Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Blaðsíða 114
Tr y g v i D a n i e l s e n
114 TMM 2015 · 2
Hann sveiflar henni hægt í hringi, ýtir henni frá sér, hefur hana upp og
leggur hana niður, allt meðan þau reka hvort annars sál í gegn með aug-
unum. Að lokum leggur hann hana á borðið svo að tvær höggmyndir detta
niður á gólf og brotna.
Þau hlæja innilega. (Close-up)
Kossheitur kyssir hann
andlitið allt,
eyrun,
svo hálsinn
og heldur niður.
Hann rennir tungunni varlega niður brjóstin, magann, fæturna, um lærin
innanverð og sýgur húðina ofan við skeiðina. Hann finnur ástríðu hennar
magnast. Hann
kyssir
sýgur
sleikir
og gælir við líkamann allan uns hún brennur svo af losta að
hún sárbænir hann að ríða sér. En þó að virðulegur, ólgandi limurinn sé að
bresta úr greddu þá lætur hann það ekki eftir henni. Líkami hennar er leik-
völlur hans þar sem sérhver fermillimetri skal rannsakaður og numinn. Hún
reynir að innlima liminn en hann aftrar henni. Greddan vekur smáskjálfta
allt frá innstu innviðum beinagrindarinnar út í ystu enda fíngerðustu
háranna á silkihúð konunnar. Þau draga andann í takt, þungan sem þýðan.
Loks leikur hann silfurmjúkri tungu með gætilegum gælum um skeiðina
uns leiðin til fullnægingar er fundin. Hún stynur hart en ámátlega er hann
sendir hana nærgætinn í draumaferð til afskekktustu afkima alheimsins og
aftur heim. Andlitið er gegndrepa af svita og vessum þegar hann stendur upp
og ber svipmót mikilsmegandi stríðskappa. Hann rennir limnum varlega í
svaðblautt hold hennar, sentímetra fyrir sentímetra, mjakar honum inn uns
hann kemst ekki lengra. Hún stynur innilega og starir í brennandi augu hans
og faðmar hann þvalan og hann veður æ hraðar inn í hana og út aftur. Him-
inninn lætur upp hvelfingu sína fyrir henni og sendir henni ítrekað hinar
litríkustu og fegurstu fullnægingar en kertin leggja auðmjúkar ljósrákir yfir
löðursveitt, sameinað hold. Af engu minni ofsa en fellibylurinn, sem hamast
á húsinu svo það nötrar, hertekur hann hana af ákafa og unun þar til hann
finnur lífgeislandi alheimsskjálfta þræða sig upp liminn, eins og
Hiroshima
himinblossi
árekstrarbrúða í bíl
brotið höfuð
* brestur! *
mær er af manndómi fyllt.