Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Side 71
K á s e r í u m S t u r l u Þ ó r ð a r s o n , h ö f u n d N j á l u
TMM 2010 · 3 71
virki dregur sá sem söguna ritar enga dul; má það meðal annars sjá af
því að það er talið vegendum Gunnars á Hlíðarenda til mannkosta að
það hvarflaði ekki að þeim að brenna hann inni; það voru höfðingjar og
göfugmenni. Ólíkt Flosa. Og þarf raunar ekki að hafa um það fleiri orð;
fátt er verr til þess fallið að heiðra minningu um forföður en að skrifa
heila bók þar sem stórglæpur hans er í miðþyngdarstað. Og raunar
auðvelt að finna aðrar og nærtækari skýringar á því hvers vegna jafn
flinkur og listfengur höfundur gefur slíkri persónu mannlega drætti;
það hefði til að mynda ekki rímað vel við stórmennsku eða hreinlega
helgi hjónanna á Bergþórshvoli ef þau hefðu verið myrt, svæld inni eins
og melrakkar á greni, af venjulegum hrottum og brunnmigum; það
gerir þau auðvitað stærri að sá sem stóð yfir höfuðsvörðum þeirra er
frekar í sporum tragísku hetjunnar sem á tvo kosti og báða illa; brenna
þau inni eða sitja ella aðgerðarlaus undir frýjunarorðum frænku sinnar
og baðaður blóði saklauss manns.
En þetta með hneigðina kemur okkur á sporið. Má einhversstaðar lesa
úr Njálu afstöðu til lykilmanna í borgarastríði 13. aldar?
Með lítilli einföldun má segja að meginstríð aldarinnar hafi staðið
á milli Sturlungaflokksins annarsvegar, og svo hinsvegar bandalags
Ásbirninga og Haukdæla undir forystu Kolbeins unga og Gissurar
Þorvaldsssonar. Kolbeinn og Gissur eru höfuðfjandmenn Sturlunga;
þeir drepa feðgana Sighvat og Sturlu og þá bræður á Örlygsstöðum, láta
meðal annars leiða þann yngsta barnungan til höggs út úr Miklabæjar
kirkju, þeir standa fyrir morðinu á Snorra Sturlusyni, þeir svíkja Órækju
og Sturlu Þórðarson við Hvítárbrú; Kolbeinn stendur einu sinni fyrir
herför í Dalina með það yfirlýsta markmið að drepa Sturlu Þórðarson.
Og þannig mætti lengi telja.
Þannig vill til að við báða má finna einkennileg tengsl í Njáls sögu.
Þegar Gissur er kynntur til sögu á unga aldri í Sturlungu er dregin upp
nákvæmlega sama senan og þegar skaðræðiskvendið Hallgerður Lang
brók er leidd fram á sviðið í Njálu; faðir þeirra beggja er stoltur að sýna
barnið sitt, vill fá hrósyrði, en fær mjög tvíræð svör; þeim sem fyrir
svörum verða líst illa á augnaráð barnanna. En um tengsl Kolbeins unga
við Njálu er það að segja að þegar verstu skítmenni sögunnar eru kynnt,
feðgarnir Valgarður grái og LygaMörður, er klykkt út með því að segja
að frá Valgarði sé runninn Kolbeinn ungi.
Þannig að ef beitt er þessari aðferð til að finna uppruna Njálu beinist
kastljósið beint vestur í Dali til Sturlunganna.
Það eru ýmsar fleiri augljósar hliðstæður á milli Njálu og Íslendinga
sögu Sturlu (og fleiri af hans verkum raunar) en hér hafa verið nefnd; til