Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 37
Ljósmynd/Icelandair Hotels
Gæðahótel Vel er búið að gestunum í Reykjavík Konsúlat og allt gert til að þeir njóti dvalarinnar sem best.
Sérhæfð í
fágætisferða-
þjónustunni
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Nine Worlds (Níu heimar) er deild
hjá Iceland Travel sem sérhæfir
sig í fágætisferðaþjónustu. Nafnið
Níu heimar er sótt í norræna
goðafræði. Nine Worlds var sett á
fót í júní 2014. Ásta Ólafsdóttir,
deildarstjóri Nine Worlds, segir að
þau sjái um alla
þjónustu sem
viðskiptavinir
þeirra þarfnast
frá því að þeir
koma til landsins
og þar til þeir
fara aftur – eða
frá flugvél til
flugvélar.
„Þegar við
byrjuðum var ég
með 1,3 stöðu-
gildi í deildinni en nú eru starfs-
mennirnir orðnir níu. Það hefur
verið stöðug aukning,“ sagði Ásta.
„Fjölgun starfsfólks sýnir hversu
hraður vöxurinn hefur verið und-
anfarin þrjú ár. Ísland er vel stað-
sett sem áfangastaður og stenst
vel væntingar þessa hóps við-
skiptavina. Fólkið fer mjög ánægt
héðan og margir koma aftur.“
Flestir viðskiptavinir Nine
Worlds koma frá Bandaríkjunum.
Suður-Ameríka fylgir þar á eftir
og svo Evrópa. Einnig fjölgar
þeim sem koma frá Asíu og Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum.
Klæðskerasniðnar ferðir
„Við klæðskerasníðum ferðina
samkvæmt óskum hvers og eins.
Við sækjum ferðamennina á Kefla-
víkurflugvöll, jafnvel alla leið út að
hliði og sjáum um alla ferðina
þeirra á meðan þeir dvelja á land-
inu,“ sagði Ásta. Meðallengd dval-
ar er gjarnan frá 4-5 nóttum að
vetri upp í 7-8 nætur eða jafnvel
tvær vikur á sumrin. Fágætis-
ferðamenn koma árið um kring. Ef
þeir koma fyrst að sumri vilja þeir
gjarnan koma aftur að vetri og öf-
ugt, að sögn Ástu.
Hún segir að hágæða gisti-
stöðum sé alltaf að fjölga. Nýbúið
er að opna hótelið Reykjavík
Konsúlat og nýja lúxushótelið, The
Retreat, við Bláa lónið. Icelandair-
hótelin opna nýtt hótel við Mývatn
á árinu og annað sem býður upp á
meiri gæði 2019. Þá er verið að
byggja Reykjavík Parliament Hót-
el við Austurvöll sem verður opnað
2019. Auk þess nefndi Ásta góð
hótel eins og Hotel 101, Canopy,
Húsafell, Skálakot, Grímsborgir og
lúxusgistinguna hjá Deplar Farm.
Ásta segir að erlendir ferða-
menn komi hingað til að upplifa
það sem Ísland hefur upp á að
bjóða og kynnast heimamönnum.
Fágætisferðamennirnir ferðast
mikið vítt og breitt um landið, þeir
nýta dagana vel til skoðunarferða
og afþreyingar.
„Þeir vilja gjarnan njóta afþrey-
ingar út af fyrir sig og fara því
ekki í skipulagðar snjósleðaferðir
eða jöklagöngur. Við skipuleggjum
því einkaferðir fyrir þessa ferða-
menn. Úti á landi gista þeir bæði á
hótelum og í gæðagistingu í einka-
eigu og þá með fullri þjónustu á
staðnum, kokki og starfsfólki.“
sagði Ásta.
Sumir óska eftir því að lítið beri
á dvöl þeirra hér og er ferðin þá
skipulögð út frá því. Einnig kemur
fyrir að ferðamennirnir óski eftir
lífvörðum og þá eru þeir útveg-
aðir.
Yfirleitt eru 1-2 þyrluferðir inni
í ferðinni, gjarnan til að skjótast
inn á hálendið eða til að vera fljót-
ari á milli staða. Langflestir
ferðast með ökuleiðsögumanni á
þægilegum bíl eða jeppa. Nokkuð
er um að gestir vilji fara í göngu-
ferðir eða að gert sé ráð fyrir ein-
hverri hreyfingu á hverjum degi
því fólk hugsar um heilsuna.
Vilja kynnast Íslendingum
„Sumir vilja lifa eins og heima-
menn á meðan þeir dvelja hér. Við
erum í samvinnu við heimafólk
sem er tilbúið að taka við gestum
til dæmis heim á sveitabæinn sinn.
Við veljum mjög vel ökuleið-
sögumenn og birgja sem við
vinnum með. Stundum förum við
og könnum aðstæður án þess að
gera boð á undan okkur,“ sagði
Ásta. Hún segir að virðisaukinn af
þessum ferðamönnum sé mikill.
Ásta segir að inn í þær tölur sem
birst hafa í fjölmiðlum um eyðslu
fágætisferðamanna vanti flugferð-
irnar, mat og fleira. „Það góða við
þessa ferðamenn er að þeir vilja
mikla þjónustu og eru tilbúnir að
borga fyrir hana. Það skapar hér
atvinnu og skilar tekjum,“ sagði
Ásta.
Í tjaldbúðum á Grænlandi
Nine Worlds býður einnig upp á
ferðir til Grænlands, en margir
sem hingað koma vilja einnig fara
þangað. Þá er gist í lúxustjaldbúð-
um og tekur um 90 mínútur að
sigla þangað frá Nuuk. Þar búa
gestirnir í 3-4 daga, upplifa Græn-
land á einstakan hátt og þykir það
heillandi tilbreyting frá erli hvers-
dagsins.
Nine Worlds veitir heildstæða þjón-
ustu við kröfuharða viðskiptavini
Ásta
Ólafsdóttir
Grænland Nine Worlds býður upp á gistingu í tjald-
búðum. Þar er líka viðarkynntur heitur pottur.
Ljósmynd/Nine Worlds
Tjaldgisting Þægileg rúm og góð upphitun er í tjöldunum í
Grænlandi. Það fer því vel um gestina í óbyggðunum.
Ljósmynd/Bláa lónið
Útsýni The Retreat við Bláa lónið er byggt við úfið hraunið.
Ljósmynd/Bláa lónið
Bláa lónið Aðbúnaður í The Retreat er vandaður og glæsilegur.
Ljósmynd/Icelandair Hotels
Reykjavík Konsúlat Eitt nýjasta hótelið í miðborg Reykjavíkur.
37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
AK 2510 Verð frá 90.000,-
SÓFABORÐ
AK 2560 Verð frá 119.000,-