blönk á
Íslandi. Ég er ábyggilega eini Ís-
lendingurinn sem hefur aldrei farið
til Spánar. Hef aldrei farið í sólar-
landaferð,“ segir Vilborg.
Hún sýnir ferðalang svo garðinn
áður en hann kveður. Hestur fylgist
með úr næsta garði. Við innkeyrsl-
una blaktir íslenski fáninn.
Vilborg Gunnarsdóttir og fjölskylda Fremst frá vinstri til hægri; Jasper Morgan Gallagher (með hjólið), sonur Lindu Óskar Gallagher, svo systir
hans Anika Ósk Gallagher og Emily Kathrine Spencer. Fyrir aftan þau eru frá vinstri Gunnar John Spencer, Vilborg og Apryl Heidorn-Spencer,
eiginkona Gunnars. Í þriðju röð frá vinstri eru Thomas Edward Jablonski, Christy Jablonski-Roe og fyrir aftan hana elsti sonur Vilborgar, Kenneth
Mekkinó Spencer. Fyrir framan Kenneth er sonur Vilborgar og Jablonski, Thomas Albert Jablonski (í herklæðum). Svo kemur yngsti sonurinn
Patrick Theadore Jablonski, svo Erna Björk Jablonski (í herbúningi), Linda Ósk Gallagher og svo maður hennar Tom Gallagher.
Sveitastemning Viðarbitarnir og hár arinninn
skapa stemningu í stofunni. Vilborg prjónar þar
stundum. Við arininn er málverk af Esjunni.