Breiðfirðingur - 01.04.1994, Page 61
REKI Á RAUÐASANDI
59
Skip hafði verið að slefa þessum pramma suður á við en
hann slitnaði aftan úr mannlaus svo ekki tókst að koma taug í
hann aftur. Fljótlega barst hann alveg upp á hárifið, því að
svona skip eru flatbotna og rista grunnt. Það var bandaríski
herinn sem átti fleytuna og brátt sendu þeir skip með annan
minni í togi og átti nú að kanna aðstæður á strandstað til
björgunar. Þegar leiðangurinn kom undir Rifið var langt í frá
lendandi vegna brims, en það hamlaði því ekki að þessi minni
prammi var mannaður og lagt í hann. Var ekkert hik á áhöfn-
inni og keyrt beint í brimgarðinn.
Fljótlega reið undir brot það mikið að litlu virtist muna að
pramminn steyptist fram yfir sig, síðan annað og hið þriðja
engu minna, en þegar það var gengið undan honum sneru
þessir „sjómenn" bara við og keyrðu á fullu út úr brimgarðin-
um og sluppu. Var svo ekki reynt meira af sjó en menn sendir
landleiðina frá Patreksfirði. Varð að ráði að reyna ekki meira
við björgunina fyrr en næsta sumar
Sumarið eftir var svo 20 manna flokkur í einn mánuð að ná
prammanum og koma honum á flot. Tókst nokkur kunnings-
skapur með þeim og innfæddum en flokknum var stjórnað af
Vesturíslendingi sem talaði íslensku. Fyrir jólin 1944 barst svo
stór kassi með mörgum kílóum af sælgæti og tóbaki á hvert
heimili á Rauðasandi, og raunar tveir þar sem flest voru börn-
in, frá þessum flokki sem hefur eflaust þakkað fyrir að fá að
vera nær frjáls vestur á Rauðasandi í stað þess að standa í bar-
dögum og tilheyrandi lífsháska einhverstaðar í veröldinni, en
einmitt um það leyti var víða barist af mestri hörku þegar fjör-
brot Möndulveldanna voru að hefjast fyrir alvöru.
Eftir þetta fór þessi stríðsreki minnkandi, enda voru nú orð-
in þáttaskil í styrjöldinni, sérstaklega á hafinu hér umhverfis.
Bandamenn höfðu náð undirtökunum og kafbátahernaður
Þjóðverja fór minnkandi og þar af leiðandi minna magn sem
fór í sjóinn.
Eftir stríðið var sem trjárekinn gamli færi minnkandi og var
eins og minna tapaðist af trjáviði en áður hafði verið frá sög-
unarstöðvunum. Þó hafa komið eitt og eitt ár sem reki hefur