Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018
Fljótasigling á Rín
sp
ör
eh
f.
Sumar 23
Við líðum eftir Rín, einu stærsta fljóti Evrópu og virðum fyrir
okkur einstaka fegurð Rínardalsins. Daglega bíða okkar
nýir og spennandi áfangastaðir, en á fögrum bökkum Rínar
eru ótal sögufrægir staðir sem við munum fræðast um í
ferðinni.Við gistum allar fimm nætur ferðarinnar um borð í
fljótaskipinu MS Gérard Schmitter sem leggur frá Strassburg.
4. - 9. september
Fararstjóri: Ingis Ingason
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 212.700 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS
Mjög mikið innifalið!
Sigurlás Þorleifsson,
skólastjóri í Vest-
mannaeyjum, er látinn.
Hann varð bráðkvaddur
í göngu á Heimakletti í
Eyjum síðastliðið
þriðjudagskvöld, 24.
apríl. Sigurlás var
fæddur í Vestmanna-
eyjum 15. júní 1957,
sonur hjónanna Þorleifs
Sigurlássonar og Aðal-
heiðar Óskarsdóttur.
Hann lauk prófi frá
Íþróttakennaraskóla Ís-
lands að Laugarvatni
árið 1980 og aflaði sér seinna réttinda
til kennslu í grunn- og framhalds-
skóla.
Sigurlás var íþrótta- og bekkjar-
kennari við Barnaskóla Vestmanna-
eyja frá 1980 til 1984 og frá 1988
grunnskólakennari við Hamarsskóla í
Vestmannaeyjum, Álftanesskóla og
Garðaskóla í Garðabæ allt fram til
ársins 1999. Það ár tók hann við starfi
aðstoðarskólastjóra Hamarsskóla í
Eyjum sem hann gegndi til ársins
2006, þegar skólinn var sameinaður
öðrum undir nafni Grunnskólans í
Vestmannaeyjum. Þar var Sigurlás
aðstoðarskólastjóri fram til 2013 er
hann tók við starfi skólastjóra sem
hann gegndi fram á síðasta haust. Þá
fór hann í leyfi til náms við Háskóla
Íslands, en hugðist snúa aftur til
starfa við grunnskól-
ann á komandi hausti.
Um langt árabil lék
Sigurlás með meist-
araflokki ÍBV í knatt-
spyrnu og varð meðal
annars bikarmeistari
með liðinu árið 1981.
Hann varð þrívegis
markakóngur efstu
deildar Íslandsmótsins,
fyrst árið 1979 þegar
hann lék eitt ár með
Víkingi, og síðan aftur
með ÍBV árin 1981 og
1982. Hann var lengi
markahæsti leikmaðurinn í sögu fé-
lagsins og er í dag þriðji markahæst-
ur Eyjamanna í efstu deild með 60
mörk. Þá er hann sextándi marka-
hæsti leikmaðurinn í sögu efstu deild-
ar karla á Íslandi með alls 70 mörk
fyrir ÍBV og Víking.
Sigurlás lék á þessum árum 10
landsleiki fyrir Íslands hönd og skor-
aði í þeim tvö mörk, bæði árið 1980 í
leikjum við Færeyjar og Noreg.
Hann var leikmaður og þjálfari Sel-
foss árið 1983 og lék í nokkur ár í Sví-
þjóð með liðinu Vasalund.
Eftirlifandi kona Sigurláss er Guð-
rún Karen Tryggvadóttir stuðnings-
fulltrúi. Þau eignuðust fjögur börn;
Jónu Heiðu, Söru, Kristínu Ernu og
Þorleif. Fyrir átti Sigurlás dótturina
Kolbrúnu.
Andlát
Sigurlás Þorleifsson
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Þetta stressar mig frekar mikið
enda býður heimaþjónustan upp á
svo margt sem ég kann ekki,“ segir
Birgit Rós Becker, sem á von á sínu
fyrsta barni á næstu dögum.
95 ljósmæður í heimaþjónustu við
sængurkonur lögðu niður störf á
mánudag og munu ekki taka til
starfa aftur fyrr en nýr samningur
verður undirritaður við Sjúkra-
tryggingar Íslands. Velferðarráðu-
neytið fól Landspítalanum og öðrum
heilbrigðisstofnunum að sinna þjón-
ustu við sængurkonur og börn
þeirra þar til samningur næst. Til að
mæta því hefur verið reynt að lengja
legu sængurkvenna, sérstaklega
frumbyrja og þeirra sem þurfa á því
að halda. Aðrar nýbakaðir foreldrar
eru sendir heim með hvítvoðunga
sína án heimaþjónustu. Ef þeir þurfa
aðstoð geta þeir haft samband við
ungbarnavernd heilsugæslunnar.
Settur dagur hjá Birgit var á
þriðjudaginn. „Maður hálfpartinn
krossleggur fætur og vonar að barn-
ið verði í rónni næstu daga á meðan
leyst er úr þessu,“ segir Birgit kank-
vís. „Þetta ástand með heimahjúkr-
unina stressar mig en ég reyni að
líta á björtu hliðarnar og vonast til
að þetta reddist. Ég er alveg
reynslulaus og veit ekki allt sem þær
sem eru að eignast sitt annað eða
þriðja barn vita, eins og með brjósta-
gjöfina og að baða barnið.“
Umræða í bumbuhópi
Birgit finnst ekki spennandi að
þurfa að liggja lengur inni á Land-
spítalanum en annars hefði verið,
sérstaklega ef fæðingin gengur eðli-
lega fyrir sig. „Ef ég þarf að vera
þarna inni í einhvern tíma ætla ég
ekki að pirra mig á því og láta það
eyðileggja fyrstu dagana með
barninu.“
Birgit er í bumbuhópi á Facebook
með öðrum konum sem eiga von á
sér í apríl. Hún segir að þær sem
fæddu í vikunni segi ástandið á
Landspítalanum allt í lagi, þær hafi
ekki upplifað troðning eða skerta
þjónustu. „Sumar lýsa áhyggjum
sínum yfir sængurlegunni í bumbu-
hópnum en þær sem eru búnar að
eiga segja það ekki eins slæmt og
búast má við að vera lengur á spít-
alanum. Það leggst aftur á móti illa í
flestar að þurfa að fara með nýfætt
barn upp á heilsugæslu á hverjum
degi innan um veikt fólk til að fá eft-
irlitið sem annars væri í heimaþjón-
ustunni. Þær vilja frekar geta verið
heima hjá sér í ró og næði.“
Birgit segir að það sé augljóst á
umræðunni í bumbuhópnum að
samningadeilur ljósmæðra stressi
allar verðandi mæður en sérstaklega
þær sem eiga von á sínu fyrsta
barni.
Hjá fæðingarheimilinu Björkinni
hafa ljósmæður ekki orðið varar við
aukna eftirspurn verðandi foreldra
síðan vinnustöðvun ljósmæðra í
heimaþjónustu hófst. Þar eru ljós-
mæður líka aðilar að samningnum
við Sjúkratryggingar Íslands og á
meðan samningar nást ekki er ekki
tekið við nýjum skjólstæðingum í
Björkinni en þeim skjólstæðingum
er sinnt sem voru hjá fæðingarheim-
ilinu áður en til vinnustöðvunar kom.
„Þetta ástand stressar mig“
Verðandi mæður áhyggjufullar vegna skorts á heimaþjónustu Viðræður í
gangi til að leysa deiluna um kjör heimaljósmæðra 95 ljósmæður í verkfalli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhyggjufull Birgit Rós Becker á von á sínu fyrsta barni á næstu dögum og segir ljósmæðradeiluna stressa sig.
Verjandi Sindra Þórs Stefáns-
sonar í Hollandi, Michiel M. Kuyp,
segir í samtali við mbl.is að skjól-
stæðingur sinn hafi lýst yfir að
hann sé reiðubúinn að fara sjálf-
viljugur til Íslands og verður því
framseldur til íslenskra yfirvalda
innan 20 daga. Framsalsbeiðni
vegna Sindra var send yfirvöldum
í Hollandi í fyrradag.
Kyup segir handtöku Sindra í
Hollandi hafa verið afar sérkenni-
lega og grunar hann íslensku lög-
regluna um að hafa átt þátt í
henni. „Það sem gerðist er að lög-
reglan í Amsterdam handtók hann
eftir frásögn vitnis um að hann
hefði séð mann sem væri eftir-
lýstur á Íslandi. Þetta var mjög
sérkennilegt, þar sem það voru
mun meiri upplýsingar í mála-
skránni en einhver vegfarandi
gæti vitað. Okkur grunar þess
vegna að lögreglan á Íslandi hafi
hugsanlega elt hann uppi í Amst-
erdam. Það er ólöglegt athæfi. Ég
gerði þess vegna verulegar at-
hugasemdir við handtökuna í dóm-
sal,“ segir Kuyp.
Sindri til-
búinn að
koma heim
Verjandi segir
handtöku vafasama
Drög liggja fyrir að samningi á milli sjálfstætt starfandi ljósmæðra í
heimaþjónustu og Sjúkratrygginga Íslands um fyrirkomulag þjónust-
unnar. Þetta sagði Arney Þórarinsdóttir, ljósmóðir og framkvæmdastjóri
Bjarkarinnar, í gærkvöldi. Fundað var með Sjúkratryggingum í gær þar
sem farið var yfir málið og reynt að finna lausn innan þess ramma sem
velferðarráðuneytið hefur sett.
„Við fórum vel yfir drögin og erum núna að fara að kynna þau fyrir ljós-
mæðrunum og það verður síðan bara að koma í ljós hvernig þeim líst á
þetta.“ Arney sagði aðspurð alls óvíst hver niðurstaðan yrði og hún lá
ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun, en fundahöld stóðu þá enn yfir.
Drög að samningi liggja fyrir
KJARADEILA HEIMALJÓSMÆÐRA
„Ég hef upplifað miklar breytingar á
þessum hundrað árum,“ segir Guð-
rún Glúmsdóttir á Hólum í Reykja-
dal í Suður-Þingeyjarsýslu, sem
varð hundrað ára í gær. Nánustu
fjölskyldu hennar var boðið í afmæl-
iskaffi í gær heima á Hólum þar sem
Guðrún býr með sínu fólki. Hún á
þrjá syni sem allir búa í Reykjadal
en afkomendurnir eru 14 talsins.
Langlífið þakkar Guðrún meðal
annars mataræðinu. „Fiskur var
mjög oft í matinn á mínu æskuheim-
ili,“ segir Guðrún, sem er frá bænum
Vallakoti í Reykjadal. Hún giftist ár-
ið 1945 Haraldi Jakobssyni, bónda á
Hólum, þar sem þau bjuggu alla tíð.
Haraldur lést 1996.
„Ég hafði alla tíð ánægju af bú-
störfunum, til dæmis heyskapnum,
og hér heima við hef ég haft gaman
af hannyrðum, til dæmis að prjóna.
Einu sinni komst ég til Danmerkur
en svo hef ég líka ferðast talsvert
hér innanlands,“ segir Guðrún, sem
er þokkalega ern miðað við aldur.
Kveðst þó þreytast fljótt og heyrnin
sé farin að gefa sig. sbs@mbl.is
Ljósmynd/Haraldur R. Sverrisson
Öld Guðrún Glúmsdóttir með fal-
legan blómvönd á afmælisdeginum.
Þakkar
fiskinum
langlífið
Guðrún Glúms-
dóttir 100 ára