Breiðfirðingur - 01.04.1987, Blaðsíða 65
BREIÐFIRÐINGUR
63
af innfluttu fánýti úr búri okkar, kaffi, sykri og dauðu hveiti-
korni. Hann var oft gestur okkar og veitti okkur í staðinn af
ofgnótt sinna andlegu og áþreifanlegu auðæfa. Mál hans er
hástuðluð hending, lífsreynslan löng og dýr.
Þar sem við erum nú orðin nákunnug á næstu bæjum dirf-
ist ég að bjóða þér, lesandi góður, heim á nokkra þeirra,
okkur verður ábyggilega vel tekið. - Það er styst að Tindum:
Bergur bóndi mun skemmta okkur með hnyttinni frásögn og
hans góða kona ber fram kaffi. Þá munum við rata að Heina-
bergi, þangað sóttum við mjólk alla daga og þar verður
okkur haldin veisla. Steinunn húsfreyja lofar okkur kannske
að heyra vísupart eftir vinina sína, Stefán frá Hvítadal og
Jóhannes úr Kötlum, jafnvel stef eftir sjálfa sig, það gæti
hún. Hugurinn mun einnig hvarfla til Steins Steinars. Stein-
grímur bóndi gefur sér vissulega tíma til að spjalla við okkur
þó túnið sé stórt og tíðin bölvuð og annir kalli að. Hvað um
heimasæturnar, nóg fyrir þær að gera, allt fyrir starfið. Heina-
berg er stórbýli, glæsilega hýst - það eru allar jarðir hér. Og
allir eru hér milljónamenn, ef ekki í veraldlegum þá and-
legum auði.
Með söknuði kveðjum við á þessum bæ, tökum mjókur-
brúsann, kannske smjörsköku af strokknum, og maður
minn, bústið rauðreykt hangikjötslæri. Við biðjum að heilsa
á Fagradalsbæina því tíminn er naumur. Og fyrst Búðar-
dalsá er farin að grynnast höldum við útfyrir aftur. Jeppinn
er orðinn henni vanur, vissara þó að taka viftureimina af.
Við rötum að Hvalgröfum. Þar býr hann Gísli, foreldrar
hans, og konan hans fallega, dóttir tveggja eylanda og dálít-
ill patti sem einhverntíma verður karl í krapinu.
Svo er það Barmur. Þar býr nafni minn og hann skal út
með ærlegan nefdrátt. Þetta er dásamlegt fólk, og ætti skilið
langa sögu. Hvernig hefðu við farið að fyrst í vor, ef ekki
hefði við notið nafna míns og Gísla?
Nafni minn í Barmi á 60 ára merkissögu að baki. Hún ger-
ist vítt um þetta land og fleiri. Það kom á daginn að hann
hafði lengi framan af ævi búið í Hörgárdal og hampað þar