Breiðfirðingur - 01.04.1994, Page 134
132
B RHIÐNRÐINGU R
í fiskiróðri með 30 manns.“ Meira var ekki um það sagt. 1
sama riti segir neðanmáls meðal annars: „Arið 1842 átti kaup-
stjóri H. A. Clausen 7 fiskiskútur, sem gengu til hákalla-
veiða.“
Eftir að Guðbjörg Gilsdóttir var orðin ekkja í annað sinn
hefur hún lljótlega flutt frá Olafsvík. I Manntalinu 1845 var
hún skráð að Gröf í Staðarsveit, grasbýli, ásamt börnum sín-
um tveimur og föður sínum Gils Gilssyni, og í Manntalinu
1850 var hún að Bergsholti í sömu sveit.
Samkvæmt Ministeríalbók Breiðuvfkurþinga þá var Ög-
mundur fermdur 3. júní 1855, sagður eiga heima að Dagverð-
ará og móðirin sögð vera „bústýra í Lóni.“ Um Ögmund segir
í kirkjubókinni við ferminguna: „Kann í meðallagi, stilltur.“
Trúlega hefur sú uppfræðsla sem hann fékk ekki verið mikil,
eða sá bókakostur sem hann hafði aðgang að verið fjölbreyti-
legur, hann mun vísast lítið annað liafa heyrt og séð en rímur
og alþýðukveðskap. Ljóst er þó af því sem til er í handriti
hans sjálfs að hann hafði all góða rithönd.
1 Manntali I. október 1860 var Ögmundur og móðir hans
skráð að Húsanesi í Breiðuvík. 1 Ministeríalbók Miðdalaþinga
segir um „innkomna“ í sóknina að Ögmundur hafi komið að
Hrafnabjörgum árið 1865 frá Malarrifi. Trúlega hefur hann
verið búinn að vera eitthvað í Dölum áður, í kaupavinnu á
sumrum. í sömu heimild segir að 22. október 1865 hafi verið
gefin saman Ögmundur Jóhannesson 24 ára og Halldóra Sig-
fúsdóttir 47 ára ekkja að Hrafnabjörgum.
Halldóra Sigfúsdóttir (um 1818-1875) var ekkja Björns
Gestssonar (1820-1863, kominn af Kolbeini Jöklaraskáldi) og
voru bæði úr Húnavatnssýslu. Halldóra var dóttir Sigfúsar
Bergmanns Sigfússonar (1765-1844) að Þorkelshóli í Víðidal
og Halldóru Tómasdóttur (1790-1833), Tómassonar
(1756-1811), stúdents og fræðimanns að Stóru-Asgeirsá og
Ljótunnar Jónsdóttur (1752 í sóknarmannatali 1838 en ekki í
Manntali 1840-um 1839?) frá Melum í Hrútafirði. (ísl. ævi-
skrár V, 18).
Sagt er að Tómas hafi kveðið þessa vísu um Ljótunni sína: