Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta mál sýnir að þú þarft að vera
á varðbergi með það hverjum þú
getur treyst. Ég gerði mistök með
því að treysta fólki sem ég þekkti,
það gerist jafnvel í 1.200 manna
þorpi norður við heimskautsbaug.
Ég sit uppi með þann skaða,“ segir
Róbert Guðfinnsson, athafnamaður
á Siglufirði.
Á dögunum staðfesti Hæstiréttur
dóm Héraðsdóms Norðurlands
eystra frá því í
apríl 2017 í máli
sem Rauðka ehf.,
félag í eigu Ró-
berts, höfðaði
gegn Bás ehf.
Krafðist Rauðka
viðurkenningar á
því að samningur
hefði verið í gildi
milli félaganna
tveggja um að
Bás sæti einn og
án útboðs að allri jarðvegsvinnu og
steypusölu vegna umfangsmikilla
framkvæmda við hótel og golfvöll á
Siglufirði gegn því að flytja starf-
semi sína af núverandi athafna-
svæði félagsins á Egilstanga. Þá
myndi Rauðka kaupa þær eignir
Báss sem eftir stæðu og hann gæti
ekki nýtt.
Niðurstaða dómsins er á þá leið
að röksemdir Rauðku um að samn-
ingar félagsins við Magnús Jóns-
son, sem hafi komið fram fyrir hönd
Báss, standist ekki þar eð hann hafi
verið búinn að selja hlutafé sitt í
fyrirtækinu og látið af störfum sem
framkvæmdastjóri. Þá þykir ósann-
að að Bás hafi skuldbundið sig í þá
veru sem stefnandi fullyrti.
Rauðka höfðaði málið í maí-
mánuði 2016 og féll dómur héraðs-
dóms 18. apríl 2017. Rauðka áfrýj-
aði til Hæstaréttar 26. júní sama ár
og féll dómur Hæstaréttar síðastlið-
inn föstudag.
„Mikið lýti á bænum“
Í samtali við Morgunblaðið segir
Róbert að Magnús hafi verið skrif-
stofustjóri sparisjóðsins í bænum
samfara störfum sínum fyrir Bás.
Þegar Arion hafi tekið yfir spari-
sjóðinn hafi verið gerð krafa um að
hann léti af þeim störfum. „Eigin-
kona hans var þá skráður fram-
kvæmdastjóri en hann hélt áfram
að gera alla samninga. Hann gerði
þennan samning við mig. Samning-
urinn var upp á 300 milljónir króna
sem þeir fengu án útboðs enda lof-
uðu þeir að fara annað með steypi-
stöðina þegar framkvæmdum lyki.
Hún er nálægt hótelinu og er mikið
lýti á bænum og fyrir gesti.
Þetta var aldrei sett á blað enda
treysti ég Magnúsi. En eigendur
verktakafyrirtækisins taka þá
ákvörðun að standa ekki við þetta
samkomulag og vinna þetta mál fyr-
ir héraðsdómi og Hæstarétti. Þar er
sagt að Magnús hafi ekki haft um-
boð til að semja fyrir þeirra hönd
þrátt fyrir að eigendurnir, sem eru
tveir bræður, hafi setið suma þess-
ara funda og sótt um lóð til bæj-
arins til að flytja steypustöðina.
Þrátt fyrir þetta duga munnlegir
samningar á Íslandi ekki lengra en
þetta. Þessir aðilar hljóta að vera
afskaplega ánægðir að hafa unnið
þetta mál á þessum forsendum.“
Róbert kveðst hafa kynnst ýmsu
á löngum ferli sínum í alþjóðavið-
skiptum en þessari framkomu hafi
hann þó ekki búist við. Hann segist
hafa viljað láta reyna á málið fyrir
dómstólum þrátt fyrir kostnað sem
því fylgdi. „Ég hefði ekki haft neinn
fjárhagslegan ávinning af því að
vinna það. Ég vildi bara losna við
þetta ljóta drasl af svæðinu,“ segir
Róbert en umrætt fyrirtæki og
starfsemi þess blasir við gestum á
hóteli Róberts, Hótel Sigló.
Fyrirtækið áfram á sínum stað
Hilmar Zophaníasson, stjórnar-
formaður Báss, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að forsvars-
menn fyrirtækisins fögnuðu dómi
Hæstaréttar. „Þetta fór nú bara
eins og við héldum að þetta myndi
fara. Þessi samningur var aldrei
gerður,“ segir Hilmar.
Aðspurður segir hann að fyrir-
tækið verði áfram á sínum stað á
Egilstanga: „Við erum ekkert að
fara.“
„Ég gerði mistök og treysti fólki“
Siglufjörður Fremst er athafnasvæði Báss ehf. en það blasir við gestum á Hótel Sigló sem sést fyrir miðri mynd.
Róbert
Guðfinnsson
Róbert Guðfinnsson athafnamaður tapaði máli fyrir Hæstarétti sem hann höfðaði gegn verktökum á
Siglufirði Taldi munnlegan samning fyrir hendi Þessi samningur aldrei gerður, segir verktakinn
Mitsubishi ASX 4x4 er fjórhjóladrifinn rúmgóður sportjeppi sem er hlaðinn aukabúnaði og skilar þér
miklu afli á mjúkan og sparneytinn hátt. Þú situr hærra, hefur meira rými og nýtur aksturseiginleikanna.
Nú færðu ASX með fimm ára ábyrgð á enn betra verði, frá aðeins 3.990.000 kr. Slökktu á vetrinum
og kveiktu á sumrinu með nýjum Mitsubishi ASX. Hlökkum til að sjá þig!
5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
FYRIR HUGSANDI FÓLK
ASX
3.990.000 kr.
Á BETRA VERÐI
Mitsubishi ASX Intense
4x4, sjálfskiptur, dísil: