Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018 Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur fyrir heimilið Ný glæsileg ljós frá Zijlstra Verð frá 77.000 kr. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Skúli Halldórsson sh@mbl.is Í nýju frumvarpi atvinnunefndar Alþingis, til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða, er gert ráð fyrir að veiðidagar til strandveiða árið 2018 verði 48, skipt jafnt á strand- veiðimánuðina maí, júní, júlí, ágúst. Þá er skipting strandveiða á fjögur svæði eftir landshlutum af- numin, en hún hefur verið frá því strandveiðarnar hófu göngu sína árið 2009. Samþykkt var á Alþingi síðdegis í gær að ljúka 2. umræðu um frumvarpið og má búast við að þriðja umræða hefjist í dag, sem endað gæti með því að frumvarpið verði samþykkt. Vanhugsaðar breytingar Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segja alvarlega annmarka á þeirri ráðstöfun við stjórn fiskveiða sem frumvarpið feli í sér, einkum þar sem ákvörðun um að stöðva „skuli“ veiðar, eins og núverandi reglur geri ráð fyrir, sé breytt á þann veg að ráðherra „geti“ stöðvað veiðarnar. Breytingarnar séu van- hugsaðar og með þeim sé boðið upp á lausatök við stjórn fiskveiða, en af þeim hafi Íslendingar einmitt mikla og slæma reynslu. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyr- irtækja í sjávarútvegi, segir í sam- tali við 200 mílur að samtökin geri aðallega athugasemdir við tvö grundvallaratriði frumvarpsins. „Annars vegar að valkvætt verði að stöðva veiðar, eftir að leyfileg- um heildarafla hefur verið náð. Þarna er verið að bjóða upp á þessi lausatök, sem við nefnum, sérstaklega þar sem gera verður ráð fyrir að mikill þrýstingur verði á ráðherra að auka við aflaheim- ildir þegar líður á veiðarnar,“ segir Heiðrún. Hættan mest í andvaraleysi „Þrátt fyrir að atvinnunefnd Al- þingis segi að þessi breyting sé valin með tilliti til þess að óveruleg hætta sé á að nýtingarstefna í þorskveiðum gangi ekki eftir, þá er það einmitt í svona hugs- anagangi og andvaraleysi sem hættan er mest á að grafið sé und- an nýtingarstefnunni og aflareglu. Allar ráðstafanir sem geta aukið líkur á afla umfram ráðgjöf; í þeim felst afturför.“ Yfirlýst markmið með heimild til strandveiða, þegar þær voru upp- haflega settar á, hafi verið áhersla á nýtingu sjávarauðlindarinnar með sjálfbærni að leiðarljósi og á ábyrgan hátt. Þá hafi verið gert ráð fyrir að strandveiðar myndu einkum takmarkast af þeim afla- heimildum sem ráðstafað væri sér- staklega til veiðanna. „Við erum alltaf með þetta grundvallarsjónarmið um sjálf- bæra nýtingu, ekki bara út frá því að við höfum þróað hér gott fiskveiðistjórnunarkerfi, heldur líka út frá kröfum erlendra kaup- enda og vottunaraðila. Um leið og við byrjum að hugsa á þann veg sem frumvarpið lýsir, þá erum við að stíga skref aftur á bak,“ segir Heiðrún. Horfið frá grundvallarhugsun „Hins vegar gerum við at- hugasemd við þá ákvörðun að af- nema svæðaskiptingu strandveiða með þessu frumvarpi. Skiptingin hefur verið trygging fyrir því að hver landshluti fái að minnsta kosti lágmarksafla. Þetta er því grundvallarbreyting, einkum ef við lítum til þess að frumvarp til breytinga á strandveiðum, sem sett var fram árið 2016, var sam- þykkt með það að markmiði að jafna veiðidagana og auka jöfnuð á meðalveiði báta. En þegar svæða- skiptingin er afnumin þá er um leið verið að hverfa frá þessari grundvallarhugsun sem ríkt hefur í strandveiðum til þessa.“ Þá gefur hún lítið fyrir þau rök að strandveiðar svari spurn eftir fiski, til dæmis á sumrin, þegar framboð minnki hjá stærri útgerð- um. „Ef maður skoðar afla á fisk- mörkuðum yfir allt síðasta ár, þá er enginn sérstakur samdráttur yfir sumarið. Þannig að strand- veiðarnar halda ekki uppi því að hér sé vinnsla allt árið um kring. Magnið er einfaldlega ekki af því tagi.“ Heiðrún segir að breytingar af þessu tagi séu hluti af flóknu sam- hengi í öllu fiskveiðistjórn- unarkerfinu. „Við teljum erfitt að sjá fyrir mögulegar afleiðingar þessa frumvarps. Allar svona breytingar þarf því að skoða gaumgæfilega og vinna í sátt við alla hagsmunaaðila, sem eru auð- vitað ekki bara smábátasjómenn heldur sjávarútvegur í heild sinni, sveitarfélög um land allt sem og þjónustuaðilar.“ Frumvarpið jákvætt Landssamband smábátaeigenda segir frumvarpið afar jákvætt fyrir Framför eða skref aftur til fortíðar? Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Landssamband smábáteigenda eru ósammála um ágæti nýs frum- varps atvinnunefndar um breytingar strandveiða. Frumvarpið gæti hlotið samþykki Alþingis í dag. Örn Pálsson Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skúli Halldórsson sh@mbl.is Iceland’s Finest-vörulínan frá ORA, sem inniheldur rjómakennda loðnu- hrognabita, stökka kavíarbita og ljúffenga humarsúpu, hefur verið valin vörulína ársins á sjávarútvegs- sýningunni í Brussel, sem lýkur í dag. Tilkynnt var um vinningshafa við hátíðlega athöfn á þriðjudagskvöldið í sýningarhöllinni í Brussel. Þar hef- ur ORA undanfarna daga kynnt vörumerkið og vörulínu Iceland’s Fi- nest, en hún inniheldur forrétti sem byggjast eingöngu á íslensku há- gæða hráefni og gerir fólki kleift að útbúa bragðgóða og girnilega sjáv- arforrétti með afar einföldum og fljótlegum hætti, að því er fram kemur í tilkynningu frá framleiðand- anum. Allar vörurnar prófaðar Sjávarútvegssýningin í Brussel er sú allra stærsta í heiminum á þessu sviði og stendur árlega fyrir vali á bestu nýju vörum ársins. Allar vör- urnar sem voru tilnefndar til verð- launanna voru sérstaklega prófaðar og metnar af fagmönnum og inn- kaupafólki úr smásölu og stóreld- húsageiranum, auk þess sem sér- fræðingar í nýjum matvörum lögðu mat sitt á þær. „Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkur hjá ORA en við erum að keppa við mörg af stærstu fyr- irtækjum heims með sjávarafurðir um athygli á vörunýjungum og við stöndum skrefinu framar en þau,“ segir Jóhannes Egilsson, útflutn- ingsstjóri ORA. Auka verðmæti sjávarafurða „Í mínum huga endurspeglar þessi viðurkenning kraft, þor og metnað hjá eigendum ÍSAM/ORA til að auka verðmæti íslenskra sjáv- arafurða og taka næsta skref í þróun og markaðssetningu á okkar frá- bæru afurðum,“ segir Jóhannes Eg- ilsson, útflutningsstjóri ORA. Vörur ORA sköruðu Verðlaun Jóhannes tók við verð- launagripnum á þriðjudagskvöld. Hvað er í bíó? mbl.is/bio
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.