Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Side 133

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Side 133
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2010 · 3 133 Ingibjörg Eyþórsdóttir Jón Leifs – hinn ókleifi drangur í íslensku tónlistarlandslagi Árni Heimir Ingólfsson: Jón Leifs – Líf í tónum – ævisaga. Mál og menning, 2009, I. Bókin Jón Leifs– Líf í tónum – ævisaga er langt frá því að vera fyrsta tilraunin til að gera ævi Jóns Leifs skil. Kvikmyndin Tár úr steini (leikstjóri: Hilmar Oddsson) var frumsýnd árið 1995 og ævisaga Jóns eftir sænska tónlistarfræð­ inginn Carl­Gunnar Åhlén sem ber hinn lýsandi titil Jón Leifs, tónskáld í mótbyr kom út árið 1999 (Mál og menning). Það verður að segjast eins og er að bæði þessi verk draga upp nokkuð einhliða mynd af Jóni: hann er misskilinn snillingur í forpokuðu og ómenningarlegu umhverfi og honum minni spá­ menn vilja halda honum úti í kuldanum. Bók Åhléns er reyndar hálfgert varnarskjal; Jón fékk sögulega útreið eftir frumflutning Sögusinfóníunnar á Norræna tónskáldaþinginu árið 1950 og á tímum módernismans þóttu þau verk hans sem flutt voru á nokkrum norrænum tónskáldaþingum beinlínis hlægileg. Åhlén fékk áhuga á Jóni á slíku þingi árið 1964 og hefur bók sína á að rekja þessar ófarir allar. (Ahlén: Mál og menning 1999: 7–13). Kvikmyndin sýnir samband Jóns Leifs og Páls Ísólfssonar í nokkuð sérkennilegu ljósi, Páll er eins og einhvers konar Salieri á móti Jóni í hlutverki Mozarts og minnir að því leyti á kvikmynd Milosar Formans, þar sem Salieri er allt að því sakaður um að hafa stuðlað að fátækt og síðan dauða Mozarts. Á báðum þessum verkum er helst að skilja að Jón hafi ekki fengið tækifæri vegna öfundar og skilningsleysis honum minni manna – íslenskt samfélag hafi ekki verið reiðubúið fyrir listamann af stærðargráðu Jóns. Höfundar beggja þessara verka virðast hafa einsett sér að leiðrétta þá mynd sem þeir telja að hafi verið ríkjandi af Jóni – að hann hafi verið sérvitringur sem samdi óspilandi tónlist. Reyndar hafa líka verið skrifaðar háskólaritgerðir um Jón, meistarprófsrit­ gerð Hjálmars H. Ragnarssonar við Cornell­háskóla í Bandaríkjunum árið 1980 fjallaði um ævi hans og tónlist og tónskáldið Ríkharður H. Friðriksson skrifaði BA­ritgerð sína við Háskóla Íslands um Jón. Árni Heimir skrifaði raunar líka B.Mus.­ritgerð um hann við Oberlin Conservatory of Music í Bandaríkjunum árið 1997, en þar var orgelkonsert Jóns í fyrirrúmi, ekki maðurinn og tónskáldið. Þessi áhugi kvikmyndagerðarmanna og tónlistarmanna á Jóni Leifs segir sína sögu um manninn sjálfan. Hann var óneitanlega mjög sérstæður og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.